Vefmiðlarnir mbl og visir flytja okkur pubulnum reglulega fréttir af ævintýrum Ásdísar Ránar í útlöndum. Það er athyglivert að í næstum hvert sinn sem það gerist er fréttin gripin beint upp úr auglýsingabloggi Ásdísar, http://asdisran.blog.is/blog/asdisran/ . Eina lýsingarorðið sem hægt er að nota með góðu móti um það blogg er “makalaust”. Ásdísi hefur með því tekist að ræna titlinum “sjálfhverfasta næstumþvífræga persóna Íslands” af Fjölni Þorgeirssyni, sem fræðimenn töldu ógerlegt.
Archive for the “Blöskr!” CategoryEr ég einn um að finnast það meira en lítið einkennilegt að dagblöð flytja daglega ferlegar fréttir fullar af vandlætingu af Ágústi Magnússyni, dæmdum kynferðisbrotamanni í sænskum biblíuskóla, á meðan hvert einasta tölublað af Séð og Heyrt flytur á sama tíma fréttir af því að Aron Pálmi Ágústsson, dæmdur kynferðisbrotamaður, hafi fengið sér ís á Hard Rock og aflitað á sér hárið? Afsakið en finnst fólki þetta vera normal? Hverjum datt i hug ad lata thennan blinda durg daema urslitaleikinn??? Ertu ekki ad grinast??? thad er otrulegt ad domarar skuli vera svo miklir aumingjar ad their thori ekki ad daema eftir reglunum i storum leikjum. Rosetti var EINI madurinn a vellinum sem sa ekki eda thottist ekki sja ad Marcenha setti boltann i hendina OG lek honum nidur fyrir faeturna a ser inni i teignum!!! HVenaer er thad ekki viti??? I urslitum EM2008, thad er hvenaer. Og hvad er madurinn ad paela ad tala ekki vid linuvordinn thegar allt thyska lidid er buid ad benda honum a ad David Silva skalladi Podolski??? Hvenaer er thad ekki rautt spjald??? Eg skal segja ykkur hvnaer…i urslitum EM 2008 takk fyrir! OG I ALVORU, HVERN DJOFULIN VAR MADURINN AD DAEMA A A 85 MINUTU THEGAR GOMES VAR MED BOLTANN FYRIR OPNU MARKI!?!?!?!?!?!?! Thad er ekki i lagi med thennan mann! Ad lokum skal bent kurteislega a ad their sem eru alika blindir og domaraaulinn aettu ad hafa vit a ad halda kjafti a kommentakerfinu minu.
Jun
21
2008
Moggabloggið hvað? Vísisbloggið blívur betur.Posted by Jóhannes Þ. in Blöskr!, Fjölmiðlar, HálfvitarEins og margir kíki ég daglega á Vísi.is. Þar er skemmtilegur kassi til hægri á síðunni sem telur upp fyrirsagnir úr nýjum bloggum á vísisblogginu. Eiginlega eru þeta skemmtilegustu fyrirsagnirnar á þessum arfaleiðinlega fréttavef, sem upp á síðkastið virðist hafa tekið ritstjórnarlega ákvörðun um að Íslendingar muni miklu frekar lesa þar fréttir ef reglulega koma “fólk í fréttum” fréttir tengdar nekt, brjóstum, djammafglöpum og öðru slíku með aftaníhnýtingunni ” – myndir“. Læt það svo sem kyrrt liggja, en bendi á þennan skemmtilega lista yfir myndafréttir Vísis.is, sem Katrín.is tók saman í tilefni kvennadagsins. En já þarna vísisbloggin. Þar eru ansi skemmtileg skrín inn á milli. Til dæmis konan sem æpir allar fyrirsagnirnar sínar ALLT MEÐ CAPS: GUÐ MINN GÓÐUR ÞAÐ GERÐIST EITTHVAÐ Í FRÉTTUNUM Í DAG stíllinn hjá henni á hverjum degi. Skemmtilegri er samt náunginn með upphrópunarmerkjafetishið sem byrjar svona meira dannaður en svo kemst maður að því í lokin að hann var í raun og veru að garga allan tímann, allt frá: Þrettán löggur í rannsókn vegna ofbeldis !!!! – og upp í: Eyðsluseggurinn Geir H Haarde !!!. Hress gaur. Maðurinn sem fékk hugmyndina um að búa til hunang á Íslandi er núna mest óuppáhalds maðurinn minn í veröldinni. Hann ákvað nefnilega að flytja til Íslands FJÖRTÍU ÞÚSUND BÝFLUGUR!!!!!!!!!!!!!!!!! Þegar, já ég sagði þegar, ekki ef….. þegar þessar býflugur sleppa út í náttúruna og taka að hrella mig á sumrin mun ég persónulega leita uppi þennan súrrandi geðbilaða einstakling og rétta honum nokkur vel útilátin spítalavink fyrir að eyðileggja líf mitt. Býflugumaður…you’ve got it coming.
Feb
17
2008
Sjálfskipuð uppínefrignandi merkikerti.Posted by Jóhannes Þ. in Blöskr!, Hálfvitar, MorfísÞað er margt sem fer í taugarnar á mér. En fátt fer jafn mikið í taugarnar á mér eins og þegar sjálfskipaðir postular bloggheima taka upp hjá sér að skíta yfir eitthvað á röngum forsendum. Sérstaklega þegar þetta “eitthvað” er eitt af því fáa sem ég hef í alvöru vit á. Það er til dæmis ákveðinn hópur fólks sem virðist líta á það sem einhvers konar upphafningu á sjálfum sér að skíta yfir MORFÍs í hvert sinn sem keppnin kemst í fréttirnar. Því miður þá hefur þessi keppni komist í fréttirnar fyrir ýmislegt misjafnt undanfarið og auðvitað sjálfsagt að fólk gagnrýni þá þau atriði sérstaklega. en það eru helvítis alhæfingarnar sem fara í taugarnar á mér. Alveg rosalega mikið í taugarnar á mér. Það eru alhæfingar sem ganga út á að MORFÍs sé tóm skrípalæti og fíflagangur sem eigi ekkert skylt við alvöru ræðumennsku, aldrei hafi alvöru ræðumenn komið úr þessari keppni og það sé nú synd að ekki sé verið að kenna krökkunum í MORFÍs ALVÖRU ræðumennsku eins og Ögmundur Jónasson og Steingrímur Joð kunna, svona ég-get-talað-í-tvo-klukkutíma-blaðalaust-ræðumennsku. Því samkvæmt þessum sjáfskipuðu postulum ræðumennskunnar er það hið eina sanna ræðuform sem skiptir máli. Og þessvegna er samkvæmt þeim heimskulegt að leggja hitt á sig. Flestir af þessum bloggpostulum tala líka massíft niður til framhaldsskólanema, tala um að þessir krakkar hafi ekki vit á því að gera betur eða skilji ekki hvað ALVÖRU ræðumennska er. Þetta viðhorf fer GÍGANTÍSKT í taugarnar á mér vegna þess að ég VEIT að þessir sjáfskipuðu postular eru einmitt týpurnar sem voru í ungliðahreyfingum stjórnmálaflokka eða í umhverfissamtökum eða einhverju slíku þegar þeir voru SJÁLFIR á framhaldsskólaaldri og töldu sig ÞÁ vera fullkomlega fullorðið fólk sem hafði eitthvað að segja í þjóðfélaginu. Hræsni er orð sem ég nota hiklaust um þetta lið. Hræsni. Ég skal fyrstur manna viðurkenna það fúslega að týpísk MORFÍs ræða myndi ekki fljúga á Alþingi (á hinn bóginn má benda á að ræður á Alþingi eru líka hundleiðinlegar margar hverjar, en það kemur málinu svo sem ekki við). Hins vegar þarf þetta sjálfskipaða siðapostulagengi að átta sig á því að MORFÍs er ekki hluti af námsefni framhaldsskólanna. Þetta er einfaldlega keppni milli skóla og langstærsti tilgangur hennar er að skemmta áhorfendum. Að ranta yfir því að keppendur í MORFÍs haga sér ekki eins og Cicero og Cato er því í besta falli barnalegt og sýnir algert skilningsleysi á því hvað þessi keppni er. Það þurfa ekki allir að vera Cicero. Fyrir flesta er nógu erfitt að standa upp fyrir framan fólk, sem er einmitt eitt af því sem við kennum byrjendum í tengslum við MORFÍs. MORFÍs er KEPPNI Í RÆÐUMENNSKU. Það í sjálfu sér er ótrúlega heimskulegt fyrirbæri. Ræðumennska og keppni í ræðumennsku er hreint og beint ekki sami hluturinn. Ég hata margt við MORFÍs ræðumennsku sem ég beiti samt óspart í þjálfuninni, einfaldlega vegna þess að það virkar í keppninni, gefur stig á dómblaðinu sem keppnin mótast af. Keppnin verður aldrei betri en dómblaðið ætlast til. Í hinu raunverulega lífi er ekkert dómblað. Sá er stóri munurinn. Og að bera þetta tvennt saman er því beinlínis fíflalegt að mínu mati. Hvað þá að taka Morfís sem eitthvað dæmi um hvað framhaldsskólanemar viti ekki hvað þeir eru að gera. En það sem fer MEST í taugarnar á mér við þessa ranta sjálfskipaðra moggabloggpostula um MORFÍs er hvernig þeir dæma starfið mitt án þess að hafa hundsvit á því. Þeir skrifa í það minnsta þannig að það er eins og þeir hafi alla sína vitneskju um keppnina úr DV greinum. Viti þeir betur ættu þeir að skrifa betur. Allt þetta lið alhæfir á alhæfingar ofan. En þau verða að gera sér grein fyrir því að keppendurnir vita alveg að morfís er ekki það sama og real life! Það þýðir hins vegar ekki að þeir sem taka þátt í keppninni læri ekkert um ræðumennsku af henni! Ég hvet postulapakkið til að spyrja fólk eins og Gísla Martein Baldursson, Dag Eggertsson, Guðmund Steingrímsson, Helga Hjörvar, Ingu Lind Karlsdóttur, Eyrúnu Magnúsdóttur, Sigmar Guðmundsson, Sigurð Kára Kristjánsson, Ólaf Teit Guðnason, Rúnar Frey Gíslason, Orra Hauksson, Árna Helgason, Stefán Pálsson, Birgi Ármansson, Illuga Gunnarsson, Oddnýju Sturludóttur, Stefán Eiríksson, Þórhildi Ólafsdóttur, Snorra Engilbertsson, Erp Eyvindarson og fleiri hvort þau telji sig raunverulega hafa lært nákvæmlega ekki neitt um ræðumennsku af því að taka þátt í MORFÍs þegar þau voru í framhaldsskóla? Ég skal lofa því hátíðlega að allt þetta fólk og fleiri til myndu svara þeirri spurningu á þá leið að þótt þau séu ekki að nota beint trikkin sem þau notuðu í MORFÍs á sínum tíma þá búi þau enn að því sem þau lærðu varðandi góðan undirbúning, gagnrýna rökhugsun, framsetningu efnis og svo framvegis. Ég held að við getum verið sammála um að allt þetta fólk hefur sýnt það og sannað að það kann að koma fyrir sig orði á opinberum vettvangi. Það er jafn fullkomlega ljóst að fyrsta þjálfunin sem allt þetta fólk fékk í þannig framkomu var í MORFÍs. MORFÍs er langt frá því að vera fullkomið form. En að halda því fram að MORFÍs sé úrelt fíflalátasamkeppni sem skili engri raunverulegri þekkingu sem nýtist framhaldsskólanemum í framtíðinni er yfirlætislegt snobbkjaftæði hjá þessu fólki og þau ættu að skammast sín fyrir að láta það út úr sér. Ég er einfaldlega orðinn hundleiður á moggabloggurum sem telja sig vita betur en ég um hvað starfið mitt snýst. Eða eins og við nöllarnir segjum í góðum svarköflum: Kynntu þér málið áður en þú opnar á þér munninn! Þið verðið að afsaka tvær færslur í röð, en ER EKKI ALLT Í LAGI HEIMA HJÁ ÞESSU FÓLKI??? HVERSU SNARGEÐBILAÐ ER ÞETTA LIÐ EIGINLEGA??? Ef Bobby Fischer verður grafinn í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum lýsi ég í fúlustu alvöru eftir fólki til að koma með mér og grafa hann upp aftur.
Jan
18
2008
Minning um mann.Posted by Jóhannes Þ. in Blöskr!, Bobby Fischer, Fjölmiðlar, Jóhannes fýlupúkiBobby Fischer er allur. Dánarorsökin er sögð nýrnabilun, en eins og talsmaður “RéttlætiJafnréttiFrelsi hópsins” (minnið mig á að skrifa hér færslu með óritskoðuðum skoðunum mínum á þeim félagsskap) orðaði það var Fischer “lítið um vestræn læknavísindi gefið”. Það er mátulega pent orðalag fyrir fjölmiðla yfir skoðanir Fischers á vestrænum læknavísindum. Nú er það ljóst að heimurinn hefur misst afskaplega merkilegan mann, undrabarn, rökfræðisnilling, yfirburða gáfaðan mann á ákveðnu sviði. Það er jafn ljóst þeim að maðurinn sá gekk ekki alveg heill til skógar, eins og gjarnt er með þá sem búa yfir snilligáfu á einu sviði. Það er svona eins og allar sellurnar safnist saman á einu svæði í heilanum og restin verði svolítið útundan. Þannig kom Fischer mér fyrir sjónir að minnsta kosti. Ég varð þess heiðurs(?) aðnjótandi að eyða kvöldstund með Fischer í teiti einni í Breiðholtinu á síðasta ári. Um það má lesa nánar hér og ekki ætlunin að rekja það allt aftur. Þar rabbaði ég við manninn um margt milli himins og jarðar, þó allt bæri það að sama brunni á einhverjum tímapunkti hverrar umræðu. Og skemmst er frá því að segja að Fischer var ekki beinlínis maður sem lá á skoðunum sínum þegar einhver vildi hlusta. Þess vegna finnst mér það hreint ótrúlegt að þegar Fischer er látinn skuli fólk keppast við að lýsa því yfir í fjölmiðlum hversu vel honum hafi nú liðið á Íslandi. Helgi Ólafsson segir til dæmis að hann viti að Fischer hafi liðið vel hér á landi, það hafi hann sagt sér nýlega. Ég hef það eitt um þetta að segja að Fischer hefur þá sagt Helga eitthvað annað en hann sagði mér. Þegar ég ræddi við Fischer þá varð honum tíðrætt um Ísland og Íslendinga og það sem hann hafði að segja var sannarlega ekki til þess fallið að hafa það eftir í barnaafmælum, þvílíkur var fúkyrðaflaumurinn. Hann gerði það algerlega lýðum ljóst að Ísland væri ömurlegt land á allan hátt, hér væru allir stjórnmálamenn gerspilltir, landið útmengað og viðbjóðslegt af álverum og annarri stóriðju og að íslendingar væru almennt hörmulegur ættbálkur metnaðarleysingja og undirmálsfólks. Það var klárt mál sagði hinn merki maður, að hann ætlaði að koma sér af landi brott við fyrsta tækifæri. Og bara svo það sé á hreinu þá er ég ekki að búa neitt til hérna, þetta getur hver sá sem þarna ræddi við Fischer staðfest. Ég verð nú að segja að það er gott ef blessaður maðurinn hefur skipt um skoðun, en satt að segja kom hann mér nú ekki fyrir sjónir sem maður sem skiptir auðveldlega um skoðun. Sæmundur Pálsson talar líka um að vinskapur þeirra félaga hafi haldist alla tíð þrátt fyrir skapsveiflur Fischers. Af velsæmisástæðum ætla ég ekki að telja upp það sem Fischer hafði að segja um vin sinn Sæmund, en látum nægja að það var ekki sérlega vingjarnlegt. Samkvæmt mínum heimildum (sem eru nokkuð öruggar í þessu máli) þá eyddi Fischer drjúgum hluta síðasta árs í að ófrægja Sæmund í hvers manns eyru á þess konar hátt að ég fyrir mitt leyti hefði snarhætt að telja viðkomandi til vina minna. En það kemur mér svo sem ekki við. Máske skipti Fischer um skoðun varðandi þetta líka. Hver veit. Þessi ummæli um Fischer heitinn koma mér af þessum ástæðum eilítið spánskt fyrir sjónir, en kannski er þetta bara eðlilegt. Þegar menn missa vini sína er algengara að minnast þeirra góðu stunda sem menn áttu saman. Hitt má kannski kyrrt liggja. Skamm Jóhannes fýlupúki. Skamm. Það er í það minnsta vonandi að næsta líf verði Fischer léttbærara en það síðasta. Fréttir í dag: Heimsmarkaðsverð á olíu fer yfir 100 dollara á tunnuna. Afleiðing: Íslensku olíufélögin hækka verð á eldsneyti enn frekar. Ég bendi fólki á að skoða þessa umfjöllun BBC um viðskipti með olíu á heimsmarkaði í dag. Hún sýnir svart á hvítu hversu miklir þrjótar íslenskir olíubarónar eru.
Dec
20
2007
Undarleg forgangsröðunPosted by Jóhannes Þ. in Blöskr!, Jóhannes fýlupúki, Pólitík/SmólitíkFinnst engum öðrum það svolítið skrýtið að á meðan 4 milljónum er varið í mannréttindamál á Íslandi árið 2008 ætlar utanríkisráðherra að styrkja Palestínsku sjálfsstjórnarsvæðin um 250 milljónir. Og það á sama tíma og Palestína er í algerri upplausn, Tvær stríðandi fylkingar ráða hvor sínum hluta svæðanna og engin lausn á þeim vanda í sjónmáli. Þykir engum öðrum það undarlegur tvískinnungur að lofa Fatah hreyfingunni fé á þennan hátt í þessum aðstæðum eftir að allur fjárstuðningur var frystur á meðan Hamas samtökin voru við völd? Og nú eftir að de fakto fjárkúgun vesturlanda færði stjórnina aftur í hendur Fatah á allt í einu að gefa fullt af peiningum. Þetta heitir í minni bók hræsni. Það er nefnilega ekki hægt að halda því fram að það þurfi að auka lýðræði í múslimaríkjum mið-austurlanda og neita svo að virða niðurstöðu lýðræðisins þegar hún hentar ekki vesturlöndum. Það hefði í alvöru verið fróðlegt að sjá hverju Hamas hefði áorkað í málefnum Palestínu hefðu samtökin fengið að vera við stjórn við “eðlilegar” aðstæður, þ.e. án fjárkúgunar vesturlanda. Til dæmis eru Hamas að sumu leyti samfélagsvænni samtök en Fatah, rekur t.d. nokkur sjúkrahús, skóla og fleiri samfélagsstofnanir sem sárlega vantar á þessu svæði. Hamas eru auðvitað líka herská hryðjuverkasamtök en það vill oft gleymast að það eru PLO samtökin líka (t.d. úthrópuð af Bandaríkjunum sem slík árið 2004) og Fatah eru stærstu samtökin innan PLO. Það má kannski segja að Fatah sé á svipuðum status og Batasuna á Spáni (pólitískur armur ETA) og Sinn Fein á Írlandi (pólitískur armur IRA). Persónulega skildi ég aldrei hvernig Yasser Arafat, annálaður terroristi gat orðið forseti Palesínu og verið samþykktur í alþjóðasamfélaginu sem slíkur fyrir það eitt að viðurkenna tilvistarrétt Ísraels árið 1993. Það er soldið svipað og ef Osama Bin Laden yrði Forseti Afghanistan og allir væru ánægðir með það bara. Það hefði mögulega verið gáfulegt að gefa Hamas tækifæri til að þróa með sér svoan pólitískan arm sem með tímanum gæti orðið hinum herskáa yfirsterkari, eins og t.d. hefur gerst hjá PLO, IRA og er að gerast hjá ETA. Bara svona pæling. ÞEtta eru náttúrulega allt saman svona “rather iffy questions” eins og Roosevelt hefði orðað það. Alltént. Mér persónulega þykir þetta vafasöm hegðun í alþjóðastjórnmálum hjá Íslendingum (og restinni af vesturlöndum). Og þegar koma á næstu árum reglulegar fréttir af vandamálum, niðurskurði og fjárskorti í heilbrigðiskerfinu, heilsugæslunni, menntakerfinu og öðrum grunnstoðum Íslensks samfélags þá legg ég til að við spyrjum Ingibjörgu Sólrúnu: “Ingibjörg, hvar eru milljónirnar okkar?”. Svona til að taka einfalt dæmi og fá smá perspektíf á töluna þá er áætlað að veita 281 milljón í málefni fatlaðra á næsta ári. Af hverju fá fatlaðir ekki 531 milljón Ingibjörg Sólrún? Af hverju þurfa Palestínumenn meira á þessum peningum að halda en fatlaðir íslendingar? Ef frú utanríkisráðherrann getur svarað þessari spurningu á sómasamlegan og sannfærandi máta skal égkaupa mér hatt og éta hann. Alltaf þegar maður heldur að morfís geti ekki orðið meiri backstabbing sýrubisness þá kemur þessi elska manni á óvart. Nú eru FÁ ingar víst búnir að kæra úrslit keppninnar á föstudaginn. Ekki veit ég á hvaða forsendum, en sé ekki alveg hvernig sú kæra ætti að geta fallið undir lög um rétt morfís. Ef til vill getur fróður lesandi frætt mig á hvoru tveggja. Víst er að morfis.is er í lamasessi varðandi fréttir. Nú svo er auðvitað krassandi og kjammsandi svæsin samsæriskenning í gangi um að Skapti morfísformaður (sem er MR ingur) hafi barasta skotist í tölvu og breytt grein 3.12 snöggvast þarna eftir keppnina svo að þetta dytti nú MR megin. Alls konar fólk minnir að eitthvað allt annað hafi staðið í þessari grein einhverntíma og man ekkert eftir því hvenær henni var breytt og svona og þykir þetta allt dularfullt. Mér finnst þetta ekkert sérlega dularfullt. Lögin eru bara svona, einhverntíma var þeim breytt og það skiptir barasta engu máli hvort einhver man eftir því eða ekki. Ef menn vilja eitthvað skoða þetta nánar hlýtur að vera auðvelt að fara í fundageraðbók morfís og skoða það á hvaða aðalfundi þessi breyting kom fram. Það er að segja ef fundagerðabók morfís hefur verið almennilega haldin. Eitthvað segir mér að bókin sú sé meira í ætt við eitthvað vafasamt vasabókhald út um allt. Ég ætla því einfaldlega að slengja því fram hér að samsæriskenningin á ekki við rök að styðjast. Eg legg því til stuðnings fram einfalt sönnunargagn er dregur enga dul á að þann 7. nóvember voru lögin birt á vefsíðu morfís nákvæmlega eins og þau eru í dag. Sönnunargagn A. Takk fyrir og góðar stundir. Hafi fólk þörf fyrir að ræpa út um þetta í kommentum er það frjálst. Ég er að horfa á upphafið á landsleiknum við Spánverja og Jóhann Friðgeir, einn af ástsælustu óperusöngvurum þjóðarinnar, er að syngja þjóðsönginn á vellinum. Og mannkertið Er með textann í nótnabók!!! Og hann er sífellt að kíkja á textann!!! Ertu ekki að fokking kinda mig??? Afsakið mig, en ef þú kannt ekki textann að þjóðsöngnum þá áttu að drullast til að læra hann áður en þú syngur hann fyrir framan þjóðina í beinni útsendingu!!! Djöfuls fokking skandall! Útaf með manninn!
Aug
23
2007
Svali!Pútín og Grúppíur Skáldsins JónasarPosted by Jóhannes Þ. in Blöskr!, Fjölmiðlar, Pólitík/SmólitíkÉg fletti Mogganum í dag. Það er í sjálfu sér ekki í bloggfærsluvænt efni, en þar vildi svo til að ég sá tvær myndir sem gerðu Moggaflettingu dagsins að algerlega stórfenglegri upplifun. Í fyrsta lagi var þar að finna þessa mynd hér: Hin myndin sem ég sá er þessi hér, og titillinn var: Samræður við Jónas Hallgrímsson eða eitthvað á þá leið og greinin fjallaði um listsýningu á Akureyri þar sem einhverjir tólf listamenn láta inspírerast af Jónasi. Ég myndi vilja sjá svona seríu: “Glyðrur á gröfum” sjö hálnaktar glyðrur á gröf jóns Sigurðssonar, hver með einn staf í orðinu “Sýfylis” málaðan á magann á sér. Tvær naktar glyðrur á Þingvallagröfinni hans Einars Ben, í stáltáarskóm og með verkamannahjálma…þið vitið…aðgát skal höfð o.s.frv. Nokkra Chippendalesstrippara að steppa á gröf Bríetar Bjarnhéðinsdóttur… það verður jú að vera jafnrétti í þessu sko…
Jul
17
2007
Eignarfallsess og annar ófögnuðurPosted by Jóhannes Þ. in Blöskr!, Jóhannes fýlupúki, Litlir snillingar, málsóðaskapurDóttir mín er úti í garði með vinkonu sinni. Þar er geypilegur mömmóleikur í gangi með tjaldi, þrem dúkkuvögnum, slatta af dúkkum og þar fram eftir götunum. Af náðarsemi og miskunn fær bróðir hennar að vera með, jújú einmitt, sem litla barnið. Þara úti er mikið talað um ‘minns‘ og ‘þinns‘, ‘minns‘ gerði þetta eða hitt og ‘þinns‘ var bara sjö ára og svo fram vegis. Þetta virðist jú vera viðurkenndur talsmáti í mömmó og öðrum hlutverkaleikjum þegar maður er fimm til tíu ára eða svo. Og nú spyr ég í einfeldni minni: “Hvaðan í andskotanum kom þetta ess?” Já þetta aukaeignarfallsess sem spyrt er aftan við öll persónuornöfn í svona hlutverkaleikjum. Hvaðan?!? Nú er ég ekki beinlínis nýgræðingur í svona leikjum, hafandi leikið mér með legó fram á þrítugsaldurinn eins og konan mín þreytist ekki á að gera grín að mér fyrir, en á mínum sokkabandsárum þá var ekkert ess aftan við 1. og 2. persónu persónufornöfn í nefnifalli. Ónei! Þá riðu hetjur um héröð og stund þíns fegursta frama var algerlega esslaus með öllu. Þá var barasta sagt ‘minn‘ ef það var verið að tala um minn kall eða karakter, og ‘þinn‘ ef það var verið að tala um þinn kall eða karakter. í þá gömlu góðu daga (samt ekki mjög gömlu sko, því ég er svo ungur, við skulum hafa það á hreinu hér) var bara notað eignarfallsess þegar persónufornafn stóð í eignarfalli, svona til dæmis ef það þurfti að tala um ‘hans‘ kall eða karakter og svo framvegis. Svo eftir stendur mysterían um það hvernig í andskotanum þetta bévaða aukaess tróð sér inn í nefnifallsnotkun allra barna á landinu? Ég meina, þekkið þið lesendur góðir einhver börn á þessum aldri sem ekki nota svona asnaleg aukaess við þessar aðstæður? Sé svo vil ég endilega frétta af því til að endurvekja trú mína á íslenzkunni.* Ég mun hér eftir gera það að missjón í lífinu að berja þessa dellu úr mínum börnum. Börnin sem minns átti skulu sko læra að segja minn. Og enn er ég ekki kominn að því allra svakalegasta sem bar fyrir eyru þarna úti í miðjum mömmóleiknum mikla. Vinkonan greip til handargagns tuskukött einn ferlegan í eigu dóttur minnar og lýsti því yfir af einskærri gleði og kátínu að “Okkars átti líka þessa kisu…” Jóhannes málfræðifýlupúki saup auðvitað hveljur af eyrnaverk og var kominn með putta á loft til leiðréttingar þegar dóttir hans tók óvænt af honum ómakið: Og gamli fýlupúkinn Jóhannes beit snarlega í tunguna á sér og bólgnaði allur upp af föðurlegu stolti. — Annað sem nokkuð hefur farið í fínar máltaugar mínar á undanförnum árum er orðskrípið ‘nanananabúbú‘. Vissulega er slíkt skrípi þarft og nauðsynlegt öllum börnum, og það er segja má alþjóðlegt, getur haft ýmsar þýðingar en meiningin útleggst eitthvað á þessa leið: “Sjáðu mig, ég er á einhvern hátt betri/með betri hluti en þú, farðu að skæla/æpa/elta mig út um allt svo ég geti hlegið að þér og svo neitað allri sök og kennt þér um þegar mamma/leikskólakennarinn/einhver fullorðinn kemur að skamma okkur fyrir hávaða/óþekkt/slagsmál.” Þetta er jú viðurkennt samskiptaform barna út um allan heim ekki satt. En nú spyr ég: “Hvaðan í andskotanum kom þeta ‘búbú‘ eiginlega?” Hvenær breyttist nananananana í nanananabúbú? Var ‘búbú‘ið sett í Aðalnámskrá Leikskóla upp úr 1990? Er þetta út af EES samningnum? Jóni Baldvin að kenna? Hvaðan kemur þessi fjandi?!? Ef einhver getur gefið mér haldbæra útskýringu á því hvers vegna síðasta ‘nana‘ið í hinu auðskiljanlega og hljómfagra ‘nananananana‘ breyttist skyndilega í eitthvað fríkí ‘búbú‘ má sá hinn sami endilega setja það í kóment. Það er mínum skilningi ofaukið. Þökk þeim er hlýddu. Góðar stundir. *)Zetan er til öryggis ef ritstjórar Morgunblaðsins skyldu vera að lesa. Ég var að horfa á lokin á Kastljósinu rétt í þessu. Þar var Geir Ólafsson að “syngja”. Er ekki kominn tími til að einhver neyði manninn til ða horfa á myndband með sjálfum sér til að gera honum grein fyrir því hversu stórkostlega hallærislegur hann er? Og eins og til að bíta höfuðið af skömminni fór hann að spila á bongótrommur í miðju lagi. Ég neyddist til að líta undan til að hrista af mér aulahrollinn. Gvöðminngóður. Maðurinn var eins og eitthvað viðrini. Það væri strax skárra ef hann gæti eitthvað sungið af viti, en því er ekki að heilsa. Þessi rödd kæmist ekki einu sinni í gegn um áheyrnarprufurnar í Idolinu. Sveiattan. Fáðu þér alvöru vinnu Geir. |







Entries (RSS)