Jæja gott fólk. Hér er einföld, létt og löðurmannleg getraun til að hita ykkur upp í byrjun. Þetta er svo skítlétt að ég skammast mín næstum því. Spurningin er einföld. Á hvaða tungumáli er sungið?
1. Tóndæmi 1 (1)
2. Tóndæmi 2 (1)
3. Tóndæmi 3 (1)
Einhverjir hafa lent í veseni með að hlusta á dæmin, málið er að flash playerinn sem ég hef notað hingað til neitar að virka með nýju útgáfunni af Wordpress þannig að þetta verður að vera í tenglum í þetta sinn. Þið smellið semsagt á tengilinn og dánlódið hverju dæmi fyrir sig. Ef einhverjir sjá ennþá lítinn playtakka við tóndæmin þá er þeim bent á að endurhlaða síðuna (F5) því að playtakkinn virkar ekki og á ekki að vera þarna.



Entries (RSS)
Eftir áróður og rógburð síðustu keppni höfum við ákveðið að senda inn sameiginleg svör þrígiftra. Því miður vill reyndar svo illa til að við höfum lítinn tíma til að grúska þessu sinni, en vinnum það vonandi upp á næstu vikum.
1. Það er nær ógerlegt að greina orðaskil hér svo við slumpum á ungversku
2. Þetta er tungumál Mr Darling Brown, enska, reyndar sungin aftur á bak …lagið um himnastigann
3. Við giskum að lagið um hana sonju sé sungið á hebresku
Kær kveðja frá Barnard Castle.
Una, Helgi og Iðunn
flæmska, albanska, hebreska, skítlétt
1. Ungverska
2. Enska, Stairway to heaven afturábak
3. Hebreska
Katla fær núll stig. Þykir það furðu sæta.
Guðmann Bragi fær tvö stig.
Þrígiftir fá tvö stig.
Trausti Már fær eitt stig.
1. Indverska….?
2.Enska… smooth jóhannes stairway to heaven afturábak
3. blaaa?
égersvoaldeilishissa!!!!
BooooYaaaH!!