A.
1. Southern Man með Neil Young
2. Seasons in the Sun, hér í flutningi Nirvana, með Kurt á trommur, Dave á bassa og Krist á gítar. Upphaflega gefið út á frönsku með Jaques Brel, upphaflega gefið út á ensku með Terry Jacks. Hvort tveggja fékk rétt.
3. Midnight Special, hér í flutningi Credence Clearwater Revival. Upphaflega gefið út af Huddie Ledbetter (Ledbelly).
4. Pick a Bale of Cotton með Huddie Ledbetter.
5. Sweet Home Alabama, hér í flutningi Leningrad Cowboys og kórs Rauða Hersins. Upphaflega gefið út af Lynrd Skynrd.
B.
Hér er um auðugan garð að gresja, en það sem ég var svona helst að leita að er t.d. þetta hér:
1. Sweet Home Alabama er beint svar við lögunum Alabama og Southern Man eftir Neil Young. Bæði “Southern man” og “Mr. Young” koma t.d. fram í textanum.
2. Midnight Special er upphaflega gefið út af Leadbelly. Á þessari Credence plötu voru tvö lög eftir hann.
3. Nirvana hóf glæstan feril sinn sem Credence Clearwater Revival coverhljómsveit, og endaði hann á flutningi Leadbellylagsins Where did you sleep last night (á Unplugged in New York).
4. Leadbelly var fyrsti flytjandi bæði Pick a Bale of Cotton og Midnight special. Þessi lög eru bæði nokkurs konar negrasálmar frá Suðurríkjum Bandaríkjanna, Midnight special þó meiri fangelsissálmur. Upptaka Leadbellys var t.d. gerð í einu slíku.
C. Þemað er um það bil svertingjar í suðurríkjum Bandaríkjanna. Eina lagið sem ekki passar inn í það er Seasons in the Sun, sem er upprunalega franskt og er í þokkabót gefið út á ensku af Kanadamanni.



Entries (RSS)
nenni ekki að taka þátt í svona bulli….trúi aldrei að þetta fólk hafi ekki googlað neitt af þessum svörum! :0)
ja, fólk verður að eigaþ að við sjálft sig, Helvítisvistin er óþægileg hef ég heyrt.
nú ég stóð í þeirri trú að það yrði quiz í næsta matarboði í turninum