Eldgömul viska
2/27/2004 …stal þessu líka…
…af Hildi. notaði reyndar evrópukortið því ég hef aldrei komið út fyrir evrópu…en komst að því að ég hef bara komið til alveg hellings af evrópulöndum…sko
create your personalized map of europe
or write about it on the open travel guide
farinn heim. síðar.
2/26/2004 …ókei…
…þetta er líka í tísku núna…og ég tolli alltaf í tískunni. stal þessu af finnska skiptinemanum…
Profile of a serial teacher
1. Hvenær vaknarðu á morgnanna?
Alltof alltof alltof snemma…6:45
2. Ef þú gætir snætt hádegisverð með einhverjum frægum, hver væri það?
Allavega ekki Hannbal Lecter.
3. Gull eða silfur?
Gull. Silfur er fyrir lúsera.
4. Hver var síðasta myndin sem þú sást í bíó?
LotR:RotK (er ég nörd eða hvað?)
5. Uppáhalds sjónvarpsþátturinn þinn?
Extreme makover eða Americas next top model…get ekki ákveðið….
6. Hvað borðarðu í morgunmat?
Mjólkurglas…mjólk er góð fyrir káta krakka…
8. Geturðu snert nefið á þér með tungunni?
Lít ég út fyrir að vera í Kiss?
9. Hvað veitir þér innblástur?
Börnin mín.
10. Hvert er miðnafnið þitt?
Þór - mr. Pain - Bubbles … pick one
11. Strönd, borg eða sveitasæla?
Skiptir ekki máli ef bjórinn er bara kaldur.
12. Sumar eða vetur?
Haust.
13. Uppáhalds ís?
Brynjuís er besti ís í heimi…en Ísbúð Vesturbæjar rúlar Reykjavíkinni.
14. Smjör salt eða sykur popp?
Ertu eitthvað klikk? Hvaða ónáttúra er það að setja sykur í popp. Dóni. Maður setur salt á popp og basta.
15. Uppáhaldsliturinn þinn?
Barbíbleikur…
16. Uppáhalds bíllinn þinn?
Suuuuubaruuuuu - að sjálfsögðu…
17. Hvað finnst þér best að borða á samloku?
Ókei…skinku, ost, pepperoni, agúrku, paprikku, beikon, roastbeef, túnfisksalat (mikið) og helling af súrum gúrkum…jafnvel ólífur……og já þetta fer allt á sömu samlokuna.
18. Hvert fórstu síðast í frí
Heja Sverige.
19. Hvaða persónuleika fyrirlíturðu?
Snobbhænsn
20. Uppáhaldsblóm?
Nei..,jú kannski þessi sem borða flugur…þarna lyfjagras eða eitthvað…
21. Ef þú ynnir stóra pottinn í lottóinu, hversu lengi myndirðu bíða áður en þú segðir fólki frá því?
Hvers konar spurningar eru þetta?
22. Sódavatn eða venjulegt vatn?
Breyttu því í vín og svo skulum við tala saman…
23. Hvernig er baðherbergið þitt á litinn?
Bara hvítt…hversu spennandi er það…
24. Hvað eru margir lyklar á lyklakippunni þinni?
Alls lyklar fundnir í vösum og kippum = sextán
25. Hvar ætlarðu að eyða ellinni?
Á einhverju óheppnu elliheimili með rafmagnsgítarinn minn og stóóóóóóran magnaradjöful…
26. Geturðu jögglað? (juggla er að kasta boltum upp í loft og grípa.. svona eins og trúðar gera í sirkus)
Lít ég út fyrir að vera eitthvað sirkusfrík? Ertu að segja að ég sé einhver trúður?
27. Uppáhalds dagur vikunnar?
Allir dagar þegar það er ekki vinna.
28. Rauðvín eða hvítvín?
Segjum Tequila og málið er dautt.
29. Hvernig eyddirðu síðasta afmælisdegi?
Í ammælisveislu hjá fjögurra ára vinkonu minni, í kringlunni og heima hjá mér í náttfötunum með stóra pizzu…alveg svaðalega þreyttur eftir vökunótt með stuðboltann Braga.
30. Ertu með líffæragjafarkort?
Ertu brjálaður? Veistu ekki að þeir koma heim til manns þegar þá vantar lifur og nýru…hefurðu aldrei séð Monty Python…?
31. Segðu eitthvað fallegt um manneskjuna sem sendi þér þetta:
ég stalðessu hjá Hildi. hún er falleg. og finnsk.
farinn að kaupa bleyjur. síðar.
2/25/2004 …svona ætti vinnuvikan að vera - alltaf…
…fimm daga frí og tveir dagar vinna. þá væri hægt að fá sér bjór fimm daga vikunnar án þess að vera þunnur í vinnunni.
…lambinn er kominn aftur í loftið eftir ritskoðun, lögfræðingafundi og skjalfestar ærumeiðingaafturkallanir. nú kveður þó við nýjan tón…mæli með því að menn skoði þessa steingeldustu bloggsíðu veraldar. jájá svona gerist þegar stóri bróðir trampar á tjáningarfrelsinu. skamm. vondur stóri bróðir. skamm. skammmmm…
…og já… fyrir litblinda má taka það fram að komið er nýtt útlit á þessa síðu…það er svona…öðruvísi…já …svona öðruvísi…allt mjög í anda jólanna….í helvíti. ætli það séu haldin jól í helvíti? ég meina lúsífer var jú upphaflega engill…en svo sagði hann upp…kannski snúast jólin í helvíti um það að allir koma saman, en enginn fær gjafir, allir þurfa að borða mat sem öllum finnst vondur og….nei það eru þorrablót…áhugavert.
…farinn að baka smákökur. síðar.
2/20/2004
…Placebo til Íslands …
….er raunveruleiki ef það er mark takandi á placeboworld.co.uk (sem hingað til hefur verið í lagi)… víííííííííí…Placebo í Laugardalshöll 07.07.2004…
farinn að tjalda fyrir framan skífuna. síðar.
2/20/2004 …já vetrarfrí, ó vetrarfrí, við …
…syngjum nú öll í kór…því það er svo gaman að hafa fimm daga helgi…og það er farið að snjóa úti…vá…ég var bara ða líta út um gluggann rétt í þessu og sá bara allt hvítt…hélt ég væri kannski dáinn…en svo áttaði ég mig á því að ég gat ennþá séð ljótu appelsínugulu skólagardínurnar hérna og það er enginn möguleiki í helvíti að það séu svona ljótar gardínur á himnum…
…það virðist sem þessi klámópera hafi eitthvað spurst út, allavega hefur aumingja teljaradruslan aldrei þurft að hafa svona mikið fyrir lífinu held ég. uppundir fimmtíu heimsóknir á dag… en hvað það er indælt að vera elskaður…
Frétt dagsins, já bara jafnvel mánaðarins: Áfengisgjald lækkað í Finnlandi! Já það eru jólin í finnandi núna, nú geta allir orðið fullir fyrir helmingi lægra verð. Júhú! jafnvel bara Júhúkka Pekka (ohhhh ég er svo sniðugur). Það er löngu kominn tími til að þessi meðsta fyllerísþjóð evrópu fái brennivínið sitt á almennilegu verði. ÁTVR Finnlands, ALKO (hversu fyndið er það!), býst við áramótaös í ódýrt “sprit”. Það verða semsagt allir Finnar (og einn íslenskur skiptinemi) á blindafylleríi næsta mánuðinn….til hamingju með það húrra húrra húrra húrra……..!
…annar þáttur klámóperunnar “Die Anallösnung” kemur um helgina…ekki missa af heimsviðburði…tune in tomorrow when Adolf says: “ahhhhh mein arschloch hast ein grossen scheisse….!”
farinn að bíða eftir vetrarfríi…fjórir tímar og 28 mínútur…fjórir tímar og 27 mínútur… síðar.
2/17/2004 …kominn aftur frá Akureyri…
…þar var bara ágætt að vera. mjög skrýtnir skemmtistaðir þar. til dæmis kemst enginn upp á svið á karókíbarnum Odd-vitanum nema vera annað hvort 80 kíló í yfirvigt eða með træbaltattú upp um alla handleggi. ég var næstum því nógu feitur en tattúin vantaði…
…töpuðum morfís. það var leiðinlegt. enn leiðinlegra var þó hvað MA ingar eru mikil sexárabörn. Skoðið bara kommentin þeirra eftir kepnina hér, hér og hér Þetta fólk kann ekki að vinna með reisn. FB menn eru sáttir með sína frammistöðu og bera höfuðið hátt. Ég vil bara þakka strákunum fyrir samvinnuna sem var frábær á allan hátt, stuðningsliðinu okkar fyrir frábæran móral eftir keppnina og fyrir að vera fimmti maðurinn í liðinu í öllum keppnum, og síðast en ekki síst þakka ég öllum í “Akureyri er hommi” klúbbnum fyrir fyrir fjöruga helgi og þynnkulegustu hjörð af rútuferðalöngum sem ég hef augum litið um ævina
Alltaf gaman að hafa einhvern annan til að hlæja að.
…jæja…þannig var nú það…en þá að alvöru málsins:
“Die Anallösnung”
1. þáttur, 2. sena - Kanslarahöllin í Berlín á Nótt hinna löngu hnífa, 1934
Tjaldið lyftist. á bakgrunni má sjá móta fyrir mótífi af löngum blóðugum hníf, eilítið bjúgnum. aftarlega sviðsvinstri má greina Heinrich Himmler á skyrtu einni fata. Í kjöltu hans er hænsn eitt fagurt og hann raular ástarvalsinn “Nun komme ich mit schwanz und spritz…”. Hænsnið gaggar af unaði. Inn á senuna sviðshægri dansa fjórir brúnklæddir menn í stuttbuxum. Hver þeirra hefur einn staf á skyrtu sinni og saman mynda þeir orðið RÖHM með ýmsum nautnalegum stellingum. Himmler hefur sleppt hænsninu sem nú vappar kiðfætt um senuna með undrunarsvip. Hann dansar klunnalega í kring um nauntalegu brúnstakkana, leikur Master of Puppets á melodicu og syngur “Ich bin der püppetmeister…ahaha…”. Brúnklæddu mennirnir lyppast niður á sviðið og deyja. ljósin slökkna. einmana spot kviknar í vængnum og Adolf kemur í ljós á yfirskegginu einu saman. Hann hefur í Franz von Papen í taumi líkt og hross. Saman syngja þeir dúettinn “Gut bist du mein pferd der lustigkeit / Mein geliebte reiter…” á meðan Adolf ríður von Papen um sviðið með tilheyrandi svipusmellum. Er dúettinn hljóðnar skiptir sviðsmyndin út í garð Reichskanslerísins þar sem Göring og Eva Braun eiga saman leynilegan ástarfund. Hann másar í gegnum aríuna “Ich bin so dicke ich kann mein dick nicht sehen…” á meðan hún leitar fyrir hann. Fagnaðarfundir verða er Eva finnur flokksfélagann og hún muldrar aríuna “mmnnnggnnnhhh nnnmmmwwm hhhnngggmmm…” við undirleik blásturshljóðfæra. Einmitt þá gengur ríður Adolf framhjá glugganum og sér allt saman. Í bræði sinni æpir hann hergöngumarsinn “Eva du bist ein schweinehund…” og leggur á ráðin um grimmilega hefnd sína. Niðri í garðinum heyrast feitlagnar stunur. Tjaldið fellur.
2/6/2004 … tilefni af því…
…að ég nenni ekki lengur að ritskoða það sem mér dettur í hug að skrifa kynni ég hér Klámóperu sem er sprottin úr kommenti sem ég sýrutrippaði á braga málefnalega um daginn.
Meine damen und herren, Es ist mit grossen stoltz das wir presentieren das pornopera:
“Die Anallösnung”
1. Þáttur, 1. sena - Kanslarahöllin í Berlín, febrúar 1933.
Tjaldið lyftist. Adolf stendur berrassaður uppi á borði í Reichskanzleríinu að æfa ræðu fyrir Nürnbergþingið. Göbbels breiðir úr sér í fyrirferðarmiklum rauðum plussstól og glottir áfergjulega að foringjaslátrinu sem sveiflast í takt við handapatið. Í baksýn brennur Ríkisþinghúsið björtum loga og Eva Braun tekur að jóðla…”Ach mein lieber Adi, der immer bist so geil…” með blússandi basso-alt rödd. Adolf rís hold er hið hljómfagra man hefur upp raust sína og saman kyrja þau Horst Wessel Lied á meðan þau makast á skrifborðinu. Göbbels rymur í takt við basso continuum laglínunnar “Die Fahne hoch die Reihen fest geschlossen…” um leið og hann dáist að þöndum þjóhnöppum foringjans og fyllist hómóerótískum hugsjónum. Er söngurinn hljóðnar er barið að dyrum. Adolf þrýstir sér ástúðlega að heitkonu sinni og raular aríettuna “Ich komme, ich spritze…”. Undir pákuslögunum er Marinus van der Lübbe leiddur inn fremst á sviðið í fylgd tveggja ljóshærðra manna í rasslausum leðurbuxum. Hann syngur tregaaríuna “Ein kleiner feuer ist schön und macht mich geil…” í tærum kontratenór meðan leðurmennirnir gæla við hann. Er þeir hafa lokið sér af er honum sparkað ofan í hljómsveitargryfjuna. Undurljúfir tónar berast úr vængjunum, og inn á sviðið skríður undirokaður sósíaldemókratatafangakórinn undir angurblíðri melódíu “Marx und Engels mich in der arschloch sodomieret haben…” og reynir að lina þrautir sínar með fjöldakynlífi. En Adolf hlær geðsýkislega og skekur pjenginn. Tjaldið fellur.
farinn að hugsa um hvernig ég lýg mig út úr þessu þegar tengdó les þetta. síðar.
2/5/2004 …já nú eru góð ráð…
…á hverju strái, því til að af mér brái segi ég ái og það ég þrái að minn blái andans ái nú út sér sái og sjái að þó ég spái að hann af mér þái nei nú er ég farinn að búa til orð sem eru ekki til…
…á morgun er góður dagur…þá er 8. bekkur í kristilegu fermingarferðalagi í Vatnaskógi með prestum og biblíum og einhverju fleira stuði með guði…halelújasöngvum og tilheyrandi…
Það sem er gott við það fyrir mig persónulega er að þau eru ekki í skólanum á meðan…og ég kenni 8. bekk allan daginn á morgun…sem þýðir að ég þarf ekki að byrja að kenna fyrr en kl.12:00, (jei) en þá matreiði ég stærðfræði ofan í 9. bekkinga af minni alkunnu snilld. Já það er gott að vera kennari þegar krakkana vantar…
…farinn að fagna. síðar.
1/31/2004 …búnað setja upp…
…svona myndaalbúm fyrir fjölskylduna…júbbíjei…
farinn að hósta og snýta mér. síðar.
1/26/2004 …af hverju í andskotanum…
…er mánudagur í dag…
…er ekki til svona korktappi sem maður stingur upp í nemendur til að þeir þegi…teip er líka gott…
…er Gunnar í Krossinum svona asnalegur…
…er ég ekki fullur…
…er DV ekki prentað á klósettpappír, það væri svo miklu mýkra…
…er svona kalt í þessu klakarassgati…
…eru vinstri grænir eiginlega bara vinstri en eiginlega ekkert grænir…
…er kók svona ávanabindandi…
…er ekki gull í vatnsmýrinni…
…er platan ‘Skot í myrkri’ með Eiríki Hauksyni ekki á metölulistum út um allan heim…
…er meira gaman að vaka á nóttunni þegar maður er sex vikna…
…er ég að þessu helvíti…
farinn í fýlu. síðar.
1/16/2004 …aðrir frægir Jóhannesar…
…sem veröldin hefur notið góðs af eru meðal annarra:
…Johannes Gutenberg, faðir prentlistarinnar (c.1397-1468). Bjó til biblíur og anna’ stu’. er ábyrgur fyrir prentuðum skólabókum. Hataður af nemendum um allan heim.
…Johannes Brahms, tónskáld (1833-1897). ákaflega vinsælt name drop hjá þeim sem vilja láta líta út fyrir að þeir viti eitthvað meira um klassíska mússík en það sem þeir sáu í Amadeus.
…Johannes Kepler, stjarnfræðingur (1571-1630). Töffari. Setti t.d. fram kenninguna um sporöskjulaga sporbraut plánetanna…kúl.
…Johannes Vermeer, málari (1632-1675). Súper frægur gaur. málaði helling af myndum, fáar til núna. Fyrir aula sjá nýfrumsýnda kvikmynd “The Girl With the Pearl Earring”.
…Johannes Rau, forseti Þýskalands (1931- ). Fyrstur þýskra forseta til að afsaka helförina í ísraelska þinginu, Knesset. Fórst það verkefni vel. Ekki eins klaufalegur og Gerhardt Schröder sem rak feitann rassinn í takka í Helfararsafninu í Jerusalem og slökkti á Loganum Eilífa Til Minningar Um Fórnarlömb Helfararinnar…óheppinn.
…Johannes Hevelius, stjarnfræðingur (1611-1687). Frumkvöðull á sviði stjarnmælinga. Fæddur í Gdansk, síðar Danzig, síðar aftur Gdansk…síðar æ hverjum er ekki sama.
…Jóhannes Páll II, Páfi (1920 -). Einn áhrifamesti maður plánetunnar Tellus, þ.e. þessi sem þið ingoramusarnir kallið Jörð. Er illa við smokka og annað gúmmí. Líka kannski spurning um að fara að lækka eftirlaunaaldurinn ? þessu Vatikani.
…Jóhannes Páll I, Páfi (1912-1978). Var páfi í 33 daga og dó svo. óheppinn.
… Johannes Bugenhagen, guðfræðingur (? - 1558). Lærifaðir Martin Luther og ein aðaldriffjöður siðskiptanna í N-Evrópu. Annaðist af hjartagæsku konu Luthers eftir að hann dó. Perri.
…Johannes Vilhelm Jensen, rithöfundur (1873-1950). Hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum 1944. Einn virtasti rithöfundur Dana.
…Jóhannes skírari, spámaður (um 20 f.Kr. - um 20 e.Kr.). Flottastur. Náunginn sem allir hinir Jóhannesar heimsins eru skírðir eftir.
farinn að horfa á Idol. Simma og Jóhannes. síðar.
1/12/2004 …vissir þú…
…nei einmitt það…
blúbb.
1/10/2004 …5 hlutir sem mér leiðast…
1. …að skipta um sængurver á sænginni minni.
2. …nemendur sem halda að þeir séu fyrndnir en eru það ekki.
3. …slabb.
4. …Ávaxtakarfan.
5. …að eiga ekkert nammi til að bíta í.
farinn að elda kjúlla. síðar.
1/5/2004 …eitthvað svona listar eitthvað…
…er voða mikið í tísku á öllum bloggsíðum þessa dagana útaf þessum áramótum. Guðjól á t.d. ágæta spretti í svaðalegasta ársuppgjöri samtímans. ég ætla líka að gera lista. Það tengist þessum áramáotum að vísu ekki neitt…meira bara svona aþþí að allir hinir eru að geraðetta…
Topp fimm misheppnuðustu móment kvikmyndanna hin síðari ár…
5. Jar Jar Binks - fari hann til helvítis far, far away…
4. Three Kings eins og hún leggur sig - versta kvikmynd sögunnar síðan Plan 9 From Outer Space var og hét…það var þó allavega hægt að hlægja að henni…George Clunni, Marky Mark og félagar eru bara grátlegir.
3. Geimbyssusjútátið í Moonraker. Ó guð. Vondu kallarnir með einn lit af leisergeislum og góðu kallarnir með annan. mynd sem langaði rosalega að vera StarWars…
2. 150 mínútur af Pearl Harbour - þ.e. allt nema þessi hálftími þar sem Japanirnir eru að skjóta allt í klessu. Restin er þjóðrembuástargubbuvæl frá helvítisem á best heima 80 cm uppi í rassgatinu á vitleysingnum sem skrifaði þetta kúkalabbahandrit.
1. Geimveruendirinn á A.I. - Alveg ágæt mynd að mörgu leyti en auðvitað átti strákurinn að sitja í helvítis apparatinu á hafsbotni til eilífðarnóns…en neeeeeiiii herra Spílberg getur ekki búið til kvikmyndir með sorglegum endi…setjum bara einhverjar geimverur inn í þetta til að redda endinum….veeeiiiii herra spílberg þú ert snillingur húrrra….NOT! Óóóóóóóóóóóóótrúlega lélegur endir sem rústar allri myndinni. Klippa síðasta hálftímann burt takk.
og hananú. síðar
1/5/2004 …ó happy happy joy joy…
…ég er kominn aftur í vinnuna. tóm hamingja. endalaus gleði. ótrúúúlegt stuð. mér finnst að það eigi að stytta jólafríið svo að maður geti verið meira í vinnunni. tvær vikur er auðvitað alltof langt. andskotinn.
farinn að kvelja börnin. síðar.
12/27/2003 …og hvað á barnið að heita?…
… Bragi Strand Jóhannesson heitirann og hananú. Systir hans heldur því fram að þetta sé vitleysa og tekur ekki í mál að bróðir hennar heiti neitt annað en Jesú. Presturinn sagði að það væri allt í lagi. Það væri líka ágæt nafn. Sú stutta undi þokkalega sátt við þá málamiðlun.
Fleira ekki í fréttum í dag. nenni ekki að blogga meira í jólafríinu. næsta blogg mánudaginn 5. janúar. þá verður tekiðáðí.
farinn að glápa á Ice Age. síðar.
12/15/2003 …hér eru nokkrar myndir …
…af stórkostlegasta smábarni veraldar:
http://www.freepichosting.com/Images/125081/0.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/1.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/2.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/3.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/4.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/5.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/6.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/7.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/8.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/9.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/14.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/15.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/17.jpg
http://www.freepichosting.com/Images/125081/16.jpg
farinn að horfa á barnið. síðar.
12/6/2003 …vér höfum aumkað oss…
…yfir pöbulinn af góðsemi vorri og óendanlegri visku. Væl almúgans er komið í lag börnin góð. Enn og aftur hefur stórkostleg ásljóna vor unnið bug á óréttlæti óvandaðra samsærismanna sem steypa vildu geðþekkri harðstjórn vorri.
vér erum farnir í konunglegt freyðibað. síðar.
12/5/2003 …vér munum nú…
…lýsa skoðun vorri á nokkrum jólaræmum, alþýðunni til upplýsingar (enda erum vér upplýstur einvaldur, hér ríkir ekkert menningarsvartnætti sko).
Die Hard 2 - besta jólaspennumynd fyrr og síðar. Brús Willis kveikir í helling af vondum málaliðum. endalaust kúl. yipeekajei mömmustrákur.
Miracle on 34th Street - jólasveinninn í búðinni er í alvöru jólasveinnINN…vá….ótrúlega boring og fyrirsjáanleg…algert miracle að maður bara deyr ekki úr leiðindum.
Jólaósk Önnu Bellu - jólakúin Anna Bella fær ósk sína uppfyllta. í endalausu uppáhaldi á heimilinu. þó ekki hjá oss sjálfum. reiknið þetta út sjálf.
A Muppet Christmas Carol - Kermit er Guð. svo einfalt er það. og Michael Caine er ágætur líka. súper.
White Christmas - Bing Crosby, Frank Sinatra og hellingur af gerfilegum gerfisnjó…verður lífið eitthvað betra?
vér erum farnir að horfa á ædol. úrslitin eru að sjálfsögðu fixuð eins og í öllum almennilegum einræðisríkjum. vér vinnum. síðar þegnar.
12/4/2003 …hef ákveðið…
…að tala um sjálfan mig í þriðjupersónu hér eftir. er það að sjálfsögðu tilkomið vegna þess hve vér erum stórkostlegir, meiriháttar og á allan hátt ómótstæðilegir. Vér höfum einnig gert oss ljóst að alþýðlegur talandi pubulsins er oss á engan hátt samboðinn vegna mikkilleika vors. Gerum vér þá kröfu að vera hér eftir ávarpaðir sem “yðvar hátign” eður “yðar mikkilleiki”. Svo fyrirskipar hans stórfengleiki Jóhannes Frábæri I. Hlýðið maðkar.
vér erum farnir að dást að ásjónu vorri í lítilmótlegum spegli. síðar.
11/30/2003 …og þyrnigerðið hóf sig hátt…
…trallallala….dóttir mín að fara yfirum á þyrnirós í augnablikinu. stuð. og bara ellefu dagar í næsta kríli. enn meira stuð. bara stuð all over. jeeiiiii. ég sé fram á að maður verði frekar myglaður í vinnunni fyrstu mánuðina. og bara yfirhöfuð. allavega ef strákurinn verður jafn duglegur að vaka á nóttunni og Eygló var. Fyrstu þrjá mánuðina svaf ég standandi í eldhúsinu með barnið framan á mér, ruggandi til og frá, syngjandi “tveir kettir sátu upp á skáp kittivittivittbommbomm…” aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og… náði kannski að leggja mig milli sex og hálf átta. ef ég var heppinn. ég sé nú fyrir mér að í þetta skipti verði ekkert svoleiðis. prinsessan vaknar nebbla klukkan sjö til að fara í leikskólann…sé fyrir mér senuna á morgnana: Pabbi akkuru ertu með lokuð augun? Pabbi?… Pabbi?… Pabbi?… Pabbi?… Pabbi? …………..
…Loksins búið að stofna þetta blessaða kjennarafjelag. hér má skoða heimasíðu þess arna. Lítur bara vel út með starfsemina, fullt af áhugasömu fólki og gamangaman. það var nú gaman.
…ein ábending til minna gáfuðu nemenda: Það er ekki mjög gáfulegt að skrifa fréttir á Spassann þegar maður er þunnur eftir partí. bíða þar til þynnkan er búin. og hættiði nú að nauðga hátölurunum hennar Ólafar. Það hljóta fleiri að eiga heimabíókerfi sem hægt er að sprengja…tvisvar…
farinn að horfa á Pétur og köttinn Brand. í þriðja sinn síðan í morgun. síðar.
11/26/2003 …Færeyingar…
…rífa hár sitt og skegg í dag eftir að þessi frétt lak út á ljósvakann: 36 grindhvalir syntu sjálfviljugir á land á Jómfrúreyjum í morgun. Og auðvitað reyndu þessar asnalegu jómfrúr að bjarga þessum marsvínahræjum frá bráðum dauða með því að ýta þeim á flot. en hvalirnir létu ekki bjargast og dóu drottni sínum í fjörunni öllum til armæðu. Eftir standa áleitnar spurningar:
1. Eru hvalastofnar heimsins orðnir svo stórir eftir alla þessa friðunarvitleysu að hvalir eru farnir að stunda sjálfsmorðataktík lemúra til að fækka í hjörðinni? Eða var þetta kannski bara svona hvala kultgrúppa?
2. Verða þessir sjálfdauðu kvalir étnir með káli og kartöflum? eða jarðaðir með viðhöfn? Er nóg pláss í kirkjugarðinum í jómfrúnni? eða verða helvítin kannski sprengd í loft upp með dálitlu dýnamíti?
3. Af hverju máttu Færeyingar ekki éta þessar lífsþreyttu og augljóslega þjáðu skepnur. Eru líknardráp á hvölum líka bönnuð?
4. Þarf Grínpís ekki að grípa til aðgerða gegn þessari óvinveittu kvalaströnd? Verða óvænt teknir botnlokar úr fjörunni af handbendum Páls Watsonar, geðsjúklings? Við bíðum spennt.
5. Eru þeir með göngugrind eða klifrugrind?
6. Má líta svo á að Jómfrúreyjar hafi verið afmeyjaðar með þessu siðlausa uppátæki? Má líta svo á að þessir hvalir hafi verið óvenju stórvaxnar sáðfrumur sem dúndruðu sér á eina risastórt jómfrúreyjareggfrumu? Erum við að tala um stærsta typpi í heimi?….veit ekki…erfitt að segja…
7. Af hverju er þetta fyrsta frétt á forsíðu mbl.is? gúrkutíð dauðans?
8. Hvaða fífli datt í hug að kalla hval svín? Ekki reyna að klína þessu á Carl von Linné…
10. Hvar er spurning nr. 9?
11. Af hverju er ég ennþá að skrifa þegar brandarinn er augljóslega búinn að vera. heimskingi.
farinn að glápa á sjónvarpið. síðar.
11/24/2003 …Í tilefni þess…
…að sorptímaritið Rolling Stone hefur gefið út lista yfir 500 bestu hljómplötur sögunnar (Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band besta plata í heimi….frumlegt ekki satt…) hef ég ákveðið að skrifa upp svona lista líka. því eins og allir vita er ég mun betri tónlistarkrítíker en apakettirnir á skítasneplinum þeim arna. ég lifi samt ekki í tímatómi svo að ég mun ekki setja fimmhundruð plötur á listann minn. heldur ekkert allra besta eitthvað … aðeins tíu fallegar… in no particular order:
The Bone Machine - Tom Waits
In Utero - Nirvana
Appetite for Destruction - Guns ‘n’ Roses
Without you I’m Nothing - Placebo
Under a Bloodred Sky - U2
Lof mér að falla að þínu eyra - Maus
Live Through This - Hole
Is This Desire - P.J. Harvey
Arena - Duran Duran
og svo ein óvænt í lokin:
Ópera - Todmobile
farinn að sofa. síðar.
11/16/2003 …þetta er að verða…
…eitthvað letiblogg. allavega er þetta orðið gamall skítur sem er hérna að neðan. andskoti. ég verð að fara meira á fyllerí eða eitthvað svo líf mitt sé ekki svo aumkunarvert og leiðigjarnt að ég hafi frá engu að segja. eða bara ljúga einhverju.
…fór í gær á fyllerí. datt íða með fimm finnum nýkomnum til landsins í námsheimsókn. finnar eru fyllibyttur. fórum á Nasa og slettum úr klaufunum. endaði með því að einn finninn kýldi lögguna fyrir utan og við hinir hlupum í burtu meðan hann meig á hræið. húkkuðum okkur far í mosfellsbæ og duttum inn í partí hjá gulla bruggara. hann átti heimaframleitt öl í sultukrukkum til að bjóða þreyttum ferðalöngum og flóttamönnum undan lögunum. misstum einn finna í viðbót í mosó. dó í baðkerinu. klassík. rann á rassgatinu heim í bólið um klukkan átta í morgun. konan brjáluð. svaf í barnarúminu fram á daginn. bömmer.
…nei auðvitað var þetta svona nett lygasaga til að hressa upp á’etta. gamlar konur hrista höfuðið og fussa yfir því að svona fylliraftar skuli mennta ungdóminn. ekki furða að unglingar séu svona dónalegir… nei…náði ykkur aftur…gamlar konur kunna ekki á tölvur….bah!
nei…eyddi gærkvöldinu eins og gömlum karli sæmir. glápti á vídeó uppí rúmi með kók og nammi. já svona er lífið eftir þrítugt.
farinn að sofa. síðar.
11/7/2003 …fimmhundruðogsjötíustig…
…sæmilegt það. Í gær fór semsagt fram svolítil kennslustund í ræðumennsku í Fjölbrautarskólanum við Broadway. FB liðið lék á alls oddi, skemmti sér konunglega og fór á kostum. Guðjón opnaði með stórskemmtilegri liðsstjóraræðu sem var lítið annað en auglýsingar (er þetta yfirhöfuð leyfilegt? ;Þ ). Bragi talaði hraðar en er mannlega mögulegt í frummælendaræðunni og flutti 5mín:20sek texta á 4:40! Allir voru mjög hissa. Sérstaklega Hr. Hissa. Gísli tók einn súrann paranojukarakter á’etta í síðari umferð og var dreginn æpandi úr salnum. Gunnar slúttaði svo kvöldinu á því að sjúga flottustu hasspípu norðan alpafjalla í pontu. Í stuttu máli sagt held ég að FB-liðið hafi gefið stuðningsmönnum sínum það sem þeir áttu von á. fína skemmtun.
Ármýlingar voru hinsvegar ekki að dansa í þessarri keppni. Reynsluleysið var áberandi og ræðurnar voru meingallaðar, hömruðu alltaf á sömu hlutunum aftur og aftur og töluðu í raun aldrei beinlínis um efnið. Það er bara ekkert nóg að segja aftur og aftur “við mælum með kommúnisma af því að það er til fólk í Afríku sem fær ekki nóg að borða”. Kristján var sá eini sem hafði tekið þátt í morfís áður og stóð sig þokkalega. Hann þarf að taka framsögn og flutning í gegn hjá sér drengurinn sá. Var með ágæta frummælendaræðu. galllinn var að rökin í henni voru svo endurtekin í næstu fimm ræðum. Björg Ólöf stóð sig prýðilega og var að mínu mati best í FÁ liðinu (og reyndar voru flestir sammála um það heyrðist mér). Hún átti fína spretti, sérstaklega var seinni ræðan hennar vel flutt. Svörin klikkuðu hins vegar alveg hjá henni, alltof fá. Í heild virtist ekki hafa verið lögð mikil vinna í undirbúin svör og leið málflutningurinn fyrir það. Bjögga verður eitruð á næsta ári, reynslunni ríkari.
Baldur stuðningsmaður er líka reynslunni ríkari. Sjaldan hef ég séð ræðumann fara eins svakalega illa af stressi og taugaveiklun. Hann verður samt að fá hrós fyrir að gefast ekki upp og klára sitt hlutverk með sæmd.
jæja nú er þetta bara orðið leiðinlegt ræðunördablogg svo ég er hættur. Að lokum eru hér samt stigatölurnar fyrir aðra áhugsasama nörda:
FB 1648 stig - FÁ 1078 stig
570 stiga munur
Röð ræðumanna:
1. Gunnar Jónsson FB: 632 stig
2. Bragi Páll Sigurðarson FB: 618 stig
3. Gísli Hvanndal Ólafsson FB: 530 stig
4. Kristján Sveinlaugsson FÁ: 424 stig
5. Björg Ólöf Þráinsdóttir FÁ: 422 stig
6. Baldur Hrafn Gunnarsson FÁ: 357 stig
Þess má geta til gamans að fimm af átta keppendum eru fyrrverandi nemendur í Seljaskóla…Gunnar, Gísli, Guðjón, Björg Ólöf og Kristján. skemmtilegt.
farinn í þrítugsammæli. síðar.
11/5/2003 …All time shitty day…
…búinn a vera í dag. leiðinlegir nemendur. leiðinlegt veður, leiðinlegar fréttir, leiðinlegt líf. helvítis kúkalabbadagur. Ætla með kaffi í bæinn að knúsa konuna mína og fá smá energy búst fyrir kvöldvinnuna. Morfís á morgun og nóg eftir að gera. Verður eflaust fín keppni. allir mæta hressir og glaðir, kátir og graðir, súrrandi hamingja all around….ótrúleg hamingja…jeeeeeiiii…
lagstur í sjálfsvorkun. síðar.
p.s. yfirgnæfandi meirihluti landsmanna sagðist í könnun á vegum Gallup vera fylgjandi því að ég væri æðislega sæðislega getnaðarlega kynæsandi. oh please, tell us something we don’t know…..(hér myndi ég skrifa yfirlætislegan hlátur en það er því miður ekki hægt.) ný könnun fólk.
10/27/2003 …Akkúrat núna…
…er hann Axel scooterhommi að syngja dub,dub,dub,dududub,dubdubdubdubdub eða eitthvað þannig í sjónvarpinu mínu. ojjbara hvað þessi hljómsveit er viðbjóðslega komin fram yfir síðasta söludag. Það ætti að banna svona ógeð svo að eðlilegt fólk þurfi ekki að fá þennan ósóma í eyrun óforvandis. andskotans hljóðmengun.
…FB - FÁ morfísslagurinn verður á fimmtudaginn. stefnir í stuðkeppni. FÁingar búnir að fá fyrrverandi Versló-cum-FB ing í þjálfun. gott hjá þeim.
…tveri dagar í sweet vetrarfrí….namminamm.
farinn að glápa á eitthvað annað en skúterógeðið. síðar.
7/2/2004 …æi þaddna…
…hvað haldiði að ég nenni að vera að drulla eitthvað inn á netið þegar það er sumarfrí og gott veður? annars var ég bara að koma úr sveitinni. Það var fínt…fékk mér ís og sona…
…ég er orðinn leiður á blogger. hættur. farinn…yfir á blog.central.is/obsidian . sjáumst þar…lofa að vera duglegur að blogga núna….úje…
farinn að gera bara eitthvað, já bara eitthvað. síðar.
5/21/2004
…hugleiðingar…
…vegna áskorana verða nú birtar nokkrar hugleiðingar um vorið og tilveruna…í formi stærðfræðisannana.
Vorið=óþarfi: Við gefum okkur að veturinn á íslandi er langur. þar af leiðir að allir eru leiðir á honum. Þá sést að vorið er kærkomin tilbreyting. En þar sem Bubbi segir að sumarið sé tíminn og augljóst er að allir myndu fremur vilja fá sumar strax í apríl frekar en tvo mánuði af rigningu og leiðinda vorveðri þá er vorið þar með óþarft. Q.e.d.
…ókei þetta er kannski ekkert að virka. Ég sá hins vegar auglýsingu um þýska klámsýningu á listahátíð í mogganum áðan. gaman að því að menn séu loksins farnir að líta á klám sem list. Þetta styður það sem ég hef haldið fram í mörg ár…munurinn á klámi og erótík er í raun enginn. Klám er bara erótískt raunsæi. Og klám á sviði…? Ég spái því að þetta fái góða dóma í mogganum. Þetta er að vísu sett fram í gerfi danssýningar en það eru allir berir að sveifla brjóstunum og eitthvað…þýskt klám…hmmmm…mér finnst ég hafa heyrt þessa hugmynd áður…. Mesdames et messieurs, le dans pour la pronographia…
farinn að bögga krakkaskrímslin. síðar.
5/7/2004 …byrjum á…
…þessu hérna:
Die Anallösnung
3. þáttur, 2. sena - Ríkiskanzleríið í Berlín, 3. september 1939.
Tjaldið lyftist. Sviðið er autt. Um baktjaldið leika myndir af stórsókn Þjóðverja inn í Pólland. Hljómsveitin leikur fjörugan Radedzky marsinn undir fallbyssudrunum sem virðast koma úr fjarska. Öðru hverju bregður fyrir myndum af hópkynlífi fólks í einkennisbúningum. Adolf strunsar inn á sviðið, hamingjan uppmáluð. Hann rífur sig úr buxunum og hristir sláturkeppinn í átt að salnum til að sýna gleði sína. Hann er svo glaður að hann kallar ástúðlega á Göbbels með léttum söng: “Kom hier mein geile, untaugliche gimpchen…”. Göbbels valhoppar ínn á senuna undrandi yfir þessari óvæntu athygli. Hann trúir vart sínum eigin getnaðarlim þegar Adolf tekur hann í munn sér. Loks hafa allir draumar hans ræst. Hann syngur hástöfum nautnaaríuna “Mein Führer mich doch liebt und mich knallen möchtet…” sem nær hámarki í þriðja erindinu: “Ich komme, ich komme, jetzt bin ich ja ein homme…” á meðan Adolf hamast við að kyngja. Á meðan hljómsveitin skiptir snöglega yfir í “Deutchland Über alles” beygir Adolf Göbbels yfir voldugt mahoganískrifborð og veitir honum 26 vel útilátin vandarhögg. Göbbels skríkir af unun og roðnar á rasskinnunum. En þegar hæst stendur hleypur Göring inn á sviðið, eða öllu heldur vaggar másandi eins og ofalin gæs. Hann hrópar upp yfir sig er hann sér hvað fram ferá skrifborðinu og leysir niður um sig. Göbbels missr andann þegar kjötfjallið hlammar sér aftan á hann með látum og stynur aríettuna “Die Briten möchten uns rüber bumsen…” á meðan hann hrærir sér kakóbolla með rjóma. Adolf grípur tækifærið og notar hinn endann á meðan. Þegar hér er komið við sögu verður Evu Braun litið inn í skrifstofuna. Hún ærist er hún sér ástmenn sína alla þrjá hafa mök hvorn við annan, tætir utan af sér fötin og gerir tilraun til að kyrkja sig með brjóstahaldaranum. Til allrar hamingju er hann úr teygjanlegu efni. Hún blánar þó nokkuð og hvæsir hásri röddu hatursaríuna mikilfenglegu “Ich bumse nie einen anderen Mann, ich wille nur masturbatieren / und ich schneide Ihre Kugeln von eins nach dem anderen…” Adolf fyllist örvæntingu yfir hatri heitkonu sinnar, sækir skæri og klippir undan sér vinstra eistað. Á meðan öskrin deyja út er sviðsmyndinni skipt yfir í stríðsmálaráðuneytið í London þar sem Winston Churchill situr klæðalaus með kúluhatt í víðáttumiklum sófa. Hann leikur hjólalásaleikinn “inn, út, inn, inn, út” við laglega símadömu með þykkum kúbuvindli á meðan hann syngur bassaaríuna “Hitler, he only had one ball, Göbbels, had two but very small / Himmler was very similar, but herr Göring had no balls at all…..” Tjaldið fellur.
Fetish dagsins: Plushies: Sexual play involving stuffed animal toys.
farinn heim. síðar.
5/3/2004 …hérna er pæling…
Það er í alvöru til pizzastaður sem heitir:
…Pizza Mongó…
farinn heim. síðar.
4/30/2004 …mér finnst…
…þetta og þetta vera skemmtileg dæmi um hvað fólk leitar að súrum hlutum á netinu og enda inni á síðu hjá mér. sniðugt…
…er núna að leika mér í tölvunni eins og framhaldsskólanemi í leiðinlegum þýskutíma…nema ég er í tölvufræðitíma….og ég er kennarinn……ehemmm….vonum bara að skólastjórinn sé ekki að lesa……..
…mínir misþroskuðu nemendur eru í þessum töluðu orðum nebblega að leysa stórskemmtilegan vefleiðangur sem ég lagði fyrir….ahhhh….það besta við vefleiðangra er sú staðreynd að þeir krefjast minimal vinnuframlags frá kennaranum…mjög heppilegt eftir hádegi á föstudegi þegar kennarann gæti drepið fyrir einn ííískaldan svona…
…Er yfirhöfuð orðinn þreyttur á krakkaskrímslum…er að spá í að setja svona skilti á hurðina hjá mér: Varúð! Kennarinn bítur!
Fetish dagsins: Auxiliary intercourse: Sexual climax achieved by moving the erect penis
back and forth in the armpit. Also known as bagpiping.
farinn að bögga krakkana. síðar.
4/27/2004 Die Anallösnung 3. þáttur, 1. sena
Die Anallösnung
3. þáttur, 1. sena - Moskva/Berlín. Griðasáttmálinn í ágúst 1939.
Eftir hlé.
Hljómsveitin geysist inn í æðisgengið kósakkaþjóðlag. Tjaldið lyftist og í ljós koma tuttugu kósakkar sem flögra um á sviðinu í akróbatískum dansi sínum. Þeir eru klæddir gráum kósakkaloðhúfum sem ásamt tröllauknum getnaðarlimum þeirra varpa ofsafengnum skuggamyndum á baksviðið. Þeir kyrja hinn fræga Kósakkakór: “Мой ишак кровоточит от Stalin подпаливания / Mér finnst sem görn mín blæði eftir Stalíns einnar nætur æði…” (innskot þýðanda: Kósakkakórinn þykir afar hátíðlegur og er ákaflega vinsæll hjá áhugamannakórum um allan heim sem syngja hann gjarnan á aðventunni). Í lok kórsins birtist Félagi Stalín á senunni með beinstífann félagann út í loftið. Hann leiðir Vladimir Molotov með sér í hundaól. Molotov emjar ámátlega í svörum latexbúningnum sem hylur líkama hans frá toppi til táar. Félagi Stalín opnar ástúðlega skínandi rennilásinn fyrir munni Molotovs og innan út latexinu hefur sig undurfögur sópranrödd sem dásamar tilvist Kommúnistaflokksins og Félaga Stalíns í hinni undursamlegu aríu: “Oригинал может я вылизать ваши ботинки / Leyfist mér, ó herra, að leika tungu við támjó stígvél yðar…” Joachim von Ribbentrop birtist við hlið hans og saman ljúka þeir aríunni í tvísöng sjálfspyndaranna “Прочность и утеха дают, вы я к мне все люди / Der masochismus gibt mir kraft und freude, quälen Sie mich alle leute…” á meðan Stalín ber brund í yfirskegg sitt til að það glansi betur. Á meðan þessu fer fram bíður Adolf taugaspenntur í Ríkiskanzleríinu eftir niðurstöðu samninganna. Til að losa um spennuna hefur hann mök við ritara sína hverja á fætur annarri. Þegar kemur að jungfrau Heidi Herzenberger berst símskeyti til foreingjans. Samningar eru í höfn. Adolf kætist svo mjög að hann serðir símskeytastrákinn og jóðlar í gleði sinni “Ich bin ein Österreichischer knecht der wollt die ganzer welt unten vor mir knien…” um leið og hann hittir á háa céið í lokin fyllist símastrákurinn af heitum safa og Jungfrau Herzenberger dæsir af vonbrigðum. Til að fullnægja fýsnum sínum leitar hún á Göbbels sem er nærstaddur. Ástarlot þeirra eru vélræn og án ástríðu og tónlistin ber vott um þrá eftir sterkum karlmanni sem táknmál tónanna tjáir með djúpri röddu fagottsins. Þau makast. Tjaldið fellur.
Fetish dagsins: K/S: Erotic material featuring the original the Star Trek main
characters Kirk and Spock having sex with each other.
farinn að sofa. síðar.
4/16/2004 …fór á tónleika í gær…
…bara meiraðsegja tvenna….Kalli var með mér og tók myndir og náði sér í kontakta. sáum fyrst Coral, Hljóðlæti og Lada Sport í hinu húsinu…það var ágætt….Hljóðlæti komu skemmtilega á óvart, bara þrælskemmtilegir eiginlega. Lada Sport voru hins vegar ekki jafn skemmtilegir….soldið eins og þeir væru að reyna of mikið eitthvað….voru ekki alveg að virka fyrir minn smekk.
…en svo fórum við á Gaukinn og sáum Coral aftur….það var gaman…ef ég ætti heima á selfossi myndi ég segja Schnilld…en af því ég er ekkert svona selfoss þá segi ég bara drullugóð hljómsveit með tommuþétt efni. vá hvað ég kann að tala kúl. Big Bang var bilað gott, svona sogar mann inn í millikaflann. namminamm Coral.
síðar stigu á svið stoneslinger (að mig minnir) og þeir voru þéttir en helst til hávaðasamir og voru enhvernveginn að týna sér í látum…það var eins og bassaleikarinn gleymdi að hann væri í hljómsveit með fjórum öðrum og var í einhverjum geðbiluðum einkafíling á sviðinu. Þessi hljómsveit hefði getað sleppt söngvaranum því hann bara týndist í öllum látunum. Hann hafði reyndar haft fyrir því að drösla með sér ryksugunni sinni að heiman til að geta notað hana sem effekt í 30 sekúndur meðan hann var að tala til að kynna hljómsveitina. undarlegt..
…og núna suðar fyrir eyrunum á mér….svona er ég orðinn gamall. get ekki farið á smá tónleika öðruvísi en að vera hálfheyrnarlaus í marga daga á eftir. slappur.
farinn að leggja svínþungt eðlisfræðipróf fyrir 8. bekk. múúhúahahahahaha… síðar.
4/7/2004 …þegar maður setur kæfu á brauð…
…þá skiptir miklu máli hvurnig kæfan er breidd út á sneiðina. allra mikilvægast er að jafnt sé smurt, ekki neinar mishæðir hér og þar og svo barasta hálf kæfulausir helgidagar á milli. Það er óskaplegt og óétandi þegar kæfubrauðsneið tekur upp á því að vera soldið eins og Danmörk…aðallega flöt en samt með nokkrum smáhólum inn á milli. kæfa hefur nebblega þann leiða ávana að safnast í hóla og hæðir þegar hún er smurð. sussubía. það má ekki. Svo þarf líka að passa upp á að það sé nokkuð þykkt lag af kæfunni á brauðinu. Það er ekkert ómatarlegra en brauðsneið með þunnu stjúpmóðurlagi af kæfu á. Sérstaklega skal þó varast þann ósið að setja kæfu á nýristað brauð, því fátt er ólystugra en kæfa sem bráðnar niður í frumþætti sína á heitri brauðsneið. Því enginn vill í raun og veru vita úr hverju kæfa er upphaflega. Kæfa er bara “afurð” svona svipað og pylsur. Við vitum alveg innst inni að það er allskonar uppsóp úr sláturhúsinu í þessu en við viljum ekkert endilega komast að því hvað það er eða hvernig það er maukað saman í smáatriðum. Því þá er hin ljúffenga sjálfsblekking ónýt og við þurfum að fara að borða eitthvað annað ofan á brauð, jafnvel gráðost. og svo vitlaus erum við ekki. það besta við kæfu eru hins vegar hinir endalausu “ofaná” möguleikar. það er nebblega hægt að setja hvað sem er ofan á lystilega smurða kæfubrauðsneið. allt frá hinum göfuga ávexti paprikku til exótískari páleggja eins og súrra agúrkna og annarsskonar pikklesafurða. En hið fullkomna meðlegg sem allar kæfubrauðsneiðar dreymir um að vera étnar með eru að sjálfsögðu rauðbeður. Gott rúgbrauð, fagurlega smurt með gómsætri kæfu og vel útilátnum skammti af þykkum rauðbeðusneiðum er dýrindismatur.
Fetish dagsins: Dog in a bathtub: The act of inserting testicles into partner’s anus, so
called for being as tricky as its namesake.
farinn að klára kæfubrauðið mitt. síðar.
4/2/2004 …Jæja þá…
Die Anallösnung
2. þáttur, 2. sena - Münchenarfundurinn 1938, að kveldi annars dags.
Tjaldið lyftist. Neville Chamberlain stendur einmana á miðju sviði íklæddur bláteinóttum kjólfatajakka. Prins Albert hringurinn sem hann ber með stolti er læstur við annan hring í náranum svo honum getur ekki risið hold. Hokinn maður, beygður undan pressunni sem á honum hvílir. Á sviðsmyndina er málað mannhæðarháum, blóðrauðum stöfum: “Friðþæging eða fullnæging”. Í ljúfum, angurblíðum tenór syngur hann um heimsfriðinn sem hann elskar svo heitt: “Peace in our times because my balls hurt…”. Eftir því sem líður á aríuna hópast inn á sviðið kór naktra súdetaþjóðverja sem dansa klámfenginn skottís og taka undir í viðlaginu “Oh, his balls are so blue but his heart is so true/We’ll fuck the Chzecks in the asshole for you…”. Að lokum bera þeir Chamberlain á höndum sér út af sviðinu. Ljósin dofna. Í fundasalnum hafa Adolf og Mussolini komið sér fyrir á rúmgóðum dívan. Þeir makast ástríðufullt og stynja dúettinn “Ja, knepp mich wieder in das archloch bitte/Sì scopilo nell’asino ancora per favore…”og einkahljómsveit foringjans leikur undir léttan hergöngumars. Um leið og Mussolini fyllir Adolf af ítölskum ástarsafa hleypur Chamberlain inn og skrifar undir Münchenarsáttmálann í flýti. Adolf æpir upp yfir sig af ánægju og unaði og missir þvag. Við þá sjón æsist Chamberlain mjög og saman syngja þeir þríkantinn “Heavenly Golden showers/Ein Himmlischen Pissfest…” á meðan Chamberlain engist um af unaði undir fagurgullinni sturtu. Í því birtist Göbbels íklæddur fagurrauðum, hlýralausum pallíettukjól í tilefni dagsins. Hann dæsir af angist og sorg við sjónina sem við honum blasir og leggur bölvun á Mussolini og aðra ástmenn síns ástkæra foringja í hinni magnþrungnu hatursaríu “Ein Fluch auf Ihrem Schwanz habe ich meine Rache…”. Hann er snarlega stöðvaður í miðju fimmta erindinu þegar Mussolini hendir í hann tusku og skipar honum að þurrka upp sóðaskapinn. Adolf og Mussolini draga Chamberlain burt á typpinu og fleygja honum útpissuðum út í salinn. Hann skríkir ennþá af ánægju. Er þeir félagar ganga hönd í hönd upp til svefnherbergis Adolfs liggur Göbbels á hnjánum. Hann þurrkar rólega upp þvag (og aðra líkamsvessa) þjóðarleiðtoganna þriggja og raular fyrir munni sér lok aríu sinnar með hinum ógurlegu formælingum sjötta erindisins
(sem er oftast klipt út úr sjónvarps og DVD útgáfum óperunnar ef börn skyldu vera að horfa). Tjaldið fellur.
Af því að þetta blogg er hvort eð er komið út í tóman sora þá finnst mér upplagt að setja inn nýjan fastan lið hérna sem mun bera heitið fetish dagsins. Fann nefnilega svona lista með svoleiðis sem er barasta fyndnari en allt fyndið. Nema kannski fyrir þá sem eru haldnir þess konar fetishum…þá er þetta náttúrulega bara fúlasta alvara og ég er dóni. but who cares.
Fetish dagsins: Crating: S&M practice in which a master packs his slave in a crate and
sends him to friends by post.
farinn í páskafrí. síðar.
3/26/2004 …á fés mitt læddist lítið bros…
…þegar ég sá á teljari.is að einhver pervertískur fransmaður hefur komið í heimsókn á síðuna mína eftir að hafa slegið inn á google.fr leitarorðið pornopera. skemmtilegt. óperan mín er orðin heimsfræg. bravissimo. Það er þá máske kominn tími til að birta næsta þátt þessarar stórkostlegu óperu (líka svo oddur broddi brenni ekki yfir af spenningi). annars er pæling í þessu hvers vegna menn eru almennt að leita að klámóperum á netinu? eru kannski til klámóperur í alvörunni? hefur Kristján Jóhannsson sungið nakinn í einni slíkri. ó mér varð skyndilega óglatt. bless
farinn að gubba. síðar.
3/25/2004 …fór á Passion of the Christ…
…vá. þessi bíómynd er lífsreynsla. Í fyrsta og eina skiptið er ég sammála Gunnari í Krossinum um eitthvað.
farinn að gera eitthvað innihaldsríkt við líf mitt. síðar.
3/22/2004 …lesendur farnir að æpa á klám…
…enn einu sinni. er að setja saman svaðaleg twist á handritinu í huganum as ví spík. kemur bráðum.
…í öðrum fréttum er það helst að ég plataði veturinn á laugardaginn og grillaði með góðu fólki. fór með bjór út á gras eins og það væri 15 stiga hiti og veturinn varð svo undrandi að það kom sól. Jóhannes 1 veturinn 0.
…er alveg súrrandi andlaus í dag. dúddídúddída. hér er ekkert að gerast nema einhverjar skrækjandi gelgjur frammi á gangi. ég þarf að fara að komast á almennilegt kenderí. spurning um að taka kojustemminguna á ‘etta í miðri viku eins og alvöru alkóhólisti. Annars er það merkilegt að á Íslandi er hægt að vera stórkostlega fullur föstudaga og laugardaga um allar helgar og þynnri en mjög þunnur hlutur á sunnudögum og það er bara normal og kúl. Hins vegar er maður fokking alki ef maður fær sér viskí á miðvikudegi. já svona er ísland í dag…
…og jón ársæll er genginn af göflunum og farinn að taka viðtöl við geðbiluð níræð morðkvendi. Ég hélt að þessi þáttur héti “Sjálfstætt Fólk” en ekki “Innilokað Á Réttargeðdeild Og Búið Að Henda Lyklinum Fólk”
- Jón Ársæll: ” Þú ætlaðir nú ekkert að drepa þessa tvo eiginmenn þína var það? þú varst bara svona sjálfstæð var það ekki?”
- Munda geðbilaða: “jújú ég ætlaði víst að drepa þá, ég er sko geðbiluð sjáðu til.”
- J.Á.: “einmitt en þú varðst að gera það vegna þess að þeir voru vondir við þig var það ekki? Þú hafðir mjög góða ástæðu ekki satt?”
- Munda geðbilaða: “neinei ég er bara svo geðbiluð sko. alveg kúkú.”
- J.Á.: “já … ahaha…en svona í alvöru þá voru þeir búnir að misþyrma þér eitthvað og svona er það ekki…?”
- Munda geðbilaða: “neinei þeir voru fínir, ég er bara svo klikkuð að ég drep fólk. alveg snældugeðbiluð maður.”
-J.Á.: “vá…þú ert þá bara svona geðbiluð eftir allt saman…er það þessvegna sem þú heitir Munda geðbilaða?”
- Munda geðbilaða: ” já maður ertu eitthvað klikk..nei djók…það er ég sem er klikk…híhí…”
- J.Á.: “nú heyrðu þá hefði ég kannski ekki átt að fara með þig í kaupfélagið og kirkjugarðinn og svona heldur hafa þig áfram á bak við lás og slá?”
- Munda geðbilaða: “já … en nú ætla ég að drepa þig með fölsku tönnunum mínum komdu hérna svo ég geti nagað þig í hálsinn…sjitt hvað ég er klikkuð maður…”
- J.Á.: “ókei…æi…æi…hættu að naga mig í hálsinn geðbilaði gamlingi…”
- Munda geðbilaða: “nei…þú ert góður á bragðið…kysstu mig”
- J.Á.: “ókei”
- J.Á. og Munda geðbilaða: “uuhhhmmmmmmmlllmmmmslurpslefkjamms”
farinn að gata pappír (já það er fjölbreyttur starfi sem kennarinn innir af hendi). síðar.
3/9/2004 …Verð bara að birta þetta…
… mér blöskrar svo vitleysan sem menn eru farnir að setja fram í nafni málfrelsis án þess að vita neitt um hvað þeir eru að birta.:
Gagnrýni á grein Mark Weber: “Auschwitz: Þjóðsögur og staðreyndir” sem birt er á http://www.gagnauga.is og http://www.sigurfreyr.com
Mark Weber er ritstjóri “Journal of Historical Review” sem er eitt helsta tímarit endurskoðunarsinna á sviði sagnfræði. Þeir stæra sig af því að efast um helst bara allt sem hefur hingað til verið viðtekin söguskoðun, hvort sem um er að ræða helförina eða annað. Þeir þykja nú ekki sérlega fínn pappír í sagnfræðiheiminum. David Irving er þekktastur þessarra sagnfræðinga.
Ég las þessa grein og mér sýnist nú að flest það sem þar kemur fram sé vafasamt. Annars vegar er þar ýmislegt sem í raun skiptir engu máli, t.d. klausan um Önnu Frank og föður hennar sem er augljóslega höfð með í því augnamiði að vekja einhver samúðarminni hjá lesandanum. Spurningin sem Weber slengir fram í lok þess kafla um að “þau feðgin hefðu nú ekki lifað svona lengi ef nasistarnir hefðu ætlað sér að drepa þau” er einfaldlega lélegustu rök sem ég hef heyrt. Anna Frank dó. Hún var ein af milljónum og hvort hún persónulega dó strax eða seinna skiptir ekki nokkru einasta máli. Hér er einungis verið að nota þekkt nafn á aumkunnarverðan hátt í tilraun til að tengja lesandann við textann.
Flest rök Webers í greininni eru eitthvað sem er fyrir löngu búið að hrekja, eins og til dæmis “Leuchter skýrslan” sem hélt því fram að gasklefarnir hefðu ekki getað virkað eins og haldið var fram. Það eru fáir sem leggja trúnað á Leucther skýrsluna í dag því að hún hefur verið hrakin algerlega og sýnt fram á að hún er í raun tilbúningur á köflum þar sem Leucther er að geta í eyðurnar varðandi útlit og noktunarmöguleika bygginga sem voru sprengdar í loft upp árið 1945!
Varðandi Fred Leuchter og skýrsluna sem hann gaf um þetta efni í Ernst Zündel réttarhöldunum á sínum tíma get ég bent á afar góða síðu sem hrekur röksemdir skýrslunnar lið fyrir lið og þar er vísað í mun traustari heimildir en Mark Weber gefur upp í greininni þeirri arna. Þarna er til dæmis bent á að Leuchter villti á sér heimildir og var ekkert verkfræðingur eftir allt saman, heldur bara sjálfskipaður besserwisser. Þetta má finna á http://www.faqs.org/faqs/holocaust/usa/leuchter/part01/ og er mjög góð lesning. Einnig er þarna vísað í fleiri skjöl sem vert er að skoða viljii menn kynna sér útrýmingar búðirnar nánar.
Annar fræðimaður sem Weber vitnar í er William B. Lindsey efnafræðingur. Hann var einnig vitni verjenda í Zündel málinu og hélt því fram að Zyklon B hefði aldrei drepið neinn í útrýmingarbúðunum, m.a. vegna þess að dyrnar hefðu verið óþéttar tréhurðir og gasið hefði getað lekið út. Þetta byggði hann á ályktunum sem hann dró af því sem hann sá á staðnum í kring um 1980. Hins vegar er ekki til nema ein hurð sem er talin vera af gasklefunum sjálfum og sú er rammgerð járnhurð styrkt með stálboltum yfir hana þvera. Þeirri gerð ber saman við framburði vitna úr búðunum sjálfum. Lindsey er því á villigötum hér. Einnig hélt hann því fram að kristallarnir hefðu ekki getað leyst upp nógu fljótt því að það hefði verið of kalt í klefunum sem voru neðanjarðar. Hann varð hins vegar að játa að það hitnar fljótt í kompu þar sem 100-200 manns er troðið inn, og suðumark kristallanna er einungis 26 gráður! Þessi fullyrðing hans féll því um sjálfa sig. Framburður Lindseys hefur því jafn lítið vægi í þessari umræðu og framburður Leuchters. Jafnvel endurskoðunarsinninn David Irving hefur lítið álit á William B. Lindsey og “sérfræðiáliti” hans.
Weber eyðir í greininni miklu púðri í að sannfæra lesandann um að margt hafi breyst í áliti og þekkingu manna á Auschwitz og þeim fjölda sem dó þar. Það er svo sem alveg rétt að flestir eru nú sammála um að það sé fáránlegt að halda að fjórar milljónir hafi dáið þar. Sú tala er að öllum líkindum einhversstaðar á milli 900 þúsund og 1.6 milljónir, meirihlutinn gyðingar. Hér erum við að tala um einar útrýmingarbúðir og það breytir því ekki að fjöldi gyðinga í Evrópu var 5.7 milljónum færri eftir stríð, þar af er talið fullvíst að rúmlega fjórar milljónir hafi fallið í útrýmingarherferð nasista á stríðsárunum.
Villan sem Weber gerir hins vegar er að leggja út af þessari eðlilegu heimildaendurskoðun sem orðið hefur síðan 1945 og leiða af því að þess vegna verði að endurskoða helförina alla, hún hafi aldrei farið fram. Þar liggur skyssan hjá honum.
Það segir sig sjálft að sagnfræðingar líta ekki sömu augum sögu stríðsáranna nú sextíu árum síðar eins og sigurvegararnir gerðu strax við lok stríðsins. Margt af því sem þá kom fram hefur sýnt sig að var ranglega áætlað,t.d. hafa játningar nasistaforingja við Nürnberg réttarhöldin ekki sama vægi nú og þær gerðu þá. Hins vegar hafa komið fram í dagsljósið ýmis ný gögn sem varpa ljósi á málið, t.d. framburðir vitna, bæði fanga og gæslumanna í búðunum sem hafa verið að tínast saman til að mynda heildarmynd af því sem þar gerðist og það sem meira er að í langflestum tilfellum ber þessum vitnisburðum saman um að skipuleg fjöldamorð hafi í raun átt sér stað í Auschwitz og öðrum útrýmingarbúðum nasista. Einnig hafa komið í leitirnar skjöl og jafnvel ljósmyndir sem renna stoðum undir helförina.
Allt þetta kýs Mark Weber að þegja um og þar gerir hann sig sekann um mjög stóra fræðilega skyssu. Hann lítur einfaldlega fram hjá þeim heimildum sem ganga gegn þeirri lokaniðurstöðu sem hann vill sjá. Tilgangurinn ræður heimildanotkuninni og hann minnist ekki á það sem kemur æskilegri niðurstöðu illa. Ég sem sagnfræðingur tek því ekki nokkurt einasta mark á því sem Mark Weber er að skrifa í þessari grein, til þess er of margt í henni sem er einfaldlega rangt eða byggt á lélegum og/eða vafasömum heimildum svo vægt sé til orða tekið.
Það sem mér þykir verst í þessu er að maður er endalaust að heyra um og sjá greinar og skoðanir frá fólki sem í raun veit ekki betur og heldur að þetta séu góðar greinar og traustar heimildir. Það eru svo fáir sem í raun reyna að finna báðar hliðar á málinu og taka svo gagnrýna afstöðu. Þau halda að þetta sé bara kúl samsæriskenning þegar í raun er um að ræða líf milljóna manna. Greinar eins og þessi eftir Mark Weber er einfaldlega slæm og illa unnin sagnfræði og gera engum gagn, hvorki okkur né málfrelsinu.
farinn að pósta þetta út um allt. síðar.
3/8/2004 …fyndið…
…hvað fjölbreytt fólk dettur inn á síðuna mína…hér eru nokkur dæmi um vefleitir sem hafa vísað fólki á garak.blogspot.com:
anur sex , stærsta typpi í heimi , Árni Johnsen , placebo guðjón pabbi , íslensk kjötsúpa , Björg Ólöf , lord of the rings gulum , free xxx movies , Jólaósk önnu bellu , qi-gong , Steingrímur S. Ólafsson , “jonni” ð , brittney bhangra , broddgöltur , star wars atriði þegar strákur var að leika sér með sverð , tjulla , scooter mussik , íslenskir þjóðernissinnar , “uss makeshitup” , Pippi tjulla o.s.frv…
Þetta var hugsanlega tilgangslausasta bloggfærsla í heimi.
farinn í existentíalíska kreppu. síðar.
3/8/2004 …fór að spá í…
hvaða kvikmyndir ég hef horft oftast á í gegnum árin. Fyrir utan teiknimyndirnar sem keyra hérna á hverjum degi. Hér keeeeemur Lííínaaaaa, Lííína heiti ééééééég….Laaaaangsokkur kemur eftir svooooooooooo…..(grrrr, aaargh) Komst að því að þeta er efni í Fimm lista vikunnar. já og ég er að pæla í að hafa svonaFimm lista vikunnar bæ ðe vei. Allavega þessa viku.
Fimm kvikmyndir sem ég hef horft á oftar en tíu sinnum:
1. ¡Three Amigos!. fyrsta myndin sem ég fór á oftar en einu sinni í bíó. fór þrisvar í regnbogann. mamma hélt ég væri orðinn skrýtinn. stórkostleg mynd. áætlað áhorf a.m.k. 20 sinnum. Tók hana auk þess upp á hljóðsnældu þegar hún var sýnd í bílabíóinu við Miklagarð (hver man ekki eftir því) og hlustaði á hana svona fimmtíu sinnum. Var næstum lagður inn á stofnun af foreldrum og vinum. Besta móment: Þegar Chevy Chase skýtur ósýnilega riddarann. “You idiot…you killed the invisible swordsman…”
2. The Fifth Element. meiriháttar mynd. á’ana og horfi á’ana reglulega. frábær. ógrynni stórkostlegra karaktera. Chris Tucker í eina hlutverki ferilsins sem hæfir hans fáránlega skræku rödd. áætlað áhorf a.m.k. 13 sinnum. Besta móment: “Chicken, good”
3. Just one of the guys. Þessi fær að vera með af þeirri einu ástæðu að þetta var uppáhaldsmyndin mín fyrir mörgum mörgum árum. eintakið í Gerplu á Sólvallagötunni er of slitið til að spilast lengur. Var leigð svona hundrað sinnum þegar ég var um það bil tólf ára. man ekkert úr henni annað en það að hún fjallaði um stelpu sem var að þykjast vera strákur í nýja high skúlinum sínum og varð ástfangin af einum fótboltagaurnum. eftir á að hyggja er tiltölulega auðvelt að giska á hvað það var sem gerði þessa mynd svona vinsæla….það var pottþétt atriðið þar sem hún er að sanna fyrir gaurnum að hún sé í raun og veru stelpa en ekki strákur….brjóst + tólf ára strákur árið 1985. do the math.
4. Waynes World. Fór fjórum sinnum í bíó á þessa, þar af þrjá daga í röð. Okkur Ásgeiri var næstum hent út af fjórðu sýningunni fyrir að skemma myndina fyrir hinum. vorum alltaf byrjaðir að hlæja eins og geðsjúklingar svona mínútu á undan hverjum brandara. Ein besta gamanmynd sögunnar. Áætlað áhorf a.m.k. 25 sinnum. Besta móment: “Have you seen this boy?”
5. The Empire Strikes Back. Stórmynd. Stórkostleg. Stórbrotin. nuff said. áætlað áhorf a.m.k. 20 sinnum. Besta móment: “Han, I love you…!” - “I know.”
Farinn að kvelja krakkana. síðar.
3/5/2004 …ég krefst þess…
…að sjúkdómar verði lagðir niður. þeir eru pirrandi.
farinn að hósta upp slími. síðar.
3/3/2004 …jæja þá…
…setjið ykkur í stellingar því hér kemur þriðji hluti…
Die Anallösnung
2. þáttur, 1. sena - Sumar í Berchtesgaden
Tjaldið lyftist. Mikilfengleg sviðsmyndin sýnir Obersalzberg í blómskrúði. Fuglar syngja. Dádýr skoppa. Allt er í sóma. Á rúmgóðum svölum breiðir Adolf úr sér sólstól og viðrar foringjapylsuna. Hann raular “Mein Penis ist leistungsfähig und stattlich…” og rís sjálfsánægjulega hold. Göbbels birtist á svölunum í svörtum þernubúning með hvíta blúndusvuntu og í nælonsokkum. Hann tilkynnir andstuttur komu Mussolinis sem strunsar framhjá honum með hökuna út í loftið og slær hann á blúnduklæddan bossann. Adolf bregður svo að hann fær sáðlát út um allt. Mussolini hefst handa við að sleikja það upp og syngur á meðan hina ógnþrungnu aríu “Il mio gusto del penis gradisce le fragole…” Er hann lepur síðasta sultardropann syngur Göbbels vonarsönginn “Ich wünsche, daß es ich das Führers Schwanz saugend war…” með öfundarglampa í votum augunum. Adolf og Mussolini fallast í faðma, kyssast sæðisblautum kossi og syngja hinn margfræga dúett “Zusammen bumsen wir die ganze Welt im Arschloch… / Scoperemo il mondo intero nell’asino…”. á meðan þeir dansa um svalirnar. Göbbels hleypur grátandi út af sviðinu. Ljósin dofna og söngurinn deyr út í kossaslurpi og unaðsstunum. Tónlistin hljóðnar. Myrkur. Einmana ljóskeila opnast á sviðinu. Göbbels liggur í fósturstellingu í herbergi sínu. Hann grætur ámátlega. Allir veggir herbergisins eru útkrotaðir í stórum stöfum: “Adolf ég elska þig” og “Klumbufótur er ekki það sama og klumbutyppi”. Hann rís upp þegar Eva Braun gengur inn, íklædd leðurkorseletti. Göbbels beygir sig yfir rúmið og Eva lætur svipuna ganga á honum nokkra stund meðan hljómsveitin leikur fjörugan madrigala. Hann dæsir af fullnægju í fyrsta sinn síðan 1926 og saman leggja þau á ráðin um að stía sundur Adolf og Mussolini í hinum stórfenglega tvísöng “Wir bumsen Adolf, bis es blutet…” Þau hlæja geðsýkislega. Tjaldið fellur.
farinn til læknis að losna við streptodraslið í hálsinum á mér. síðar.
10/24/2003 …ég hef ekkert að segja…
…vildi bara segja það…
farinn að þegja. síðar.
10/22/2003 …ég var að fá alveg stórskemmtilegar fréttir… …
…því einmitt þegar ég var að lesa bæjarins beztu fréttir nú rétt í þessu komst ég að því að mér hefur verið bætt á linkalistann á þeirri stórgóðu síðu. Er mér mikill heiður að því og vil hér með þakka hrósið. Það er greinilegt að ég er orðinn frægur. loksins. bloggfrægð á íslandi. húrra. betarokk ít jor hart át. kannski ég ætti að gefa út rapplag. eða skrifa bloggbók, sofnað í Haag. já möguleikarnir eru óþrjótandi.
Frétt dagsins: Menningarmálaráðherra Kína í opinberri heimsókn… Jæja enn einn kínverjinn í heimsókn. Svo virðist sem að fundist hafi einn kínverji af þessum tólfhundruð milljónum sem sem ekki ber með einhverjum hætti “ábyrgð á blóðbaðinu á Torgi hins himneska friðar” (sagði ég þetta rétt?).
Því miður fáum við víst engin almennileg mótmæli í þetta skiptið nema kannski einhvrjir Qi Gong liðar með Gunnar Eyjólfs og Björn.is Bjarnason í broddi fylkingar efni til eggjakasts fyrir framan Árnastofnun þegar Kínverjinn fer í handritaskoðun. Árnagarður hefur jú áður verið vettvangur bráðskemmtilegra mótmæla, um að gera að endurvekja það, gera almennileg hróp að þessum kínamanni (nú eða -konu) og veifa gulum fánum, kannski grýta hrísgrjónum svona í gamni.
ég hefði gaman að því að sjá Bjössa í ham taka nokkrar léttklámfengnar stellingar á tröppunum fyrir framan Alþingi og senda fuglinn með fýlusvip. líka galli að Árni Snævarr er hættur að slást við lögguna…þetta verður eitthvað motmælaflopp.
farinn að lesa fréttir
10/21/2003 …næs í vinnunni í dag…
…því að það var skipulagsdagur og krakkabeyglurnar voru heima hjá sér. loksins hægt að vinna í friði. yndislegt. Samt voru nokkur eintök sem laumuðust inn því þau söknuðu kennaranna svo mikið….maður reyndi bara að leiða hjá sér lyktina á meðan…
…fór í sónar með frúnna og bumbuna eftir hádegið….og á skjánum birtist RISASTÓR PUNGUR! þetter strákur no doubt aboutit og við sátum bara þarna með kjálkann í gófinu og slefuðum af undrun því hingað til hefur það verið tekið sem gefið að önnur stelpa sé á leiðinni…en neineinei held nú ekki…það er bara strákur. Eftir að við vorum búin að jafna okkur á sjokkinu og hringja út um allan heim og tilkynna fréttirnar var brunað í kringlu allra landsmanna að skoða strákaföt. ekki seinna vænna ef greyið á ekki að ganga í rauðum kjólum af systur sinni allt sitt líf…semsagt lítill KRingur á leiðinni…
farinn að kaupa pínulitla KR treyju. síðar.
10/20/2003 …er ég ekki sætur…
…sko myndina af mér. dædur o dædur o dædur…
…helgin var góð. það var sérlega skemmtilegt að fylgjast með dóttur minni slafra í sig risastóran pönnukökuísrétt af áfergju á kaffiparís. fátt í heiminum er jafn hamingjusamt og barn með ofgnótt af ís.
…er núna með próf í landafræði. börnin svitna. stressið að drepa þau. já það er fjandanum betra að vera hérna megin við kennaraborðið á svona stundum. hnéhnéhné…próf verða beinlínis skemmtileg…
Frétt dagsins: Ók próflaus á óskráðu mótorhjóli aftan á löggubíl. Heimskingi.
farinn að hrella börnin. síðar.
10/17/2003 …helvíti var þetta góður dráttur…
…í 1. umf. morfíS um daginn. við drógum FÁ og verðum að teljast eiga bara ágæta möguleika á sigri þar. alltaf varasamt að vanmeta andstæðinginn en samt…þetta verður náttúrlega rústmölv.
…vikan er búin. ósköp var það gott. ég er uppásnúinn. og það er ekki flott.
nú er komin helgi. og ég er farinn heim. að borða baunabelgi. guð veri með þeim.
ég ætlað sofoghrjóta. og sofa soldið meir. og zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz…….
farinn að lúlla. síðar.
10/5/2003 …topp tíu uppáhalds/bestu ræmurnar…
…í engri sérstakri röð…
Crouching Tiger Hidden Dragon
The Fifth Element
Das Boot
Starship Troopers
Léon
Terminator 2
The Good the Bad and the Ugly
Stargate
Interview with the Vampire
Highlander
úff….þetta var ekki auðvelt. auðvitað eru hér undanskildar trílógíurnar stórkostlegu StarWars og LoTR sem eru að sjálfsögðu á toppnum. Það er idjótískt erfitt að skilja sundur gommuna af myndum sem maður hefur séð í gegnum tíðina. eru þetta bestu myndirnar kvikmyndagerðarlega séð? nei ekki endilega. Eru þetta tíu uppáhalds myndirnar. vandsvarað…sennilega þessa stundina. Eru þetta þær myndir sem ég hef horft oftast á? sumar, aðrar ekki.
í raun ætti maður að gera nokkra svona lista einn fyrir hverja spurningu. kannski ég gangi í það næst.
farinn að glápa. síðar.
10/4/2003 …Ædol…
…í skólanum í gær…ágætt…margir vondir og svona tveir þrír góðir…galli að hjartagæskan háir manni í svona dómstörfum. alltof fá börn fóru grátandi af sviðinu… Má búast við myndum og jafnvel video á Ssspassanumdottkomm verrí sún. gottgott. eitt er víst. brittney spears tíu sinnum í karókí er heilsu- og heilaspillandi fyrirbæri. do not try this at home people…
Frétt dagsins: Foreldrar skrópagemlinga sektaðir og settir í steininn! Krakkinn kominn með fimm fjarvistir? Woohoo…sko ekkert helvítis punktakerfi my ass, bara fimmtíuþúsundkall á borðið eða ástríðufull nótt með Árna Johnsen í klefa átján takk fyrir. tæma veskið vessgú…já stundum fá bretar góðar hugmyndir…
farinn að spassast. síðar.
10/2/2003 …svona jarðarlitir…
…í hávegum hafðir um þessar mundir. einhver hélt því fram að síðan liti út eins og ungbarnaniðurgangur frá helvíti. það er eiginlega bara vel viðeigandi þar sem allar líkur eru á að desembermánuður verði að stórum hluta undirlagður af því lyktfagra fyrirbæri…
Frétt dagsins: Schwarzenegger gerist félagi í Káfumannafélaginu Endur og Hendur… heilar sex konur halda því nú fram að neggurinn hafi káfað á þeim í gegnum tíðina sjónvarpskonur og vaxtaræktargrúppíur fyrri ára meðal annarra. Spurning hvort einhverjar þeirra séu í demókrataflokknum. Annars er það ekkert launungarmál að Arnie hefur gaman af því að þukla á sjónvarpskonum. Hann er jú giftur Mariu Shriver…
farinn að hlakka til kosninga eftir 5 daga. síðar.
9/30/2003 …fór að pæla…
…í því hvernig væri að vera einræðisherra á Íslandi. örugglega einmanalegt. erfitt að finna einhvern til að ofsækja í svona litlu þjóðfélagi. helst þá kannski smákaupmenn eða geðfatlaðir en þeir eru nú hvort eð er ofsóttir fyir svo að það væri ekkert frumlegt. líka soldið vandamál þetta með útþennslustefnuna. það er ekki hægt að þenja endalaust út í uppfyllingu í sundahöfn eða eitthvað.
- dagbókarfærsla dabba diktators: “elsku dagbók. got veður í dag. vaknaði seint. hótaði að reka ritarann minn. það var takmarkað skemmtilegt samt. hún er orðin vön því. ofsótti svolítið um hádegið. aðallega hjólreiðamenn. innlimaði færeyjar. vanhugsað múv. fullt af skuldum. danir happí. æ ég er svo misheppnaður.”
Ædol æðið tröllríður nu öllu, meiraðsegja skólanum. Nú á að vera karókíædolkeppni á fimmtudaginn. og auðvitað eigum við kennarapestirnar að dæma. Simon Cowell rúlar. múúúhúhahahahahahah…
farinn að innlima kókflösku. síðar.
9/29/2003 …er að spá í…
…að fara í massífar útlitsbreytingar á þessari síðu. er orðinn leiður á þessum blágráa arkítektúr. auk þess er annarhver bloggernotandi með þetta lúkk á síðunni sinni. held ég nenni samt ekki að fara út í eitthvað sýrudæmi og breyta á hverjum degi eins og sumt geggjað fólk gerir. nei það þarf að vera stabilitet í veröldinni. svo ég auglýsi hérmeð eftir amminnilegum lúkkum á bloggi sem ég get stolið.
…hápunktur helgarinnar var ekta íslensk kjötsúpa hjá tengdó. namminamm. annars viðburðasnautt.
…var að byrja á seinna bindinu af ævisögu Hitlers eftir Ian Kershaw. er nýbúinn að innlima Austurríki. spennandi að sjá hvernig hún endar þessi…þarf að fara að vinna mig í gegnum bókastaflann sem ég sankaði að mér í London í fyrrasumar og hef ekki enn lagt í að klára. búinn með Hitler’s Vienna eftir Birgitte HAmann sem er frábær. á eftir Ævisögu Dönitz eftir Peter Padfield og doðrantinn ógurlega Hitler and Stalin Paralell Lives eftir Allan Bullock. skortir ekki lesefni í vetur.
…er ekki að nenna að vinna akkúrat núna. almennt andleysi í gangi eins og lesa má í þessari þrautfúlu færslu.
farinn út í sjoppu. síðar.
9/24/2003 …ýmislegt í fréttum…
…til dæmis ræðunördakeppni FB-MR, svona æfingakeppni sem virðist stefna í að verða að áregum viðburði. skemtilegt. keppnin var eftirminnileg af ýmsum sökum, tilo dæmis má í því sambandi nefna tómatsósusprautun Bjarkar memma MR sem var í fyndnara lagi. sjaldan hefur Heinz tómatvörum verið úthellt svo miskunnarlaust. einnig er eftirminnileg sú stórkostlega ósvífni sem FB liðið sýndi gagnvart tímamörkum en liðið talaði í heild eitthvað nálægt 300 sekúdur yfir á tíma sem ég held bara að hljóti að vera einhverskonar met. til hamingju með það. (Þess má geta að MR vann með 90 stiga mun
Í þriðja lagi verður erfitt að gleyma seinni ræðunni hans BragaPálds dónaskálds sem var barasta sú allradónalegasta ræða sem ég hef nokkurntíma séð flutta. kudos.
Besti Brandari keppninnar: Björk um mögulega byssunotkun í þrefaldöldum hljóðfræðitíma hjá Arnbirni Íslenskukennara í MR. ekki hafa áhyggjur þó þú fattir hann ekki. Bara MR-ingar fatta þennan.
æi nennekki meir. farinn að horfa á fréttir. síðar.
9/19/2003 …Hin árlega drauga- og afturgönguhátíð Seljaskól…
…fór fram í Þórsmörk dagana 15.-17. sptember. Þótti hátíðin takast óvenju vel og var mál manna að reimleikar hefðu verið með afbrigðum vel heppnaðir og frumlegir í ár. Draugasögur tókust framar vonum og lágu nemendur eftir í hræðsluköstum eins og hrúgöld út um öll gólf. Hörðustu naglar stirðnuðu af ótta við óvæntan kaldan bólfélaga um miðja nótt. Dreifa þurfti róandi lyfjum til móðursjúkra stúlkna. Slíkur árangur veitir birtu og hlýju í gamalt kennarahjarta. ó þú ljúfa hystería, hve auðvelt er að magna þig.
Æðsta heiðursmerki afturgönguakademíunnar, Gulldrauginn, hlýtur að þessu sinni Klósetthurðardraugurinn Bjarni Blóðhönd, en hann hlýtur verðlaunin fyrir framúrskarandi framlag til reimleika á kamarnum í Langadal. Húrra.
farinn að ganga aftur. síðar.
9/9/2003 ……nú þegar netsamfélagið stendur á öndinni ……
…aumingja hún, yfir fréttum af brjáluðum bandarískum plötuútgefendum sem lögsækja Kaaaaazzaaaa notendur villt og galið fyrir að reyna að útrýma sér, og ég þori ekki fyrir mitt litla líf að kveikja á þessu stórhættulega forriti af ótta við að verða gerður að blóraböggli í baráttu góðs og ills dreginn fyrir rétt í nafni laganna, lögsóttur dáinn og grafinn, rúinn inn að skinni eins og íspinni sem er búið að éta, þúst svona hlunkur með piparbrjóssiggri eða jafnvel gómsætur danskur Lynstang …
(innskot prófarkalesara: Þann ágæta ís er nú hægt að kaupa á Íslandi eftir 25 ára bið undirritaðs. húrra.)
… þá er fátt sem gleðja myndi gamalt hlandhjarta meira en að smella sér inn á undraheim ++dc++iceland++ og dánlóda þar til maskínan meikar ekki meira, muldrar “ó, hjálp, ég dey, farvel fagra veröld, með sín sálarkeröld, eg hveð að eilífu - adjööööö…” og lyppast niður eins og íbitið epli með beinkröm og blóðsjúkdóm, prumpar út úr sér síðasta harðdiskshvæsinu og er dauð.
En það er ekki hægt. Neinieónei. Ég er persóna non grata á þessum helvítis höbbum… Ásgarði, Valgerði, Útferð og Afgangi eða hvað þetta uppásnúna snobbhænsnarasstroðna pakk kallar sína skítugu sörvera. Ég er bannaður. útskúfaður. lagður í einelti af tölvunördum. eru til hörmulegri örlög en það? mér er spurn.
ég er eins og gulla gulrót, hrakinn út í mygluhornið í ávaxtakörfunni af því ég er appelsínugult grænmeti…ég er Búi broddgöltur svangur og hrakinn, músarlaus og máttlaus án félagstengsla við samfélag dýranna í skóginum…hvar var ég þegar allir ákváðu að vera vinir? fékk víst aldrei memóið… hvar var ég þegar þetta friendly animalkúklúxxxklan frá helvíti ákvað að éta bara grænmeti? gott er að borða gulrótina my ass…hún er mygluð og mér hefur alltaf þótt steinselja vond.
Ég er eins og jónatan ræningi, stórutáarlaus aumingi sem stelur súkkulaði handa ljónum vegna þess að samfélagið hefur yfirgefið hann. allir vita að glæpir eru samfélaginu að kenna…hvað get ég gert að því þó ég ræni og ruppli rabbarbara og rófum, rössum og radísum og einhverju fleira lítilræði. Þetta er ykkur að kenna. ég fæ ekki mitt daglega brauð, mitt eilífa líf sem mér hefur verið lofað af internetguðunum. ég má ekki dánlóda meir. ó mig auman sagði karlinn þegar kerlingin klippti undan honum punginn. Ég segi bara helvítisdjöfulsinsandskotansdjöfulsinshelvítisdjöfullíhelvíti enda hefur enginn klippt neitt af mér, allt í þokkalegu standi takk fyrir og hverslags dónalegheit eru það að vera að spyrja um manns prívat tól og tæki þegiðu bara pervertinn þinn. ókei.
Það versta er að ég veit ekki til þess að ég hafi gert neitt af mér gagnvart þessum rassborum sem reka þetta drasl. ef ég hefði nú verið að fleima, hakka, eða djöflast í fólki og dreifa einhverju verulega dónalegu ömmuklámi væri þetta alltannaðmál. þá væri ég fullur stolts, eins og einar áskell á koppnum, búinn að losa stórann lort, kallandi á pabba til að viðurkenna afrek mín og gefa mér viðeigandi verðlalun. Því það er fátt sem segir “ég elska þig” á sama hátt og fullt klósett af kúk. það vita jú allir foreldrar.
En ég hef bara ekkert líkt því svona skemmtilegt til að gleðjast yfir. Mér er barasta ekki hleypt inn.. búinn að reyna allskyns ólögleg undanbrögð til að gabba vélarhelvítið sem konnektar mann en ekkert gengur. Ég er Árni Johnsen þegar brekkusöngurinn byrjaði um versló…kaldur og dáinn innímér með aðeins klefafélagann Bóbótil að hlýja mér á rassinum. (ahh ahh ekki alveg svona fast. aumur síðan í gær.)
Þetter búið spil. ég verð víst bara að versla við skífuna eins og einhver bolur sem hangir í shellinu á Hólmavík allar helgar og veit ekki hvað tölva er. svona sjóari í bæjarferð í leðurjakka, snjóþvegnum gallabuxum, hvítum sportsokkum og spariskóm. “Vá skífan maður…töff…bara diskar og alles dúd. hei kaupum…” (ég meina tala sjóarar svona?…ég veit það ekki…þekki einga. nema hann braga málefnalega en hann er nú meira svona trillukarl sem blótar og kallar alla helvítis píkur. ekki alveg sama tegundin. Er niðurstaðan hér þá sú að ég verði að skipta við helvítis kolkrabbann? kaupi ég fyrstu plötuna síðan í apríl 2001? nei helvíti. heldur tek ég sénsinn bensinn á kazaa og lifi á brúninni um hríð. life on the edge man…ég er hættur að vera fórnarlamb. fokkitt.
farinn að brjóta lög. síðar.
9/4/2003 …KR-ingar þurfa ekki hroka…
… ÞEIR ERU BESTIR Til hamingju með titilinn boys.
farinn að sofa. síðar.
9/1/2003 …drottinn forði mér frá…
…síblaðrandi 8. bekkingum með mikilmennskukomplexa yfir því að vera komin í unglingadeild. arrrrrgggghhhhhhhh…. takk. þurfti bara að koma þessu frá mér.
farinn í tveggja tíma gat…júbbíjei… síðar.
8/31/2003 …vá… …hvað þetta voru bjútífúl tónleikar. …
…vá…
…hvað þetta voru bjútífúl tónleikar. namminamm. engin smá keyrsla. næstbestu tónleikar sem ég hef farið á…hei bara sorrý en það þarf sko helvíti mikið til að toppa rammstein… - uppsummun:
Výnill = prumpuband með hörmulegum wannabe frontara gersamlega sneyddum öllu stagepresensi, öll lögin eins. af hverju var maus eða mínus ekki þarna í staðinn? ensími jafnvel. ekki þetta helvíti.
My Morning Jacket = eru zeppelin endurholdgaðir? eru flying V’s komin aftur í tísku? var þetta dauðarokk eða 70s rokk eða blúsgítarrokk eða reggí? afhverju var hljómborðsleikarinn ekki líka með hár? Hverjum er ekki sama, ég er farinn útí búð að kaupa plötuna like núna. drullugott band, drullugóð mússík.
Foo Fighters = vá. nei þú veist vá. sko dísus vá. ég meina sko vá. ólýsanlegir með orðum. vá. you had to bara bíðer. vá.
…þannig varnú það. fer aftur ef tækifæri gefst. var að setja saman disk með setlistanum úr höllinni áðan. nostalgíukast í uppsiglingu. aaaaahhhhhhhh….
farinn að endurlifa. síðar.
8/26/2003 …já nú er gaman gleðjumst saman…
…og göngum létt í lundu að laugardalshöll að stundu
til konsertleika með tungu bleika
með smæl á fési eins og PappírsPési
þar stígásvið eftir nokkra bið
mun flottur gaur fyrir fimmþúsundaur
og hefja á loft, vonandi oft
sinn hljómmikla söng og gítartöng
svo við hristumst af kæti, verum með læti
hoppum í bylgjum af belstissylgjum
með stjörnur í augum og svefnleysisbaugum
við hyllum þann dreng sem æpir í spreng
uppásviði svo sætur, ég bíð þess ei bætur
því beðið við höfum og staðið í röðum
langt út á götu, ældum í fötu
og átum það svo því spennan var sko
oss alveg að drepa (ég er með húðsepa)
en nú er hann davíð kominn yfir hafið
til að spila á fullu, fara með sína rullu
fyrir fullu húsi og helling af búsi
nú held ég af stað, af því að það
er komin tími á gól hjá elsku DeivGról
við elskum þig öll, jafnvel þinn böll
þó hann birtist víst ekki í kvöld.
farinn á konsert. síðar.
8/20/2003 Protector The ULTIMATE personality test brought …
Protector
The ULTIMATE personality test
brought to you by Quizilla
8/13/2003 …smá tilraunir…?
…með liti í gangi hér.
…ég var að uppgötva nýjan fréttavef í fyrradag. Gamla fjölmiðlabrýnið Steingrímur Ólafsson heldur úti stórskemmtilegum og aggressívum vef í bloggstíl sem er fersk innspýting í íslenskt fréttasamfélag. Skoðið skúbbin á Fréttir.com
…ég er að brjálast átölvunni minni. ég eyddi ellefu tímum í gær í að reyna að breyta mpeg2 í mpeg1 og það barasta gekkekkineitt. annað hvort vantaði hljóð, mynd eða hvorttveggja. helvítis tæknidrasl. fann á endanum leið úr ógöngunum því eins og allir vita er ég snillingur. ástæðan fyrir herlegheitunum? jú auðvitað að umbreyta Buffysafninu til að dvdtækniundrið á heimilinu vilji éta það. Buffy is life…en það vita jú allir…
…fimm dagar í vinnu - þrettán dagar í foofighters og two towers á dvd - 16 vikur í jólabarnið…
farinn að converta til helvítis. síðar.
8/12/2003 …er þetta ljótt…?
…ehhh já…
…Það er nýr Actionsmellur á leiðinni: Betri kvikmyndahúsin kynna Arnold Svartnagg: He’s back… He’ll balance the budget… He’ll roll the blackouts back up Davis’ arse… He’ll smack up the crackwhores and get the junkies out of the street… He’s smarter than Ronald Reagan (don’t take much but still)… He is
THE GOVERNATOR
“…voote for mee if you vaant too liive…”
…fór á góóóóðan leik í gær… sá stórveldið paybacka gulu sveitalubbana með sææææætasta sigurmarki sumarsins mínútu fyrir leikslok. það var vel þess virði að breiva rigninguna í frostaskjólinu til að verða vitni að sjö stiga forskoti á óæðri enda deildarinnar. Fylkir fær svo skellinn sun. 24. ágúst og titillinn í höfn. namminamm.
…farinn að hlakka. síðar.
8/1/2003 …Það er farið að styttast…
…í skólann aftur….sem þýðir að ég þarf að fara að byrja á öllu sem ég ætlaði að vinna í sumar. úff.
…í nýjan erfingja á heimilið. hefur boðað komu sína í heiminn þann 15. desember. jólabarn já takk.
…í að ég finni upp geitungagildru sem útrýmir öllum þessum fljúgandi skrímslum á einu bretti. er ekki hægt að fylla Vesturbæjarlaugina af eitruðu hunangi eða eitthvað…ég meina það eru 280.000 manns á þessu skeri og eitthvað um milljón vespur. hér er aðgerða þörf.
…í foofighters tónleika sem ég veit vel að eru í ágúst en ekki mars og þegiði svo bara.
…í að Stórveldið í vesturbænum taki deild og bikar. Fjórföld gleði ef fram og skaginn falla. …ó ljúfa líf…dadararara.
farinn burt, bara eitthvað burt. síðar.
7/18/2003 …Sumarið er tíminn…
…Sumarið er tíminn…
…og sjaldan held ég að blöðruselnum honum bubba hafi ratast rétt á munn. þó það nú væri að karlanginn ætti eina samhangandi hugsun sem virkar. svo er þetta líka bara flott lag. GCD rúlar. það er tildæmis skemmtileg staðreynd að sú ágæta hljómsveit er eina íslenska bandið sem hefur tekist að búa til tvo texta við sama lagið og svindla því inn á landann. Kaupmaðurinn á horninu og Mýrdalssandurinn eru sama lagið. bara spila GCD og svo má rugla textunum saman bara eins og maður vill. ef maður hefur á annaðborð áhuga á því.
…allavega ég var í einhverju leiðindakasti um daginn og var að reyna að spæka google (það sem maður gerir við líf sitt til að reyna að láta tímann líða í tíu vikna sumarfríi!) þú veist svona skrifa inn tvö óskyld leitarorð og ef það kemur BARA EIN síða þá er maður búinn að vinna. skemmtilegt ekki satt.
mér tókst að vinna með samsetningunni “drullu serðir” . það sem var skemmtilegt við þetta var að síðan sem google fann, eina síðan í heiminum þar sem orðin drullu og serðir eru notuð samtímis er einmitt linkur hér til vinstri. Það er langintesinn og súperkarlmennið bragi diskókragi sem á þessa síðu og er þessu hér með komið á framfæri. lesið lambann. samt ekki fyrr en ég er búinn.
…svín eru skemmtileg dýr það er til dæmis hægt að borða þau. en hví er helsti svínaafurðaframleiðandinn (hah! segðu þetta afturábak Guðjón!) þ.e. svuntusvínið Ali ekki með svínslegra nafn á fyirtækinu sínu. Síld og fiskur. út úr kú. og hér kemur elsta pæling í heimi: er síld ekki líka fiskur. og allir sofnuðu.
…Tónlistarmaður dagsins er Dave Grohl. besti helvítis trommari jarðsögunnar og bara þokkalegur frontari líka. sko til. hann getur allt. ætli hann sé bróðir Magga Scheving? kannski kemur svona foofighters-bær bráðum í amrísk barnaleikhús. allt eitthvað geimverur með skrítnar byssur og svona tónlistarálfur. svona marsbúa-cha-cha-cha-dæmi eitthvað. nei sennilega ekki.
Það er að sjálfsögðu skylda að fara á tónleikana 26. mars í stórkostlegasta tónlistarhúsi veraldar… (= laugardagshöll) er búinn að fá miða. hlakka til. scnillllld.
farinn í hundana. síðar.
7/7/2003 …Næsta vetur…
…kenni ég eðlisfræði. gerið svo vel að hlæja núna.
takk fyrir.
farinn að borða nings. síðar.
6/9/2003 …heja sverige… …eda thannig… kominn i s…
…heja sverige…
…eda thannig… kominn i solina…ef thad vaeri einhver sol…rok og tigning i gaerkvoldi og skyjad nuna. skitt.
vonandi verdur thetta betra i danmark i kveld…
…madur faer ekki einu sinni frid fyrir nemendum sinum a flugvellinum….veit folk ekki ad thad a ad loka unglinga inni yfir sumarid svo kennarar geti notid sin i fridi og ro…
farinn ad äta middag snart….senare grabbar…
6/4/2003 …John Cusack í stórmyndinni High Fidelity…
…þúst þessari þar sem hann er plötubúðareigandi á bömmer … hafði þann ágæta sið að búa til topp fimm lista yfir allt í lífi sínu. úr því ég er á annað borð byrjaður á einhverjum Lettermanlistum þá er bara best að gera þetta almennilega. só…listi númer eitt:
Topp Fimm ástæður fyrir því að næsti föstudagur er góður dagur:
5. Loksins laus við krakkaskrímslin. friður og ró í tíu vikur. himneskt.
4. Danmörk here I come eftir tvo daga, her kommer jag, Pippi Långstrump tjulla-hopp tjulla-hei tjulla-hoppsan-sei…
3. Ég verð búinn að taka til í stofu 45 fyrir sumarið, sem er leiðindaskítverkfráhelvíti but sombody’sgott’adoit.
2. Valdi þarf að fara í vinnuna á mánudaginn, ekki ég. naa-nanaa-nanaa-naaaa.
1. Á hádegi á föstudag verða nákvæmlega 81 klukkustund þar til ég tek á móti hinum á Kastrup með bjór og bros.
og hananú… farinn að þvo þvott. síðar.
5/31/2003 …tíu hlutir sem ég ætla að gera í danmörku…
…tala sænsku…
…láta pípa í málmleitarhliðinu á Kastrup…
…hrjóta svoooo hátt að enginn geti sofið á herberginu mínu…
…gera yfirgripsmikla gæðarannsókn á dönskum bjór…
…þykjast vera vaxmynd af þreyttum túrista í Madam Toussaud’s og segja böö við gamlar konur sem pota í mig…
…borða helling af ís…
…leika Quasimodo á ráðhústorginu þegar klukkan slær (oh, the bells, the bells…) spurning hvar ég get fengið lánaða geit…
…klæða mig upp í blauta, rauða hárkollu og skeljabrjóstahaldara, banka upp á í H.C.Andersen-safninu og spyrja eftir pabba…
…syngja Fly on the wings of love af innlifun á strikinu og sjá hvað margir gefa mér pening…
…neita að borga nokkurn skapaðan hlut “af því að þið skuldið okkur ennþá fyrir sjö alda ánauð baunarnir ykkar”…
..farinn að fara yfir próf…jibbí. síðar.
5/26/2003 …tími fyrir blogg…
…um allt sem hefur gerst þennan mánuðinn. fáið ykkur popp og komið ykkur fyrir. þetta verður langt. það verða yfirlýsingar og læti. það verða blammeringar. kaflaskiptar:
1. kafli: Ræðukeppni.
Seljaskóli hirti að sjálfsögðu bikarinn (eða skrýtnu keramikseríósskálina) í Ræðukeppni Breiðholts. enda með besta liðið. ekkert væl moðhausar, þið vitið að það er satt. ölduselsskóli marði sigur í síðustu keppni með slembilukku. við hirtum þetta á ræðumanni kvöldsins. takk fyrir Anna Kristín. nenni ekki að analýsera þetta, lesið svoleiðis hjá plazebóninum en hann þjálfaði einmitt Öldusel í þessari keppni. þrjú smáatriði ollu lukku öldskælinga:
1. míkrafónhelvítið gerði röddina í meðmælanda okkar (sem alla jafna er hljómfögur mjög) að pirandi væli. dómarar dæmdu hana eftir tæknibúnaðinum. þetta var sko tæknisamsæri frá helvíti.
2. einn vondur svarakafli í annarri ræðu fór með sigurinn til fjandans. tvö vond svör gáfu 3 hjá öllum dómurum en þrjú stutt og góð hefðu gefið 5-6 sem hefði nægt til sigurs. bömmer en ce’st la guerre.
3. Kári Hólmar dómari fattaði ekki að ræðan sem honum fannst stolin frá sér (og var auðvitað stolin frá honum
átti að fá 10 því auðvitað ætti maður að dæma sínar eigin hugmyndir stórvel. allavega átti hún ekki skilið að lækka niður í 4 fyrir uppbyggingu út af þessu. það er verið að dæma uppbyggingu en ekki frumleika og þetta var ein best uppbyggða ræðan okkar í keppninni. (annað hef ég svo sem ekki út á dómgæslu að setja. menn unnu sitt fag vel, takk og bless.)
það er semsagt búið að leggja grunninn að heimsveldinu. heimsyfirráð í breiðholti eru staðryend og nú er bara eftir að lumbra á hinum borgarhlutunum. þeir sem vilja berja verðlunagripinn augum eru velkomnir í Seljaskóla þar sem hann verður til sýnis í kassa með nokkrum þreytulegum uppstoppuðum hænsnum eins og siður er í grunnskólum landsins ekki orð um það meir.
2. kafli Júróvisjón.
Skandall, veit ekki, erfitt að segja. nei það er ekkert erfitt. þetta var enginn helvítis skandall og gísli marteinn spýtustrákur stóð sig bara með prýði, ef hann heldur svona áfram verður hann einhvern tíma alvöru strákur. Þetta tyrkneska lag var minna stolið en til dæmis írska, belgíska, og eiginlega bara öll hin lögin, nema náttúrulega íslenska lagið sem var æðislegasta lag sem Birgitta Haukdal hefur nokkiurntíma sungið í eurovisjón. þarf ég að útskýra þetta háð fyrir ykkur pappakassarnir ykkar? semsagt volað lag á tónLISTARlegan mælikvarða, en alveg hreint boðlegt júróvisjónhitt á pottþéttskrilljón diskinn sem jón ólafsson er að púsla saman í skífunni þessa stundina.
aðrir júrósmellir á disknum verða “ég er klædd eins og beljan hún brittney og samt er ég bara sextán” frá úkraínu (skemmtileg staðreynd um úkraínu: þeir treystu sér ekki til að hafa símakosningu því aðeins helmingur þjóðarinnar á síma. Það er líka bara helmingur þjóðarinnar sem á sjónvarp. En gallinn er að það er engin trygging fyrir því að þetta sé sama fólkið), þjóðlagasmellurinn ég er vampýrukona, draga fyrir gluggana takk frá tyrklandi (öðru nafni kisskiss með glyðrunni henni Flick), ný söngleikjaútgáfa af dýrabæ eftir George Orville með víðsjála álfinum Dobby úr Harry Potter í aðalhlutverki (auk nornarinnar úr mjallhvíti á bakröddunum).
Ég skil ekki alveg þá sem halda því fram að þetta hafi verið vond keppni. letsfaceit man einhver eftir lögunum frá því í fyrra? nei. þetta tyrkneska lag á alveg eftir að lifa eitthvað á júródiskum framtíðarinnar. aldrei hefur stigagjöfin verið jafn spennandi, þrjú lög áttu möguleika í síðustu umferð. Allir annaðhvort hötuðu eða elskuðu Tatu sem var bara gott fyrir PR dæmið fyrir keppnina í ár. Þær voru bara með ágætt lag en allir vita að þær fengu ekki stigin fyrir performansið á sviðinu í Skonto heldur fyrri frægð. og hvað er eiginlega að því. ég bara spyr. öll atriði sem hrista upp í þessari keppni eru góð og hananú. það sem þessi keppni þarf er heilbrigður skammtur af hommum, lesbíum klææðskiptingum og kynskiptingum á svið reglulega og þá erum við í góðum málum. Svo skemmir ekki fyrir að fá einstaka hálfvita eins og Alf Poier öðru hverju. Hann náði pottþétt takmarki sínu, að láta Austurríkismenn skammast sín.
Allavega. ágæt kvöldstund fyrir framan imbann.
3. kafli. allt hitt.
prófprófpróf, yfirseta og leiðindi, yfirferð og leiðindi. Framundan: sól og sumarylur með öl í Kalmarsambandinu. góðar stundir.
farinn að horfa á CSI: Crimesceneinvestigation. síðar.
5/2/2003 …karlmenni, já karlmenni…
…kveinuðu allir þeir. helvíti er fólk viðkvæmt fyrir smá hommahúmor. ég verð víst að vera karlmenni núna. *hóst* …jaaaaa djöfuls fótbolti ma’r. helvítis píkur þessir Líddsarar ma’r. alltaf að hommast helvítis bossabragarnir. og vélar og tæki. ahhaha hvað ég veit mikið um þær. bara blöndungur og hjólalega og …þúst… húdd… ahhhh það er gott að vera með typpi…
farinn á sjóinn. síðar.
4/28/2003 …horfði á sjónvarpið í gær…
…það var gaman. ztöð Z er að endursýna bandofbrothers sem er gaman. sá líka seinni hlutann af Will og Grace sem er svona hommaþáttur. alveg ágætur. þar er nú í aðalhlutverki sem ástmaður einn ágætur náungi að nafni “ég man aldrei hvað hann heitir en hann er sætur og syngur vel”. æi þessi sem samdi alla tónlistina í fullnægingarmyndina með meg ryan og krulludýrinu honum billy crystal. sá sem söng danny boy í memphis belle…svona látúnsbarki…helvítis götótti heili. allavega hann er sætur og ég átti með honumn ágæta stund fyrir framan imbann. notalegt.
…borðum ost. hann er hollur.
…lesum karlahornið. ekki vera einhverjar helvítis píkur strákar.
…förum í bað. það er kurteisi.
…kyssum börn. það er svo landsföðurlegt.
farinn að hommast. síðar.
4/27/2003 …heima er bezt…
…eða það hlýtur allavega að vera því að það er sama hvert maður fer og hvað það er gaman þá er alltaf gott að koma heim og hlunkast í rúmið sitt. flúðir voru fínar. fullt af sveppum. að vísu á voru þeir allir keyptir í reykjavík. þetta voru svona ferðasveppir eins og hann Sveppi. ræktaðir á flúðum, keyrðir í bónus í bænum til þess eins að vera keyptir og keyrðir á flúðir aftur til að vera étnir. hvílík örlög. að vísu var örlítið meðlæti með þessum gómsæta sveppagróðri. heilsteikt svín í sneiðum og svona sitt lítið af hverju.
…þá getur maður farið að hlakka til næsta áfangans á leið inn í sumarið en það eru jú samræmd próf. jibbí. alltaf gaman í þeim. það má nú vart á milli sjá hvorir eru stressaðri nemendurnir eða sumir kennararnir.
…er farinn að skipuleggja sumarið. sýnist að ég verði lítið heima hjá mér nema rétt á milli utanlands- og innanlandsferðalaga. ég er svo ríkur sko. alltaf í svona lúxusferðalögum á snekkjum með kampavín og kavíar og þjóna á hverjum fingri. já þau láta ekki að sér hæða kennaralaunin.
…sá í sjónvarpinu um daginn að reykvíkingar vita ekkert í hvaða kjördæmi þeir eru lengur. norðursuðurausturvesturwhaddafokkever… samt ætluðu allir að kjósa. er þetta merki um að íslendingum sé sama um mannskapinn á listum flokkanna? erfitt að segja. gíslamarteinsbros.
…enn betri kosningafréttir. þrír flokkar, Sjálfstæðisflokkur, Frjálslyndir og Nýtt afl heimskuðust til að vera með meðmælendur úr vitlausum kjördæmum á listum hjá sér og fengu frest af því þeir rugluðust á kjördæmaskipaninni (greinilega sömu fíbblin og hinir). mér hefði þótt skemmtilegt að vita hvort yfirkjörstjórn hefði verið jafn eftirláttsöm ef þetta hefðu verið húmanistaflokkurinn, öfgasinnaðir jafnaðarmenn og íslenskir þjóðernissinnar…smá samsærispæling svona…
farinn að brjóta úr nærbuxunum. síðar.
4/25/2003 …hugleiðingar fíbbls…
…geta verið magnaðar. því hef ég sett upp commenntakerfi þar sem fíbbl og aðrir andans menn geta tjáð sig um skrif mín. nú eða bara lífið og tilveruna. skemmtilegt ekki satt.
…ég er á leið út úr bænum. stærsti svepparæktarbær á norðurlöndum fær að njóta nærveru minnar næstu dagana þar sem ég er búinn að bóka mér sumarhús á Flúðum. étnir verða sveppir í hvert mál. þetta verður svona Bubba í Forrest Gump nema bara sveppir en ekki rækjur.
einnig ku vera ræktað mikið af tómötum á þessu fyrrum áhrifasvæði Haukdæla enda er grænmetisrækt þeirra lofuð í Sturlungu. minnist ég þess að hafa lesið þar magnaða kafla um tómatakast Haukdæla í Örlygsstaðabardaga og samkvæmt nýjustu rannsóknum rykfallinna fræðimanna Árnastofnunar þá var það tómataofnæmi sem banaði Sturlu Þórðarsyni og varð hann því ekki vopnbitinn eins og áður var talið. Þessir kaflar Sturlungu eru því miður glataðir en ráða má fyrrnefnda niðurstöðu af óljósum rauðum blettum á helstu handritum hinnar fornfrægu bókar. Reyndar hafa sumir haldið því fram að þetta séu Libby’s sósublettir frá því að átvöglin í Árnastofnun héldu handritaorgíu um síðustu jól en það er auðvitað bara lygi og þvættingur.
farinn í mjólkurbúðina. síðar.
4/19/2003 …Kóngurinn kominn á netið…
…enda löngu kominn timi til. ég hef aðeins þetta að segja..: (næsta setning lesist með auglýsingaröddinni hans Steins Ármanns) Lesið hugrenningar kóngsins.
…þegar ég smellti kónginum inn í linkasafnið þá tók ég eftir því að þar sátu allskonar bloggarar sem ég hef ekki séð ástæðu til að lesa í margar vikur. sem þýðir einfaldlega að þeir eru leiðinlegir og ég sendi þá linka til helvítis. eftirleiðis verða hér eingöngu linkar á bloggara sem bæta, hressa og kæta. eða sem hægt er að hlæja að á öðrum forsendum.
…ég er að elda silung. hann verður eflaust gómsætur. datt bara í hug að einhverjum fyndist það áhugavert. svo hefur mér alltaf fundist silungur fallegur fiskur. vildi bara koma því að. ekki eins og ýsan sem er ljót.
fagurfræði fiskitegunda er mergjuð vísindi sem ætti að vera kennd í háskólatetrinu á akureyris (essið á að vera þarna málvitundarnördar) og væri þá ekki upplagt ef maðurinn sem stal skegginu af Doktor Fiðringi þ.e. Össur “forsætisráðherraefnisamfylkingarinnarefégværimeðleggöng” Skarphéðinsson, væri fenginn til að kenna þessa hávísindalegu grein því hann er jú eins og allir vita doktor eins og Fiðringur en í allt öðrum fræðum, nefnilega kynlífi laxfiska. og ætti því að vera nokkuð vel heima í því hvað slíkum síldum þykir fagur fiskur í sjó.
sýrublogg dagsins var í boði Þorra Þorsks (sem ég hef alltaf grunað um pervertískar hvatir gagnvart eftirlitslausum börnum í Hagkaup).
farinn að horfa á Harry Potter. síðar.
4/17/2003 …hvers vegna í ósköpunum…
…er gripasýningin ungfrú Reykjavík auglýst undir merkjum StelpuZtöð á Ztöð Z? bara næ þessu ekki. réttupphend þeir sem halda að stelpur horfi á fegurðarsmkeppnir…
nei við vitum öll hverjir það eru sem sitja slefandi fyrir framan skjáinn og bíða eftir að þessi með stóru brjóstin (því að það er alltaf ein með miklu stærri brjóst en hinar) komi fram á sundfötunum… já dömur mínar og herrar það eru perrakallarnir. ókeiókei best að ljúka augljósa brandaranum af…hvernig veist þú svona mikið um fegurðarsamkeppnir jóhannes dóni? nú það er augljóst ekki satt. ekki orð um það meir.
nei en svona í alvöru þá hætti ég að horfa á fegurðarsamkeppnir eftir að Hófí vann ungfrú heim 1985. glöggir lesendur munu átta sig á því að þá var ég 12 ára og tvennt hafði gerst í lífi mínu sem varð þess valdandi að fegurðarsamkeppnir bara voru ekki jafn spenandi og áður: a) ég var loksins orðinn nógu gamall til að fatta að það var engin af stelpunum á leiðinni að fara úr bikiníinu á sviðinu. b) ég uppgötvaði hustler.
eftir það var eiginlega lítið fútt í þessu. þetta er barasta afspyrnulélegt sjónvarp. og kallar þarna úti … er ekki bara betra að kaupa sér adult channel eða eitthvað.
Stórfrétt dagsins: Símafyrirtækið OG stofnað… og hvað? og Vodafone. Til hamingju Óskar Magnússon & Co. með arfalélegustu nafngift í feitri sögu mislukkaðra íslenskra bisnessfloppa. Óskar hafði þetta um málið að segja:”Og er algengasta og mest notaða samtenging í íslensku máli”. Það er rétt Óskar en og eitt og sér þýðir ekki neitt, stendur ekki fyrir neitt, getur ekkert sjálft. Og er svona núllið í tungumálinu. ef ég á “og” þá á ég ekki neitt. en ef ég á tvær appelsínur og þrjá banana þá á ég fimm ávexti … fattaru …?
Og það sem mér finnst verst er að allir þessir toppbisnessmenn í þessum tveim sameinuðu fyrirtækjum, allir þessir gaurar sem við dronarnir eigum að líta upp til, þú veist af því að þeir eru búnir að meika það í atvinnulífinu, < --- read with a healthy dose of irony --> borguðu einhverjum X-generation-ímyndar-gutta á einhverri auglýsingastofu einhverjar milljónir fyrir að finna nafn á fyrirtækið og hann seldi þeim OG af því hann var á leiðinni í partí og hafði ekki tíma í eitthvað djúpt dæmi. Óskar Magnússon…það er verið að hlæja að ykkur út um allan bæ nákvæmlega núna.
farinn að hlæja að Óskari OG hinum suckerunum. síðar
4/15/2003 …ætlar hann aldrei að þagna karlhelvítið…
…var einmitt skemmtilegur titill á viðtalsbók fyrir nokkrum árum síðan en það virðist eiga jafnvel við í bloggheimum og annarsstaðar. nú er upphafið að nýju bloggstríð Breka og Braga og er það vel því það er ákaflega skemmtilegt aflestrar. það sem meðal annars hefur verið rifist um þar er hvernig sætaskipan manna hafi verið í FBVÍ keppninni forðum daga, veri hún bölvuð um allar aldir. og svona af því að ég á þetta svart á hvítu þá skal ég setja það hér beinhvítt á grláu:
1. Gunnar FB 534 stig
2. Breki VÍ 533 stig
3. Bragi FB 505 stig
4. Jónas VÍ 504 stig
5. Björn VÍ 468 stig
6. Gísli FB 454 stig
Þannig var nú það og ef einhver vill véfengja þetta þá má sá hinn sami bara taka það mál upp við Konráð hollráð.
af öðrum tíðindum er einfaldlega ekkert. á heimilinu hlaupa bólur um á barninu og því er lítið um að vera nema almenn rólegheit.
Tónlistarmenn dagsins: Amos. þriðja sætishljómsveit mússíktilrauna í ár. hefðu átt að vinna svo einfalt er það. Sperrið eyrun við popplandi óla palla á Rás2 á næstu dögum.
farinn að knúsa hlaupabólubarnið. síðar.
4/11/2003 …ja maður lifandi…
…nú er bara komið hið langþráða frí. og ég er extra happí því að enn einn belgurinn bættist í gamlingjaklúbbinn í dag. Til hamingju með ammælið Ásgeir KALL. ég veit svosem ekkert hvort hann les þetta kjaftæði en samt. það er kurteisi að óska fólki til hamingju með að vera komið á FERTUGSALDURINN. en ekki vera sár það er alveg hægt að vera kúl þrátt fyrir nokkrar hrukkur…erins og t.d. þessi náungi hér…
…og talandi um hrukkudýr þá fór ég í vettvangsferð með krakkagríslinga í RÚV í dag. kynningarfulltrúi RÚV er í fullkomnu samræmi við þá rykföllnu stofnun. eldri virðuleg kona. samt ágæt frú. svona áttræð kelling sem vílaði ekki fyrir sér að segja bæði “fokk” og “scooter”. greinilega vel heima í unglingamenningunni. Við hittum þarna geimveruna úr stundinni okkar, þennan með hárið og ég fékk skyndilega nýja pervertíska sýn á þennan barnaþátt. ég hafði bara ekki gert mér grein fyrir því áður hve beinstífar geirvörturnar á geimverugerpinu standa svakalega áberandi í gegnum þennan bláa búning…yyyeeeecchhhhh…
…og úr því ég er farinn að tala um gerivörtur þá er kominn timi á að hætta í bili…nema kannski þetta:
Stórfrétt dagsins: Danir reiðubúnir til að senda 380 hermenn til Íraks. Já var það ekki. Danska heimsveldið bara komið á kreik. allt að fara til fjandans í Færeyjum og Grænlandi og þá á bara að redda draslinu með því að ná sér í sneið af olíukökunni í Írak. Það verða jú að vera til peningar til að kaupa brennivín handa gömlu nýlendunum, já og haglara handa Grænlendingum…Og danski herinn…besti her í heiminum…veit ekki…erfitt að segja…
Tónlistarmaður dagsins: Punjabi MC. harðasti MC-inn í Bhangra heiminum….svona Puff daddy þeirra sem tala Hindi…..frábær mússík fyrir þá sem eru orðnir leiðir á þýskum tekknóleðurhommum. í alvöru, ég meina þessi gaur er spilaður á Rás2…need I say more…?
farinn að sulla. síðar.
3/31/2003 …og nú er bara að koma pássskafrí…jei…
…það er ljúft. það er svo lítið eftir af vetrinum að það er bjútí. tvær vikur - pássskafrí -einn dagur - frídagur - einn dagur - helgi - þrír dagar - samræmd próf - vorferð - sex dagar og svo próf pg svo bara eiginlega búið. Suuuuuumarfríííííí og bjór på danske pubber. nammi. þetta reiknast semsagt saman sem 20 fullir kennsludagar. það er ekki mikið. sjitt það er kannski betra að fara að drullast til að komast yfir efni vetrarins…upp með prikið…
Tengill dagsins: Salam Pax er íraskur bloggari sem skrifar “fjörlegar lýsingar á daglegu lífi í Bagdad undir stanslausum loftárásum bandamanna..” eins og Mogginn orðar það. Einn af fáum bloggurum í heiminum sem hefur í raun og veru frá einhverju að segja…! merkilegur fjandi. Alveg þess virði að tékka á þessu þó ekki væri til annars en að kíkja á tenglana hans…The Whacky Iraqi og fleira gott…
farinn að þykjast vinna. síðar.
3/26/2003 …nei ég tek aftur þetta með bölvunina…
…og dreg prjónana úr brekadúkkunum mínum. í raun er rebbinn eini maðurinn sem hefur öllum að óvörum skrifað um þessa blessuðu keppni á tiltölulega hlutlausan hátt. ég átti ekki von á því að segja þetta en ég er nú sammála rebbanum í meginatriðum. < ----og nú súpa fbingar hveljur---> Þetta datt náttúrulega bara inn á dagsforminu og því miður lenti það verslómegin í ár. úrslitakeppnin verður án efa skemmtileg enda gamlir fjendur sem berast þar á banaspjótum og allt lagt undir.
farinn að búa til póstsprengjur
síðar.
3/26/2003 …gagnrýni er góð…
…en ég mælist til þess að fólk gagnrýni mín störf þegar það hefur eitthvað vit á þeim. alltaf gott að fá gagnrýni. en það er líka gott þegar gagnrýnin er eitthvað meira en skilningslaust einhliða bergmál.
ég stend við allar mínar ákvarðanir í morfís í vetur og held því blákalt fram að þær hafi skilað árangri. ég gerði líka ýmis mistök fyrir verslókeppnina sem að mínu mati áttu stóran þátt í tapinu. Engin þessara mistaka eru hins vegar talin upp gegn mér í þessari reiðiromsu sem sýnir bara hversu mikið innsæi og skilning höfundurinn hefur á starfi morfísliðsins.
en ég er víst vondi kallinn….
farinn að plotta virðingarleysi, skítkast og já - yfirvöltun gagnvart samstarfsfólki mínu. síðar.
3/24/2003 …ég hef ekki geð…
…í mér til að skrifa einhverja analýseringu á morfískeppninni. Verslingar voru að staðdna sig ágætlega og FB liðið hefur svosem alveg átt betri keppnir en það var ýmislegt í þessari dómgæslu sem var undarlegt. hvers vegna í ósköpunum var Bragi til dæmis ekki með hæstu mönnum? óskiljanlegt miðað við frammistöðu hans. og hver er þessi jónas? búmmtisshh. guðminngóður.
En það þýðir ekki að sýta dauðan hest úr því sem komið er heldur óska ég veslingum alls ills í komandi keppni við MR. megi bölvun hvíla á ræðuliði verslunarskólans um allan aldur.
farinn að stinga prjónum í brekadúkkur. síðar.
3/19/2003 … hvaða fokk…
…er í gangi með blogger þessa dagana? Allt archivið dottið út, ekki hægt að stofna nýtt blogg, um það bil allt sem ég ætla að gera býr til einhver error msg. Helvítis helvíti. Hvað eru þessir google fábjánar búnir að gera mér. helvítis nethryðjuverk.
farinn að prumpa á www.google.com. síðar.
3/16/2003 …það er komið sumar…
…og ef einhverjir helvítis veðurguðir ætla að fara að stela því burt með einhverju páskahreti þá segi ég bara púh.
morfís við vesló á föstudaginn. það verður stuð. umræðuefnið er mannkynið og við erum á móti. skemmtileg pæling.
helvítis. já bara helvítis. ekki út af neinu sérstöku. bara helvítis.
Stórfrétt dagsins: Morðingi Djindijc á leið til Íslands? það er bara svona. nú er Ísland komið í hóp vafasömustu ríkja heims, glæpamannaparadís. á ekki bara að bjóða manninn velkominn. pota honum niður í krummaskuði úti á landi og kenna honum að segja “harðfiskur” og “slátur” og “saklaus”. nei þetta var ljótur brandari jóhannes dóni. skammiskamm.
3/11/2003 …og sem herrann hvolfdi yfir oss auma …
…mikilfenglegu augliti sínufóru púkar andskotans á stjá og drýsidjöflar þeir er neðra þjást í dagsbirtunni en þá er ljósið þvarr í byggðum manna fóru pestir um lönd og búsmala svo brast á með kýlum og dauða því Satan lá á launráðum um að kaupa sér kók og prins póló því hann var ennþá svangur og langaði í eitthvað sætt eftir matinn. hvernig í djöflinum átti hann líka að vita að frú Satan væri með lúðuplokkfisk í matinn eina fjandans ferðina enn. helvítis óæti þetta heilagfiski.
Hnyttnasta fyrirsögn vikunnar: Ísinn að bráðna í deilu Dana og Grænlendinga um Thule? < ---- insert sophisticated ironical laughter here ---->…skemmtilegt.
farinn á kennarafund….veeiiiiiiiii … (noott). síðar.
3/7/2003 … heyrðu…
…það er bara vetrarfrí og læti.
farinn að blabla. síðar.
3/4/2003 …ekki kannast ég við þetta helvíti….
…ég fann þetta skemmtilega próf á vefsíðu ungra vinstrigrænna (ekki spyrja mig hvurn djöfulinn ég var að gera þar…). það kom í ljós að ég er
Þú ert Steingrímur J. Sigfússon:
Þú ert sannkallaður
vinstri-víkingur þó að þú tapir þér stundum í mótmælunum. Hjá þér skipta
hugsjónir mestu máli.
Taktu “Hvaða stjórnmálaleiðtogi ert þú?” prófið
éééééég verð að segja að ég var ekkert sérlega sáttur við þessa útkomu. ég er sko ekki rauðhærður og ég kannast ekkert við að vera með sömu skoðanir og skallagrímur. prumppróf semsagt.
farinn að kvarta. síðar.
3/4/2003 …Dabbi kóngur á ferð og flugi…
…já nú er loksins að verða eitthvað vit í íslenskri pólitík. bara spillingarmál og læti. mútur og fjör. loksins getur maður horft á kosningafréttir og haft gaman af því. almennilegt skítkast og mannorðsmorð bara hægri vinstri. málaferli og ærumeiðingar. það var kominn tími til að við fengjum almennilega spillingu upp á yfirborðið hérna. nú er maður farinn að hlakka til að fylgjast með sápunni fram að kosningum. og spennan maður. Er dabbi að segja satt eða er hann að redda sér út úr vandræðum? er jón ásgeir í alvöru með svona rickshaw hár eða fékk hann lánaða hárkollu hjá richard scobie? er jón “gerlach” sullenberger til í alvörunni eða er hann bara jóhannes í bónus að gera grínröddina sína til að gera símaat í fréttamönnum? er ingibjörg sólrún strengjabrúða? lengist nefið á henni þeg