Morfís er byrjað aftur. Ég var í dómgæslu í gær á Kvennó - FÁ og það var bara ágætlega gaman. Umræðuefnið var reyndar með þeim klassískari (og þar með þreyttustu) sem ég hef setið undir en þó hjálpaði að það var töluvert um skemmtilegar nálganir og nýjar pælingar sem vert var að hlusta á. Kvennó sigraði með nokkrum yfirburðum, einhverjum rúmum 300 stigum. Ég fékk það verkefni hjá samdómurum mínum að vera leiðinlegi oddadómarinn með löngu og leiðinlegu ræðuna, sem ég reyni reyndar að gera ekki annars. Ég veit ekki hvað ég talaði lengi um mistök í framkvæmd, refsistig, prósentuhlutföll stiga, pirring dómara yfir ræðumönnum sem ekki drulla sér í pontu þegar kallað er á þá, nýjar reglur í morfís, tölfræðileg ólíkindi jafnteflisdóma í morfís og svo framvegis, allt mjög þörf og merkileg atriði sem rétt er að oddadómari tjái sig um áður en úrslit eru tilkynnt. Ef einhver var að telja mínútur væri gaman að fá þær hér í komment.

Ég er hins vegar búinn að ákveða að næst þegar ég verð oddadómari ætla ég að reyna að slá íslandsmetið í stystu oddadómararæðu sem haldin hefur verið. Ég held að Sólmundur Hólm eigi það met síðan á MR-VÍ í átta liða úrslitum í fyrra, um tvær mínútur eða svo. Hafi einhver aðrar upplýsingar þá má viðkomandi færa rök fyrir þeim í kommentum. Ég stefni alla vega á að komast vel undir mínútuna.

8 Responses to “Smjörfís”
  1. mig minnir að bergur ebbi hafi einhverntíman haldið ræðu sem var eins stutt og hún hefði getað verið. Sagði að það væru 5 hlutir sem honum bæri að tilkynna, tilgreindi þá hluti og gekk svo í burtu.

  2. eru þeir fimm, ég hélt það væru bara þrír, heildarstig, ræðumaður og úrslit.
    þarf að tékka á þessu.

  3. Ég ætlaði nú alltaf að láta stutta tímabilið taka við af langa tímabilinu, en vandamálið var það, að eftir of langt langt tímabil var enginn tilbúinn að taka áhættu.

    Í síðustu viku héngu ræðukeppnisauglýsingar upp um alla veggi skólans. Ég lét það nú eiga sig að horfa á Kínverja rífast um það hvort námið væri of strembið á þýsku o.fl. í þeim dúr.

    Annars verð ég nú að fá að spyrja hverjir hafi skipað ræðulið FÁ og hver hafi þjálfað? Fávitinn virðist ekki geta sagt mér það.

  4. Og já… oddadómari þarf bara að tilkynna þrjá hluti: stigahæsti ræðumaður, munur liða og sigurlið.

  5. Geir Guðbrandsson says:

    Dró kærustuna mína með mér á þessa keppni og kunni hún svo rosalega lítið að meta ræðuna þína að hún taldi einmitt, einhverjar 14-15 mínútur voru það víst sem þú bablaðir.

  6. Noh, korter þykir nú bara þokkalegt. Sáttur með það. Hún átti jú líka að vera löng og leiðinleg, gott að það tókst svona líka glimmrandi vel.

    Varðandi FÁ liðið þá er ég nú ekki duglegur að muna nöfn. Sindri Astmars var að þjálfa, þú getur pumpað hann betur um þetta. Minnir að ræðumenn hafi heitið Emilía, Eiður Sig. og Dagur Sig. á blaðinu hjá mér. Mér er fyrirmunað að muna hvað liðsstjórinn þeirra hét, beðist er afsökunar á því vegna elliglapa.

  7. Takk fyrir dómgæslu, ég þarf víst að draga úr öskrunum er mér sagt, mér var bara svo déskoti mikið niðri fyrir.

    Frummælandin hét Elín og liðsstjórinn hét Kristín.

    Þessi ræða þín var ein sú allra leiðinlegasta og kennaralegasta oddadómararæða sem ég hef hlustað á og þá er mikið sagt :)

  8. Geir Guðbrandsson says:

    Sammála Viktori, hefur líklega slegið mörg eigin met í leiða með þessarri ræðu.

    Ég vona að ég verði viðstaddur styðstu ræðuna þína, það myndi veita mér sálarró.

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>