Náðist fyrir miðnættið. Getraunin er einföld í dag, allir ætt uað geta fengið fullt hús. Einfalt: fimm tóndæmi, fimm kvikmyndir. Í fimmtu spurningu er sérstaklega spurt um kvikmynd sem var framleidd árið 1990.
1. Hvaða kvikmynd?
2. Hvaða kvikmynd?
3. Hvaða kvikmynd?
4. Hvaða kvikmynd?
5. Hvaða kvikmynd?
9 Comments »
1. Tríóið er Stock, Aitken and Waterman og það er úr mörgu að velja. Flestir nefndu þó Respectable með Mel and Kim og Never Gonna Give You Up með Rick Astley. Þetta var svona subtle Rickroll.
2. Lagið í tóndæminu er vissulega Talk með Coldplay. Um það var hins vegar ekki spurt, heldur úr hvaða lagi laglínan er fengin að láni. Það lag er Computer Love með Kraftwerk. Talk halar inn núll stig hér enda hefði það verið allt of létt.
3. Girl You Know It’s True með Milli Vanilli. Var að hugsa um að spyrja “hverjir syngja” …
4. Slave To The Grind með Skid Row. Tónleikarnir voru í Laugardalshöllinni árið 1992, og voru stórkostlegir.
5. Andrew Ridgeley syngur. Lagið er Red Dress af þeirri mergjuðu sólóplötu ‘Son of Albert’.
4 Comments »
Fyrir þá sem ekki hafa tekið þátt áður skal eftirfarandi áréttað:
Svör skulu póstuð í komment hér. Þau birtast ekki fyrr en umferðinni lýkur, en stigagjöf birtist fyrr.
Vilji menn hafa vaðið fyrir neðan sig má senda afrit af svörum á besserwiss@gmail.com.
Aðeins fyrsti svarpóstur gildir. Póstið því svörum öllum í einum pósti. Ekki verður tekið tillit til síðari viðbóta við svör.
Umferðinni lýkur kl. 20:00 föstudagskvöldið 6. nóvember.
—
1. Þetta lag var fyrsta lagið sem þekkt teymi pródúsenta kom á toppinn á breska listanum. Nefnið tvö önnur topplög sem voru framleidd af sama teymi. (2)
2. Úr hvaða lagi er þessi ljúfa melódía fengin að láni? (1)
3. Hvaða lag með hvaða hljómsveit hefst á þessum orðum? (2)
4. Hvaða lag er þetta , og hvaða ár hljómaði það á tónleikum á Íslandi? (2)
5. Hver syngur? (1)
14 Comments »
Þá er komið að því að keyra í gang mússíkmeistarann 2009. Að venju verður keppnin illa skipulögð, sigurvegari ekki skýr að lokum, dómarinn asni, og svindl og prettir munu að líkindum viðgangast sem aldrei fyrr. En eins og maður segir í fótboltanum, þetta er allt bara hluti af leiknum.
Það verða engar flóknar reglur. Svarið spurningunum og rétt svör gefa stig. Sá sem hefur flest stig vinnur. Það verða engir hlutfallaútreikningar eða flókinn bisness með stigagjöf. Ef menn ekki fylgjast með og missa af, nú þá fá þeir bara engin stig í það skipti. Svekk.
Sú nýjung verður þó tekin upp að þegar ný umferð er póstuð á besserwissið þá verður gefin út tilkynning á hryllingssíðunni Facebook spurningaþyrstum aðdáendum Mússíkmeistarans til aðvörunar. Svör skulu póstuð á besserwissið.
Fyrsta umferð birtist núna fyrir helgi, þegar ég hef tíma til að búa til nógu svæsnar spurningar. Þetta verður ekki fyrir amlóða í ár.
1 Comment »