Þá er farið að styttast í Júró og ekki seinna vænna að setja fram offissíal spá fyrir undanúrslitariðlana tvo sem fara fram 20. og 22. maí. Tíu lög fara upp úr hvorum riðli þannig að samkeppnin er heví. Reyndar eru óvenju mörg ógeðslega léleg lög í ár svo að það hjálpar aðeins með valið. Opinber spá besserwissakademíunnar fyrir undanúrslitariðlana 2008 er sem hér segir:
Fyrri riðillinn 20. maí:
Fyrri riðillinn er mun óútreiknanlegri en sá seinni…allt of margar vafasamar breytur í þessum riðli svo að ég reikna fastlega með að þessi spá verði úti á túni að stórum hluta.
Eistland. Ó. Geðs. Legt. Lag. En þessir karlar komast áfram á fíflafaktornum. Þeir eru fífl. Kjósendur eru fífl. It’s a match made in heaven.
Azerbaijan. Evrópa mun elska Elnur og Samir. Þeir eru svo ótrúúúlega skelfilegir að þeir fara í heilan hring og verða algert æði. Þeirra performans er klárlega mómentið sem allir bíða eftir í þessari keppni.
Pólland. Konan sem lítur út eins og hestur. Sætur hestur samt, með ágætt lag og svo auðvitað réttu megin við járntjaldið.
Írland. Mér er þvert um geð að hafa þetta ömurlega fiðurfé á þessum lista, en það eru hverfandi líkur á að þetta komist ekki áfram. Það eina sem gæti komið í veg fyrir að þetta prumphænsn komist í úrslit er að heimskingjar allra landa sameinist um Leto Svet. En það gæti auðvitað líka orðið akkúrat öfugt. Ég ligg á bæn. um kalkúnaslátrun í ár.
Andorra. Stórfínt lag. Svo mörg voru þau orð.
Bosnía & Herzegovina. Stórskemmtilegt lag með stórskrýtnum flytjendum. Alveg bráðgott Balkangrín með alvarlegu ívafi. Rennur ljúflega áfram í úrslit.
Armenía. Title contender. Quele quele verður í toppbaráttunni í úrslitum. Topp fimm í það minnsta, líkega topp þrír. Klárt áfram hér.
Finnland. Ætla að skjóta á Finnana áfram. Ekki viss samt. En ég held að rokkið verið ballöðunum yfirsterkara í ár.
Rússland. Og hér er undantekningin sem sannar regluna. Dima verður í topp þremur með Armeníu og, hvað? Serbíu? Kemur í ljós. Rússland er alla vega pottþétt með gull silfur eða brons í ár.
Grikkland. Þjóðlagapopp með sætri steplu. Það gerir góða hluti eins og venjulega.
Seinni riðillinn 22. maí:
Svíþjóð. Það er eitthvað við þetta kreisí-ass sænska dívuattitjúd sem kemur kerlingum eins og Carolu og Charotte Perrelli áfram í svona keppnum. Júró elskar þetta stöff. Við hin neyðumst til að sætta okkur við það þrátt fyrir að lögin séu oft á tíðum undir pari. Fyrir utan Invincible auðvitað, sem er fráááábært lag.
Tyrkland. Það er bara of mikið af tyrkjum út um allt í Evrópu til að þetta lag fari ekki áfram. Auk þess eru þessir gaurar álíka frægir og Green Day á sínum heimaslóðum. Bókaðir áfram.
Úkraína. Þetta lag verður á topp tíu í úrslitakeppninni, sannið til. Þetta er bara lag sem virkar í júró. Svo er Ani Lorak heldur ekkert ógeðslega ljót…
Albanía. Svona miðað við BalkanskagaBallöður yfirleitt þá er þetta ekkert Lane Moje sko…en það er engin önnur BalkanBallaða í þessum riðli svo allir BalkanBallöðuBoltarnir neyðast til að kjósa þetta. Bingó.
Lettland. Sjóræningjar virka. Sættið ykkur við það. Svo er þetta bara ágætt lag líka. Alla vega töluvert skára en Jeronimas leðurbuxi og portúgalska konan sem er alveg að sofna allan tímann.
Króatía. Ef 75 cents fer ekki áfram þá er bara eitthvað rangt í veröldinni. Svo einfalt er það. Topp tíu kandídat í lokakeppninni.
Búlgaría. Ó, Búlgaría, Búlgaría. Hvað eruð þið að pæla. En þetta lag er sönnun þess að eftir Lordi er allt leyfilegt í þessari keppni. Og crowdið mun fíla það.
Malta. Þétt bít, hratt aksjón og ókynæsandi karlar sem þykjast vera rússar og segja Nostrovnje á réttum stöðum? Uppskrift að árangri. Klúbbahittari. Ömurlegt lag samt.
Kýpur. Femme Fatal. Total milf. 12 stig frá Grikklandi. Getur ekki klikkað.
Makedónía. Þetta er svona spurning um Makedóníu eða Sviss. Sviss er klárlega betra lag, byrjar vel en leiðist svo út í tóma meðalmennsku þegar þetta steríla trommubít kemur inn í það. Makedónía er klárlega ömurlegt lag, en breikdansandi Justin Timberlake wannabe gaurarnir munu fleyta því áfram. Það eru bara of margir tóndaufir heimskingjar sem kjósa í þessari keppni.
Glöggir lesendur taka eftir því að Ísland hlýtur ekki náð fyrir augum akademíunnar í ár. Ástæðan er rangar ákvarðanir. Þetta lag þarf dansara á sviðinu. Selma hefði ekki lent í öðru sæti með tvo stráka að syngja aaaaaaaaaaaaahhhhhhhh úúúúúúúúhhhhhh á réttum stöðum. Sorry gæs, en bakraddir skipta bara ekki skít máli í þessari keppni. Það er showið sem virkar.
Svona til samanburðar skal sett hér spá íslendku júróspekinganna um íslenska riðilinn sem var kláruð á laugardaginn:
Ísland
Svíþjóð
Tyrkland
Úkraína
Albanía
Króatía
Búlgaría
Danmörk
Makedónía
Portúgal
Lesendur eru hvattir til að senda inn sína spá fyrir 20. maí. Vegleg verðlaun eru í boði eins og venjulega fyrir þá sem geta flest rétt lönd áfram.