Fyrir allnokkru var boðið upp á besserwiss, þegar lesendur voru orðnir þreyttir á skoðanaleysi og litlum afköstum besserwissersins sjálfs. Sú færsla naut þvílíkra vinsælda að stofnaður var sérstakur færsluflokkur: “Vísindavefur besserwissins”.
Vísindavefurinn hefur nú göngu sína á ný og býður lesendum að spyrja besserwisser að hverju sem er í kommentum og fá svör við lífsins gátum. Svör verða að venju skrifuð án ábyrgðar en sneisafull af sannleika, enda liggur það í hlutarins eðli að besserwisser veit betur en aðrir wisserar.
Og já, ég veit að ég skulda ennþá eitt svaðalegt svar síðan síðast. Það kemur einhverntíma þegar ég hef lausan mánuð.
3 Comments »
Mér var bent á það um daginn af dyggum lesanda að besserwissið væri orðið hálf skoðanalaust í seinni tíð. Mér til hrellingar sá ég að það er alveg rétt. Úr því verður bætt héðan af.
Til að byrja með skal lesendum boðið að spyrja besserwisserinn að hverju sem er í kómentum, hvort sem er um persónulega hagi eður skoðanir og yður mun svarað verða á eins óþveginn hátt og þurfa þykir.
Athugið að svör besserwissins eru skrifuð beint inn í upprunalegu kommentin.
———–
ps. Þar sem komið hefur í ljós að vísindavefur besserwissins nýtur fádæma vinsælda hefur verið stofnaður sérstakur færsluflokkur fyrir hann (Vísindavefur besserwissins). Ekki er loku fyrir það skotið að oftar verði boðið upp á besserwiss með þessum hætti.
31 Comments »