Author Archive

Ókei.

1. Hound Dog. Elvis. Spelkur. Hnjásveiflur og mjaðmahnykkir. Forrest Gump.

2.Sextánda öld. Tvær ættir á banaspjótum í Verónaborg. Ódauðleg ást. Byssusverð. Romeo & Juliet.

3. Ennio Morricone. Clint Eastwood.  Spaghetti. Spiladósar-vasaúr. For a Few Dollars More.

4. Sweet Jane. Juliette Lewis. Woody Harrelson. Morð. Limlestingar. Snilld. Natural Born Killers.

5. New York New York. Ekki bleyta þá. Ekki gefa þeim að borða eftir miðnætti. Ekki genabreyta þeim svo þeir fái geðveikt stóran heila og fari að tala með posh breskum hreim. Gremlins 2: The New Batch.

Comments 1 Comment »

Náðist fyrir miðnættið. Getraunin er einföld í dag, allir ætt uað geta fengið fullt hús.  Einfalt: fimm tóndæmi, fimm kvikmyndir. Í fimmtu spurningu er sérstaklega spurt um kvikmynd sem var framleidd árið 1990.

1. Hvaða kvikmynd?

2. Hvaða kvikmynd?

3. Hvaða kvikmynd?

4. Hvaða kvikmynd?

5. Hvaða kvikmynd?

Comments 9 Comments »

Ungir og gamlir eru að skreyta jólatré.

Eygló: Við gleymum alltaf að setja pakka fyrir Jesús undir tréð á jólunum.

Jóhannes: Já en hann er aldrei í mat hjá okkur á aðfangadag.

Eygló: Já en hann á afmæli á jólunum!

Bragi: Ésús er sko dauður.

Eygló og Jóhannes:  O_o

—–

…og svo var Eygló að skrifa utan á pakkana:

Eygló (með tunguna í munnvikinu): …Til Sunnu Dísar, Frá Eygló og Br….

Bragi: Skrifaðu bara “Frá Eygló og Braga, Amen”.

Comments 1 Comment »

Það er hefð fyrir því að síðasta getraun mússíkmeistarans birtist á jóladag ár hvert. Nú hefur mússíkmeistaranum augljóslega seinkað svolítið, því að umsjónarmaður getraunarinnar var settur í gapastokk í tyrknesku fangelsi í þrjá mánuði (eða önnur líkleg skýring sem þið trúið betur).

Meistaranum verður því í þetta sinn framlengt yfir á nýárið, en engu að síður mun birtast getraun á jóladag, svo að keppendur geta farið að undirbúa sig andlega.

Annað smáatriði: Ég stóð í ujppfærslu á öllu kerfinu í síðustu viku, og allt draslið hvarf og fokkaðist royally upp, eins og gerist alltaf þegar ég uppfæri besserwissið. Fastir liðir eins og venjulega. Uppfokkið var með mildara móti í ár, en hafði hins vegar þá leiðu aukaverkun að stigatölurnar sem komnar voru í hús hurfu með manni og mús. Man einhver hvernig stigin stóðu?

Comments 4 Comments »

… á alþekktu skilti nú á dögunum, hefur besserwissið ákveðið að endurbirta gamla færslu sem fjallaði einmitt um þetta ákveðna skilti. Gerið svo vel:

Þessi frétt var í netmogganum áðan:

Páfi hyggst heimsækja Auschwitz-búðirnar
Upprunalega skiltið yfir hliði Auschwitz-fangabúðanna í suðurhluta Póllands verður hengt upp að nýju á meðan á fyrirhugaðri heimsókn Benedikts XVI páfa í búðirnar stendur en skiltið, sem á stendur „Arbeit macht frei” hefur verið tekið niður til viðgerðar.
Páfi, sem er þýskur, hefur beðið sérstaklega um að fá að heimsækja Auschwitz í heimsókn sinni til Póllands þann 25. til 28. maí næstkomandi.
Að minnsta kosti 1,1, milljón manna lét lífið í Auschwitz-Birkenau búðunum á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar, flestir þeirra í gasklefunum. Þeir sem ekki voru leiddir beint í gasklefana skráðu sig hins vegar til þrælkunarvinnu undir skiltinu sem um ræðir.

Sjá menn þetta ekki alveg fyrir sér:

Er það hér, undir þessu skilti, sem maður skráir sig í þrælkunarvinnuna? Já ég ætla þá að skrá mig, þrælkunarvinnu fyrir einn takk fyrir, það var allt fullt í gasklefunum…

Lesa yfir strákar, kommon.

Comments No Comments »

Fyrir allnokkru var boðið upp á besserwiss, þegar lesendur voru orðnir þreyttir á skoðanaleysi og litlum afköstum besserwissersins sjálfs. Sú færsla naut þvílíkra vinsælda að stofnaður var sérstakur færsluflokkur: “Vísindavefur besserwissins”.

Vísindavefurinn hefur nú göngu sína á ný og býður lesendum að spyrja besserwisser að hverju sem er í kommentum og fá svör við lífsins gátum. Svör verða að venju skrifuð án ábyrgðar en sneisafull af sannleika, enda liggur það í hlutarins eðli að besserwisser veit betur en aðrir wisserar.

Og já, ég veit að ég skulda ennþá eitt svaðalegt svar síðan síðast.  Það kemur einhverntíma þegar ég hef lausan mánuð.

Comments 3 Comments »

Vafasöm síðmótun í ham í Kastljósinu, febrúar 2008. Forspá?

Comments 2 Comments »

Árið 1982 var ég 9 ára og það sumar var fyrsta heimsmeistarakeppnin í fótbolta sem ég horfði á af áfergju. Þetta var sumarið sem ég uppgötvaði fótbolta fyrir alvöru. Á HM á Spáni riðu mergjaðar hetjur um héröð og mótuðu líf pjakka út um allan heim, og eftirá að hyggja er svakalegt hve mikið samsafn af legendum í fótboltanum var samankomið á þessu heimsmeistaramóti. Sem dæmi um hetjur voru

Ítalir urður heimsmeistarar með snillingum eins og Paolo Rossi, sem þótti flottastur þetta sumar en hefur síðan gleymst í sögunni, Franco Baresi, slátrarinn frá Mílanó, Marco Tardelli, Allessandro Altobelli, að ógleymdu Goðinu sjalfu, hinum ógleymanlega og eldgamla markverði Dino Zoff, sem þá var talinn besti markvörður heims þrátt fyrir að vera 40 ára á mótinu!

Vestur-Þýskaland var hins vegar óumdeilanlega allra flottasta liðið á þessu móti, og í raun ótrúlegt að þeir skyldu ekki vinna. Þarna voru menn sem greypst hafa í hetjubókina fyrir lífstíð, Harald Schumacher, Paul Breitner, varnarjaxlarnir og bræðurnir Bernd og Kalrheinz Förster, Pierre Littbarski, Felix Magath, Stephan Engels, Thomas Allofs og síðast en ekki síst hinir goðsagnakenndu Lothar Matthäus og Karl-Heinz Rummenigge. Kjarnahópurinn úr þessu liði urðu Evrópumeistarar árið 1980.

Frakkar státuðu af svakalegu liði sem innihélt meðal annarra Michel Platini, Manuel Amoros, Patrick Battiston, Maxime Bossis, Jean Tigana og Didier Six. Líklega er rosalegasti fótboltaleikur sem ég hef horft á leikur Frakka og Vestur Þjóðverja í 8 liða úrslitum 1982. Scumacher sparkaði tvær tennur úr Battiston í teignum án þess að fá svo mikið sem aukaspyrnu dæmda á sig, fjögur mörk skoruð í framlengingunni, Frakkar komust þar í 3-1, jöfnunarmark V-Þjóðverja kom með hjólhestaspyrnu og vítaspyrnukeppnin endaði á því að Bossis klúðraði lokavítinu og Hrubesch sendi Þjóðverja áfram. En ekki taka mín orð fyrir þessu, horfið hér:

Argentína var ekki síður hlaðið hetjum eins og Daniel Passarella, Alberto Tarantini, Jorge Valdano og fleiri, en þar bar auðvitað hæst undrabarnið Diego Armando Maradona, þá 21 árs og á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Maradona er, hvað sem hver segir, besti knattspyrnumaður sögunnar. Púnktur.

Jafnvel Belgar áttu hetjur eins og Eric Gerets, Jan Ceulemans og Jean-Marie Pfaff! Hróður Belga hefur heldur farið niður á við í fótboltanum eftir þetta mót og HM 1986, sem var þeirra langbesta performans (Belgía-Sovétríkin (5-4) á HM 1986 er t.d. einn mergjaðasti fótboltaleikur sem sögur fara af).

Liðið sem átti hug og hjarta heimsbyggðarinnar á þessu heimsmeistaramóti var hins vegar, þrátt fyrir allar hinar hetjurnar, hið ótrúlega lið Brasilíu.
Til að telja upp hetjurnnar þyrfti eiginlega að setja allan liðslistann hér inn. Látum nægja að taka fram menn eins og Zico, Falcao, Sócrates, Junior, Éder, Oscar, Serginho, Batista og Luizinho, allt goðsagnir í knattspyrnuheiminum. Þetta lið er að öðrum ólöstuðum besta lið sem brasilía hefur sent á heimsmeistaramót, og tæknilegasta og skemmtilegasta fótboltalið sem sögur fara af. Þeir unnu aldrei titil, en heimurinn elskaði þá samt. Þeir skoruðu 15 mörk, hverju öðru fallegra, í þessari keppni. Hér eru 11 þeirra:

Á HM 1982 festist fyrir alvöru sú hugmynd að mesta hetjan bæri töluna 10 á bakinu. Tíurnar Zico, Platini og Maradona sáu til þess.

Það mætti telja upp miklu fleira í sambandi við þetta legendaríska mót, en ég þarf víst að fara að gera eitthvað af viti. Ég skora á Keizarann að skella inn hjá sér umfjöllun um sitt uppáhalds HM, ég þykist reyndar vita hvað það er, en það er bannað að kjafta frá.

Comments 6 Comments »

Þessi færsla er sérstaklega tileinkuð öllum sem voru karlkyns og á aldrinum 10-15 ára árið 1983.

Comments 3 Comments »

Það er fátt sem gleður augað í fótbolta jafn mikið og vel útfærð tveggjafóta skriðtækling með takkana á undan. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að varnarmenn sem ekki fá gul og rauð spjöld reglulega séu lyddur. Þess vegna er ég ferlega ánægður með þetta video hér. Skil ekki hvað ameríkanar eru að væla yfir þessum brotum. Ef dómarinn sá þau ekki þá eru þau bara vel útfærð varnarmennska. Strikerarnir fá panic kast þegar þær heyra másið í henni á strauinu fyrir aftan sig…

Comments 3 Comments »

1. Tríóið er Stock, Aitken and Waterman og það er úr mörgu að velja. Flestir nefndu þó Respectable með Mel and Kim og Never Gonna Give You Up með Rick Astley. Þetta var svona subtle Rickroll.

2. Lagið í tóndæminu er vissulega Talk með Coldplay. Um það var hins vegar ekki spurt, heldur úr hvaða lagi laglínan er fengin að láni. Það lag er Computer Love með Kraftwerk. Talk halar inn núll stig hér enda hefði það verið allt of létt.

3. Girl You Know It’s True með Milli Vanilli. Var að hugsa um að spyrja “hverjir syngja” …

4. Slave To The Grind með Skid Row. Tónleikarnir voru í Laugardalshöllinni árið 1992, og voru stórkostlegir.

5. Andrew Ridgeley syngur. Lagið er Red Dress af þeirri mergjuðu sólóplötu ‘Son of Albert’.

Comments 4 Comments »

Fyrir þá sem ekki hafa tekið þátt áður skal eftirfarandi áréttað:

  • Svör skulu póstuð í komment hér. Þau birtast ekki fyrr en umferðinni lýkur, en stigagjöf birtist fyrr.
  • Vilji menn hafa vaðið fyrir neðan sig má senda afrit af svörum á besserwiss@gmail.com.
  • Aðeins fyrsti svarpóstur gildir. Póstið því svörum öllum í einum pósti. Ekki verður tekið tillit til síðari viðbóta við svör.

    Umferðinni lýkur kl. 20:00 föstudagskvöldið 6. nóvember.

    1. Þetta lag var fyrsta lagið sem þekkt teymi pródúsenta kom á toppinn á breska listanum. Nefnið tvö önnur topplög sem voru framleidd af sama teymi. (2)

    2. Úr hvaða lagi er þessi ljúfa melódía fengin að láni? (1)

    3. Hvaða lag með hvaða hljómsveit hefst á þessum orðum? (2)

    4. Hvaða lag er þetta , og hvaða ár hljómaði það á tónleikum á Íslandi? (2)

    5.
    Hver syngur? (1)

  • Comments 14 Comments »

    Þá er komið að því að keyra í gang mússíkmeistarann 2009. Að venju verður keppnin illa skipulögð, sigurvegari ekki skýr að lokum, dómarinn asni, og svindl og prettir munu að líkindum viðgangast sem aldrei fyrr. En eins og maður segir í fótboltanum, þetta er allt bara hluti af leiknum.

    Það verða engar flóknar reglur. Svarið spurningunum og rétt svör gefa stig. Sá sem hefur flest stig vinnur. Það verða engir hlutfallaútreikningar eða flókinn bisness með stigagjöf. Ef menn ekki fylgjast með og missa af, nú þá fá þeir bara engin stig í það skipti. Svekk.

    Sú nýjung verður þó tekin upp að þegar ný umferð er póstuð á besserwissið þá verður gefin út tilkynning á hryllingssíðunni Facebook spurningaþyrstum aðdáendum Mússíkmeistarans til aðvörunar. Svör skulu póstuð á besserwissið.

    Fyrsta umferð birtist núna fyrir helgi, þegar ég hef tíma til að búa til nógu svæsnar spurningar. Þetta verður ekki fyrir amlóða í ár.

    Comments 1 Comment »

    Ókei. Við Keizarinn höfum ansi hreint svipaða húmorkirtla. Hér eru þrjár auglýsingar Frá Ica Maxi, (sem er sænskur ofursúpermarkaður, búðir gjarnan á stærð við Schippolflugvöll) sem hann pimpaði á Keizarablogginu. Því er skemmst frá að segja að þetta fannst mér fáránlega fyndið. Það verður að horfa í réttri röð. Það má ekki svindla.

    Comments 3 Comments »

    Einhvern tíma bauð ég í hrefnukjötsgrillveislu niðri á bryggju daginn sem Greenpeace siglir skipi inn í Reykjavíkurhöfn. Það tilboð stendur enn. En til eru þeir sem mér er meira illa við en Rainbow Warrior liðið. Já, við erum að tala um loftbelginn Paul Watson og það auma safn eðjóta sem kallar sig Sea Shepard.

    Fyrir þá sem hafa svipaða lífssýn er upplagt að að kíkja á þennan ágæta South Park þátt hér: Whale whores.

    Comments No Comments »