Þá er lokið fyrstu umferð Mússíkmeistarans 2008. Stig skiptust þannig að Guðmann Bragi og Durham mafían tróna á toppnum með tvö stig.

Rétt svör voru eftirfarandi:
1. Tungumálið er ungverska. Lagið er Kinek mondjam el vétkeimet, Eurovisionframlag Ungverja árið 1994, sungið af Frideriku.
2. Tungumálið er enska. Lagið er ekki af verri endanum, sjálft Stairway to Heaven með Led Zeppelin, spilað afturábak.
3. Tungumálið er Afrikaans. Lagið er af verri endanum, mögulega hallærislegasta lag sem ég hef heyrt og séð. Flytjandinn er sem betur fer óþekktur. En hafi lesendur áhuga á yfirmáta hallærlislegum tónlistarmyndböndum við vafasama tónlist á skrýtnum tungumálum þá mæli ég með Serenade vir Sonja á youtube.

One Response to “Úrslit fyrstu umferðar.”
  1. mágur þinn góði says:
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>