Datt niður á skemmtilega síðu með myndrænum úrslitum úr öllum forsetakosningum í Bandaríkjunum frá upphafi. Þar má til dæmis sjá að Strom Thurmond, elsti þingmaðurinn sem enn situr í öldungadeildinni, bauð sig fram sem forseta gegn Harry S. Truman á sínum tíma! Kemur líka skemmtilega á óvart að Strom, sem seint verður talinn frjálslyndur með afbrigðum, er skráður í framboð sem ‘Dixiecrat‘, hvað sem það þú þýðir.



Entries (RSS)
Það sem kemur mér alltaf jafn skemmtilega á óvart er hvað þú getur haldið stöðugum og miklum áhuga á þessum forsetakosningum.
Þetta er nördismi á háu stigi sem hefur tekið mörg ár að fullkomna.
Dixiecrat merkir demókrati frá Suðurríkjunum (e.t.v. er dixie aðeins notað um efri hluta þeirra, þ.e. ekki Florida og Texas en Strom var frá Suður Karólínu).
Strom var demókrati til nálægt 1964 en skipti þá yfir í Repúblíkanaflokkinn. Þetta mun hafa tengst baráttu Kennedybræðra fyrir mannréttindum blökkumanna í suðri sem voru ekkert sérstakt áhugamál Stroms.
Þó kom síðar í ljós að svarti kynþátturinn hafði sitt aðdráttarafl fyrir Strom, manneskjan er flókin!
Herra Jóhannes, ég vona svo sannarlega að Strom Thurmond sitji ekki enn þann dag í dag í öldungadeild þingsins þar sem hann dó fyrir 5 árum síðan, 101 árs að aldri.
Ég þakka ÁJ fyrir þetta ágæta besserwiss um Dixiecrata, þetta vissi ég ekki. Og varðandi það að Thurmond sé látinn þá hef ég fulla trú á því að hann sitji enn á þingi. Hann hefur tæplega farið að láta slíka smámuni stöðva sitt pólitíska starf.