Archive for the “Daglegt raus” Category

allskonar drasl sem ekki á heima annarsstaðar…

AFSAKIÐ HLÉ

Comments No Comments »

Ókei.

1. Hound Dog. Elvis. Spelkur. Hnjásveiflur og mjaðmahnykkir. Forrest Gump.

2.Sextánda öld. Tvær ættir á banaspjótum í Verónaborg. Ódauðleg ást. Byssusverð. Romeo & Juliet.

3. Ennio Morricone. Clint Eastwood.  Spaghetti. Spiladósar-vasaúr. For a Few Dollars More.

4. Sweet Jane. Juliette Lewis. Woody Harrelson. Morð. Limlestingar. Snilld. Natural Born Killers.

5. New York New York. Ekki bleyta þá. Ekki gefa þeim að borða eftir miðnætti. Ekki genabreyta þeim svo þeir fái geðveikt stóran heila og fari að tala með posh breskum hreim. Gremlins 2: The New Batch.

Comments 1 Comment »

Náðist fyrir miðnættið. Getraunin er einföld í dag, allir ætt uað geta fengið fullt hús.  Einfalt: fimm tóndæmi, fimm kvikmyndir. Í fimmtu spurningu er sérstaklega spurt um kvikmynd sem var framleidd árið 1990.

1. Hvaða kvikmynd?

2. Hvaða kvikmynd?

3. Hvaða kvikmynd?

4. Hvaða kvikmynd?

5. Hvaða kvikmynd?

Comments 9 Comments »

Það er hefð fyrir því að síðasta getraun mússíkmeistarans birtist á jóladag ár hvert. Nú hefur mússíkmeistaranum augljóslega seinkað svolítið, því að umsjónarmaður getraunarinnar var settur í gapastokk í tyrknesku fangelsi í þrjá mánuði (eða önnur líkleg skýring sem þið trúið betur).

Meistaranum verður því í þetta sinn framlengt yfir á nýárið, en engu að síður mun birtast getraun á jóladag, svo að keppendur geta farið að undirbúa sig andlega.

Annað smáatriði: Ég stóð í ujppfærslu á öllu kerfinu í síðustu viku, og allt draslið hvarf og fokkaðist royally upp, eins og gerist alltaf þegar ég uppfæri besserwissið. Fastir liðir eins og venjulega. Uppfokkið var með mildara móti í ár, en hafði hins vegar þá leiðu aukaverkun að stigatölurnar sem komnar voru í hús hurfu með manni og mús. Man einhver hvernig stigin stóðu?

Comments 4 Comments »

… á alþekktu skilti nú á dögunum, hefur besserwissið ákveðið að endurbirta gamla færslu sem fjallaði einmitt um þetta ákveðna skilti. Gerið svo vel:

Þessi frétt var í netmogganum áðan:

Páfi hyggst heimsækja Auschwitz-búðirnar
Upprunalega skiltið yfir hliði Auschwitz-fangabúðanna í suðurhluta Póllands verður hengt upp að nýju á meðan á fyrirhugaðri heimsókn Benedikts XVI páfa í búðirnar stendur en skiltið, sem á stendur „Arbeit macht frei” hefur verið tekið niður til viðgerðar.
Páfi, sem er þýskur, hefur beðið sérstaklega um að fá að heimsækja Auschwitz í heimsókn sinni til Póllands þann 25. til 28. maí næstkomandi.
Að minnsta kosti 1,1, milljón manna lét lífið í Auschwitz-Birkenau búðunum á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar, flestir þeirra í gasklefunum. Þeir sem ekki voru leiddir beint í gasklefana skráðu sig hins vegar til þrælkunarvinnu undir skiltinu sem um ræðir.

Sjá menn þetta ekki alveg fyrir sér:

Er það hér, undir þessu skilti, sem maður skráir sig í þrælkunarvinnuna? Já ég ætla þá að skrá mig, þrælkunarvinnu fyrir einn takk fyrir, það var allt fullt í gasklefunum…

Lesa yfir strákar, kommon.

Comments No Comments »

n536528072_339751_2142.jpg

n777547172_988768_5273.jpg

Fólk virðist vera að upphlaða morfísmyndum á Facebook um þessar mundir. Hresst. Ég stal þessum tveimur, þær eru bara einum of mikil epík. 2006 og 2008, respectively.

Comments 13 Comments »

Ástæðan fyrir því að ég ætla aldrei að fara í Cruise um heimshöfin…

Comments 2 Comments »

Það vottast hér með að Gunnar Örn og Þrígifta gengið á Bretlandseyjum deila toppsætinu í fjórðu umferð með 8 stig. Svör voru eftirfarandi:
1. Paul Anka.
2. Það voru Boy George, Paul Weller, Paul Young og Sting sem héldu því fram að ekki yrði snjór í Afríku um jólin, nægilegt var að nefna einn þeirra. Það var svo auðvitað Bono sem þakkaði fyrir ógæfu annarra.
3. The Band.
4. Mary’s Boy Child með BoneyM
5. Brian Jones, Jimi Hendrix, Janis Joplin, Jim Morrison, Kurt Cobain.

Comments 11 Comments »

Ég sit í nefnd á vegum Menntamálaráðuneytisins. Þar þarf ég að kunna skil á lagareglum, málsgreinum, töluliðum og reglugerðum til að samfélagið haldist gangandi.

Ég er orðinn hluti af kerfinu.

Comments 2 Comments »

Það er engin getraun í dag, þið getið farið heim og slappað af,
tekið ykkur sturtu eða farið í bað,
ahahahæ…..ahahahó….

Comments 2 Comments »

banner500×100pt.gif

Þessa viku er ég að vinna að verkefninu indefence.is. Verkefnið snýst um að fá sem flestar undirskriftir gegn notkun Breta á hryðjuverkalögum gegn Íslendingum. Undirskriftirnar verða afhentar breskum stjónvöldum um mánaðarmótin og þegar þetta er skrifað hafa tæplega 58.000 manns skrifað undir áskorunina.

Ég hvet alla til að kynna sér þetta verkefni, lesa áskorunina og skrifa sig undir hana ef þeir eru sammála því sem þar kemur fram. Þeim mun fleiri sem skrifa undir, þeim mun meiri áhrif mun þetta mögulega hafa. indefence.is er ópólitískt verkefni sem er ekki tengt þeim mótmælumsem farið hafa fram með misjöfnum hætti undanfarna daga. Það snýst ekki um pólitískar persónur eða stefnumál, heldur hagsmuni og orðspor íslensku þjóðarinnar erlendis.

Nú þegar hefur verkefnið vakið gríðarlega athygli erlendis og umfjöllun um það hefur birst á forsíðum margra helstu prent og vefmiðla í bandaríkjunum, Bretlandi, á norðurlöndunum o.fl. Má þar nefna BBC, Financial Times, The Independent, Daily Telegraph, Times og Daily Mail. Greinarnar má lesa hér, á vefsíðu indefence.is

Þessa viku verður starfrækt upplýsingamiðstöð á jarðhæð gömlu Moggahallarinnar við Ingólfsorg þar sem gestir geta aflað sér upplýsinga um verkefnið, hringt í vini og kunningja innanlands og erlendis og vakið athygli á verkefninu, sent tölvupóst eða auglýst á Facebook, nú eða bara fengið sér kaffisopa í kuldanum. Fótgönguliðar verða einnig á ferðinni í miðbænum, í Kringlunni og í Smáralindinni til að kynna verkefnið.

Á föstudagseftirmiðdaginn er svo stefnt að því að slá botninn í starfssemi upplýsingamiðstöðvarinnar með Krepputónleikum á Ingólfstorgi.

Comments 3 Comments »

Yfirleitt tek ég nú ekki þátt í svona “mememememememeum” á internetinu, en þegar menn á borð við senda manni klukk þá verður ekki undan skorast. Auk þess er ég í vetrarfríi og hef ekkert betra við líf mitt að gera næstu tíu mínútur. Þannig að’ hér er einhver listi um fjölmörg fjögur atriði:

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

  • Unglingavinnumaður í Hljómskálagarðinum. Það hlýtur að vera einhvers konar met að okkur tókst að vera fjórir saman, allar tvær vikurnar sem ég vann í unglingavinnunni, að raka og hreinsa trjábeðið í kringum Ólaf Thors. Ég hætti eftir þessar tvær ógnarlöngu vikur til að verða…
  • …áfyllari í kjöt og kæliborðum Hagkaupa. Þetta hét að vera ‘innanbúðarmaður’ í gamladaga og þótti fínt starf sagði afi minn mér á þessum tíma. þessu starfi sinnti ég með ánægju í nokkur ár þar til mér bauðst, fyrir töluvert betri pening, að vera…
  • …handlangari hjá múrara sem gekk undir hinu góðlátlega nafni Bjössi brjálaði’ meðal vinnufélaga sinna. Hann hafði ekki tekið sér frídag í 6 ár og ég þurfti að vera mættur 15 mínútum á undan honum á morgnana til að vera tilbúinn með múrlögunina svo hann gæti gengið beint inn og byrjað að kasta á eins og óður maður. Þeir sem þekkja til lofthræðslu minnar munu aldrei trúa því að þarna þurfti ég að hlaupa (því annars fannst Bjössa ég ekki vera nógu snöggur) með fullar hjólbörur af steypu á milli svala á efstu hæð í fimm hæða blokk í Engihjallanum, á stillans sem samanstóð (í fúlustu alvöru) af tveim spýtum fyrir gólf og einni fyrir handrið. Sem betur fer lifði ég af með herkjum og gekk í raðir…
  • …bensínafgreiðslumanna Skeljungs næstu árin. Þar var ég fyrst starfsmaður á plani en lengst af hélt ég þar virðingarstöðunni starfsmaður í verslun. Ég var meira að segja um langa hríð einmitt starfsmaður í verslun Skeljungs á Laugavegi, já, ég var einu sinni alvöru smákóngur á alvöru skrifstofunni hans Georgs!

    2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:
    Mér finnast íslenskar bíómyndir almennt leiðinlegar. Hins vegar tókst mér að grafa upp fjórar sem eru minna leiðinlegar en hinar.

  • Foxtrot. Þessi ræma er fullkomin snilld. Hin fullkomna B-mynd. Stórkostlega vond og frábærlega meiriháttar í sömu andrá. Var meiraðsegja sýnd í Musteri B-myndanna, Laugarásbíó á sínum tíma. Ódauðlegt móment: “Hún er dauð! Steindauð!”.
  • Sódóma Reykjavík. Þessi mynd er örugglega á listanum hjá öllum sem gera þetta klukkkjaftæði. Hún er líka frábærasta íslenska gamanmynd sögunnar. Ódauðlegt móment: “Stalstu fjarstýringunni?” “Nei! … eða… Jú…”. Sigurjón Kjartanson í essinu sínu.
  • Hrafninn flýgur. Besta íslenska bíómyndin. Púnktur. Ódauðlegt móment: Bara öll myndin. Skúli Helgason í bara allri myndinni. Og svo þetta með hnífinn auðvitað.
  • Land og synir. Upphaf íslenska kvikmyndasumarsins. Ódauðlegt móment: Dauður hestur.

    3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  • Leifsgata
  • Hjarðarhagi
  • Víðimelur
  • Hringbraut

    4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  • Svedala, Malmö Lån, Sverige, reglulega.
  • London, svona öðru hverju.
  • Danmörk, hér og þar, reglulega.
  • Schwetzingen, Þýskalandi, einu sinni.

    5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líka:

  • Buffy the Vampire Slayer
  • Supernatural
  • House
  • Top Gear

    6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:
    Þetta er nú ansi tímabilabundið. Um þessar mundir eru það til dæmis

  • Politico.com
  • Pollster. com
  • bbcnews.com
  • Viralvideochart.com

    7. Fernt matarkyns sem ég held upp á:

  • Fetaostur
  • Ólífur
  • Sólþurrkaðir tómatar
  • Salat/pizza/pasta/hvaðsemer með fetaosti, ólífum og sólþurrkuðum tómötum.

    8. Fjórar bækur/blöð sem ég held upp á/les oft:
    Að halda upp á og að lesa oft er ekki alveg sami hluturinn sko…en ókei…

  • Hringadróttinssaga eftir J.R.R. Tolkien. Búinn að lesa hana a.m.k. tíu sinnum í gegn.
  • Falco sögurnar eftir Lindsey Davis. Ég er sökker fyrir góðum sögunóvelum.
  • Terry Pratchett eins og hann leggur sig. Ef þú hefur ekki lesið Discworld sögurnar þá skaltu byrja núna!
  • The Vampire Lestat eftir Anne Rice. Ef þú sást interview with the Vampire og langar að heyra útgáfu Lestats á þeirri frásögn, tékkaðu þá á þessari….og hinum þremur sem á eftir koma.

    9. Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:

  • Á restaurantinum hans Stavrosar á Krít, að maka í mig grísku salati með ólífum, fetaosti og hreint himneskum tómötum.
  • Uppi í rúmi að sofa.
  • Í London með konunni minni að eyða því sem eftir er af peningunum hans Björgúlfs Thor
  • Nákvæmlega hér, í rólegheitunum með börnunum mínum. Annað er ofmetið.

    10. Fjórir bloggarar sem ég á að klukka:
    Ég klukka Keizarann fjórum sinnum.

  • Comments 4 Comments »

    Ég hef ákveðið að í tilefni ferlegustu fjármálafrétta sem ég (og allir aðrir undir áttræðu) hef orðið vitni að á lífsleiðinni að þetta blogg skuli í snarhasti breytast í málgagn gleði og gáska. Hér verða tómar hamingjufréttir sagðar af heiminum um óákveðinn tíma, undir vökulu auga harðstjórnar félaga Pollýönnu. Það er einfaldlega ekki á bölið bætandi með einhverjum bloggleiðindum! Jóhannes fýlupúki hefur því verið lokaður inni í efsta herberginu í hæsta turninum.

    Comments 3 Comments »

    Ég ætla sannarlega ekki að blogga um það Ef þið viljið svoleiðis má benda á haug af moggabloggurum sem hafa ekkert betra við líf sitt að gera en að endursegja mbl.is.

    Comments 10 Comments »

    Á morgun fer ég í hina árlegu Þórsmerkurferð með 10. bekkinga. Það er alltaf gaman, sérstaklega vegna þess að þá fæ ég að pína unglingana, fremur en öfugt. Í þessari ferð eru nefnilega gönguferðir. Jájá, margar. Og það er ekki það sem stór prósenta 15 ára fólks finnst aðlaðandi skemmtan, sérstaklega ekki í vondu veðri. Þau bara skilja ekki fegurðina í því að berjast hundblautur á móti snarbiluðu íslensku skítaveðri með láréttri rigningu og ískrandi vindhviðum sem smjúga inn um hvert op á hlífðarfatnaðinum.

    Í fyrra var til dæmis akkúrat þannig veður þegar við gengum Tindfjallahringinn, réttir fjórir tímar af fjöri þar! Snældubiluð austanátt með skítarigningu inn af jöklinum. Verður ekki betra. Og það verður að segja krökkunum það til hróss að mikill meirihluti lét sig hafa það að halda áfram þegar boðið var upp á að snúa við eftir klukkutíma. Og höfðu mörg hver gaman af, þó sum hafi séð eftir því og séð heitt kakó og kex í hillingum alla leiðina. Það var nefnilega ekki rok akkúrat þeim megin við fjallið þegar þau máttu snúa við ;-) . Allt útpælt af lymskulegum kennurum auðvitað.

    Svo er líka alltaf skemmtilegra þegar það er skýjað á nóttunni þarna innfrá. Þá er ekki bévað tunglsljósið að eyðileggja fyrir manni möguleikann á því að stökkva skyndilega út úr nóttinni að myrkfælnum sálum á leið á klósettið og lauma að þeim einu hressilegu böö.

    Comments 2 Comments »