Þá er það einfaldleikinn á ný. Ég óttast að þetta sé allt of létt.
1. Tóndæmi 1 - Hver syngur og eftir hverju er lagið nefnt? (2)
2. Tóndæmi 2- Hvað heitir lagið og hver er alþekktasti coverflytjandi þess? (2)
3. Tóndæmi 3 - Hver syngur og hvað heitir lagið? (2)
4. Tóndæmi 4 - Hver syngur? (1)
5. Tóndæmi 5 - Hver syngur? (1)



Entries (RSS)
1. Tökum sénsinn á að þetta sé útgáfan hans William Shatners. Lucy in the sky with Diamonds - Ýmsar tilgátur….skólasystir Julians Lennons, sem hann teiknaði einhverntíma mynd af…..sumir segja LSD, en ekki víst hversu satt það er - annars er náttúrulega aláhugaverðast að Australopithecus Afarensis AL288-1 heitir Lucy eftir þessu lagi…
2. Nobody knows you when youre down and out, Eric Clapton
3. Morrissey, Irish Blood English Heart
4. Marlene Dietrich - hljómar amk eins og hún þó sungið sé á ensku
5. Tökum bara sénsinn á Johnny Cash
Durham mafían fær sex stig. Hér er því upplagt tækifæri fyrir aðra að éta tvö stig af forskotinu…
1. Vá, William Shatner með lagið Lucy in the Sky with Diamonds. Lagið er nefnt eftir teikningu sem Julian, sonur John Lennon, teiknaði í barnaskóla. Neysla LSD er sögð tengjast textanum, ekki titlinum.
2. Nobody Knows When You’re Down And Out. Eric Clapton.
3. Morrissey -Irish Blood, English Heart
4. Marlene Dietrich
5. Ohh, þetta er geðveikt. Captain Spock, Leonard Nimoy.
…og Gunnar Örn gerir einmitt það, fullt hús, 8 stig!
Auglýsing:
Fyrst að spurningakeppni tröllríður þessari síðu þessa daga, þá auglýsi ég hér með eftir arftaka mínum í Gettu-Betur þjálfun FÁ???
Er ekki fullt af Morfísnördum sem lesa þessa síðu? Fer sá nördismi ekki vel saman við GB-nördisma?
Látið þetta út spyrjast.
hmmmm hér vantar getraun nr 4