Jæja gott fólk. Þá er kominn 1. nóvember og ekki seinna vænna að keyra í gang Mússíkmeistarann 2008. Eins og áður verður ein gáta í viku að jafnaði, á mánudögum til viðmiðunar. Gátan verður opin í 24 tíma frá birtingu og svör skulu sendast inn í komment sem verða svo birt eftir lokun eins og venjulega. Einnig má senda svör í tölvupósti. Hver keppandi má aðeins senda eitt svar við hverri getraun, ekki verður tekið mark á viðbótum eða leiðréttingum við svör eftir að það fyrsta er komið í hús. Tekið verður fram hvort bannað er að gúgla í hvert skipti, það verður stundum leyft og stundum ekki. Minnt er á þá staðreynd að þeir sem svindla á þeirri reglu kaupa sér eilífa Helvítisvist.
Getraunin verður með fjölbreyttari blæ en hingað til og verðlaunin verða ekki af verri endanum, ferðavinningur fyrir tvo innanlands.
Til að fyrirbyggja væl og nöldur frá vinningshöfum fyrri ára skal áréttað að verðlaun eru alltaf afhent á endanum. Endinn er hins vegar ekki kominn ennþá, en hann mun einhverntíma koma.
Fyrsta getraun ársins birtist því hér á besserwissinu næstkomandi mánudag. Góðar stundir.



Entries (RSS)
Jeiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!!!!!!!!!!!!!!!!
hhmmm…ferðavinningur fyrir tvo innanlands? Er það í Hfj? Með strætó? Eða ætlarðu að go all crazy og ekki segja neinn tiltekinn áfangastað og gefa bara miða í strætó? Ég er svoooo spennt!
Ertu skyggn?
maður er farinn að þekkja besserwiss-inn sko!
Fái ég innanlandsferðavinning fyrir tvo upp í IKEA í Hafnarfirði, ásamt pylsu og kók, þá skal ég ekki linna látum fyrr en ég stend uppi sem sigurvegari, jafnvel þótt ég þurfi að stúta öðrum lesendum þessarar síðu.
Ég elska IKEA.
Það væri líka óneitanlega dálítill klassi yfir því að vinna þessa keppni í fyrsta skipti sem maður tekur þátt í henni.
Það er hér með staðfest að IKEA er einn fjölmargra áfangastaða sem vinningshafar geta valið um! Akademían mun alvarlega íhuga að láta pylsu og kók fylgja með í kaupbæti, laði það að þátttakendur í stórum stíl.
Eg lysi frati a thessi tondaemi, thad er ekkert haegt ad hlusta a thau a thessum Hawaisku hostelum. Issssssss…..
Það er eitthvað vesen með tóndæmið, ekkert heyrist, hvorki á Íslandi né Hawai. Heyrist eitthvað í Durham?
Allt heyrist í stórveldinu Durham