Þessa viku er ég að vinna að verkefninu indefence.is. Verkefnið snýst um að fá sem flestar undirskriftir gegn notkun Breta á hryðjuverkalögum gegn Íslendingum. Undirskriftirnar verða afhentar breskum stjónvöldum um mánaðarmótin og þegar þetta er skrifað hafa tæplega 58.000 manns skrifað undir áskorunina.
Ég hvet alla til að kynna sér þetta verkefni, lesa áskorunina og skrifa sig undir hana ef þeir eru sammála því sem þar kemur fram. Þeim mun fleiri sem skrifa undir, þeim mun meiri áhrif mun þetta mögulega hafa. indefence.is er ópólitískt verkefni sem er ekki tengt þeim mótmælumsem farið hafa fram með misjöfnum hætti undanfarna daga. Það snýst ekki um pólitískar persónur eða stefnumál, heldur hagsmuni og orðspor íslensku þjóðarinnar erlendis.
Nú þegar hefur verkefnið vakið gríðarlega athygli erlendis og umfjöllun um það hefur birst á forsíðum margra helstu prent og vefmiðla í bandaríkjunum, Bretlandi, á norðurlöndunum o.fl. Má þar nefna BBC, Financial Times, The Independent, Daily Telegraph, Times og Daily Mail. Greinarnar má lesa hér, á vefsíðu indefence.is
Þessa viku verður starfrækt upplýsingamiðstöð á jarðhæð gömlu Moggahallarinnar við Ingólfsorg þar sem gestir geta aflað sér upplýsinga um verkefnið, hringt í vini og kunningja innanlands og erlendis og vakið athygli á verkefninu, sent tölvupóst eða auglýst á Facebook, nú eða bara fengið sér kaffisopa í kuldanum. Fótgönguliðar verða einnig á ferðinni í miðbænum, í Kringlunni og í Smáralindinni til að kynna verkefnið.
Á föstudagseftirmiðdaginn er svo stefnt að því að slá botninn í starfssemi upplýsingamiðstöðvarinnar með Krepputónleikum á Ingólfstorgi.




Entries (RSS)
Flott framtak, flottur í sjónvarpinu…
Flottur í sjónvarpinu!! Og rosalega flottar myndir fyrir aftan hann ÓE á súlunni…vel hengdar upp og vel staðsett borð etc. etc. ;0)
Ég tók einmitt sérstaklega eftir því hvað þessar myndir væru vel hengdar upp!