ATH: FRAMLENGT FRAM AÐ MIÐNÆTTI Á ÞRIÐJUDAG.

Þessi er örlítið flóknari og svolítið margþættari en sú síðasta og það er hægt að næla sér í heil 19 stig (og jafnvel bónus…)!

Hér á eftir koma fimm tóndæmi. Þrjú þeirra eru coverlög, þ.e. flutt af öðrum en þeim sem upphaflega gaf lagið út. Tvö þeirra eru það ekki.

Tóndæmi 1

Tóndæmi 2

Tóndæmi 3

Tóndæmi 4

Tóndæmi 5

A. Nefnið heiti lags og flytjanda í hverju dæmi. Tvö stig fyrir hvert lag þar. Fyrir að nefna upphaflegan flytjanda (original recording artist svo þetta sé nákvæmt, það skiptir máli hér) coverlaganna fæst svo eitt stig pr/lag. Hér eru því komin samtals 13 stig í pottinn. En þetta er ekki búið.

B. Finnið a.m.k. fjórar sértækar tengingar milli laganna og/eða flytjendanna innbyrðis. Eitt stig fyrir hverja tengingu.

C. Fjögur laganna tengjast almennt séð í eins konar þema. Eitt lagið passar hins vegar ekki inn í þemað. Hvert þeirra er the odd one out? Rökstyðjið. Tvö stig í boði þar.

Og já, eitt enn:
ÞAÐ ER ALGERLEGA BANNAÐ AÐ GÚGLA Í ÞESSARI GETRAUN!!! Mannleg hjálpartæki eru leyfileg, en ekki netið. Góðar stundir.

9 Responses to “Mússíkmeistarinn 2008 - 2. getraun”
  1. Gunnar Örn says:

    1. Neil Young - Southern Man. Þetta lag samdi hann til Lynard Skynard sem hann sakaði um kynþáttaníð. Sem sömdu einmitt lagið í tóndæmi 5.

    2. Seasons in the Sun, veit ómögulega ekki flytjandann.

    3. Creedence Clearwater Revival - Midnight Special

    4. Wtf? E-ð Suðurríkja þjóðlag.

    5. Sweet Home Alabama. Upphaflega með Lynard Skynard. Í þessu lagi svara þeir laginu Southern Man samdi um þá. Þar sem Mr. Young í textanum er Neil Young.

    Þemað er greinilega Suðurríki Bandaríkjanna. “The odd one out” er Seasons in the Sun.

  2. Þrígiftir á Bretlandseyjum says:

    A Lag og flytjandi
    1.Southern Man með Neil Young
    2.Seasons in the sun, hér í flutningi Nirvana en upprunalega var þetta lag á frönsku með Belganum Jaques Brel og hét þá Le Moribond
    3. Midnight Special, hér líklegast í flutningi Creedence Clearwater Revival. Þetta er líklega upprunalega þjóðlag en við höldum að LeadBelly hafi verið sá sem fyrstur tók það upp.
    4. Hér er afturámóti Lead Belly sjálfur kominn með annað þjóðlag – Pick a Bale of Cotton
    5. Sweet Home Alabama í flutningi Kid Rock. Var samt upprunalega flutt af Lynyard Skynyard

    B. Sértækar tengingar:
    ABBA hefur flutt bæði 3 og 4
    5 var samið sem svar við 1
    Leadbelly var fyrsti flytjandi 3 og 4
    3 og 4 eru bæði þjóðlög svertingja – svo kallaðir negrasálmar.
    Neil Young sem flytur 1 hefur líka samið lag sem heitir Alabama og tengist þannig við 5.
    Svo má kannski taka fram að Leadbelly var í miklu uppáhaldi hjá Nirvana og hafa þeir tekið upp ein 4 eða 5 lög eftir hann á ferli sínum

    C Þetta er suðurríkjaþema. Eina sem passer ekki inní er lag 2 sem eins og kemur fram að ofan er samið af Belganum Jacques Brel og var upprunalega samið á frönsku.

  3. Gunnar Örn fær 10 stig.

    Durham mafían fær 19 stig, þar af eitt fyrir aukaþekkingu á sértækum tengingum milli laganna. Svakalegt!

  4. hhmmm…eitthvað gruggugt við þetta mál!

  5. A:

    Lag 1 :
    Hef ekki hugmynd, hef þó pottþétt heyrt þennan söngvara áður.. og oftar en einu sinni… ég svo sver það…
    Þetta er Neil Young er það ekki…

    Lag 2 :
    Er Cover
    Titill lags : Seasons in the Sun, Original Recording artist : Terry Jack
    Ég hef heyrt þetta cover áður, er ekki viss hver þetta er, en af því að þetta ert þú sem spyr giska ég á Nirvana.

    Lag 3 :
    The Midnight Special, Creedence Clearwater

    Lag 4 :
    Pick a bale of cotton, Leadbelly
    Er þjóðlag held ég pottþétt og er því coverað af blýmaganum.

    Lag 5 :
    Cover
    Sweet Home Alabama, original með Lynard Skynyrd
    Hef ekki hugmynd hverjir flytja

    B:
    úff

    C:
    1, 3, 4 og 5 eru öll úr Suðurríkjunum.

  6. Þrígiftir +stuttungur says:

    Ekki okkur að kenna að við erum með sérkennilegan tónlistarsmekk og umkringd músiknördum….

  7. Umkringd músíknördum… hey ég flýg sóló í þessu…

  8. mágur þinn góði says:

    I’m not buying this.

    Mig langar að sjá þrígifta svara svona tónlistargetraun “live” án netsins, skora hátt og fyrst þá skal ég trúa því að þau geri þetta án netsins.

    (Þetta er náttúrulega bara öfund)

  9. Anna Lilja says:

    Nú spyr ég sem tryggur stuðningsmaður eiginmanns míns, fær hann enginn stig? Ertu í einhverri annarri vinnu en að sinna þessu? Áttu einhverja fjölskyldu sem þú þarft að sinna eða hvað,,,,, hvað er í gangi,,,,,?

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>