Nú er ég ekki hagfræðingur og annálaður stærðfræðiamlóði, en náungi að nafni Pétur Richter vill meina að þetta líti nokkurn veginn svona út:

Forsendur:

Upphafleg skuld:
2,2 ma.GBP-300 m.GBP sem greiðist strax=1,9 ma.GBP og 1,2 ma.EUR sem gera um 640 ma.kr. á núverandi gengi

vextir
Fastir vextir yfir tímabilið 5,5% á bæði GBP og EUR sem leggjast á lánið á 1/2 árs fresti 30/6 og 31/12

Endurheimtur frá Landsbankanum:
Reikna út frá mismunandi endurheimtum, frá 110% til 50%
Landsbankinn notar það sem kemur inn til að greiða niður lánið á 1/2 fresti í sjö ár, þ.e. endurheimturnar koma inn jafn yfir tímabilið og greiðast 30/6 og 30/12 ár hvert

Lán eftir 7 ár
Við fólkið í landinu borgar síðan Það sem út af stendur eftir 7 ár í 8 ár, afborganir og vextir á 1/2 árs fresti, sömu 5,5% vextirnir. Síðasta afborgun 30/6/2024.

Gengi:
Miðað við gengi dagsins í dag, GBP 198 og EUR 173

Niðurstaða:

110% endurheimtur upp í IceSave: Við skuldum 76 ma.kr. í lok 7 árs með áfallnum vöxtum. Greiðum síðan það í 8 ár, heildargreiðsla íslenska ríkisins er því um 93 ma.kr. með vöxtum

100% endurheimtur
upp í IceSave: Við skuldum samt 153 ma.kr. í lok 7 árs vegna áfallinna vaxta. Greiðum síðan það í 8 ár, heildargreiðsla íslenska ríkisins er því um 189 ma.kr. með vöxtum

75% endurheimtur upp í IceSave: Við skuldum 346 ma.kr. í lok 7 árs með áfallnum vöxtum. Greiðum síðan það í 8 ár, heildargreiðsla íslenska ríkisins er því um 427 ma.kr. með vöxtum. Athugið að þetta er sú tala sem gert er ráð fyrir í samningunum……

60% endurheimtur upp í IceSave: Við skuldum 462 ma.kr. í lok 7 árs með áfallnum vöxtum. Greiðum síðan það í 8 ár, heildargreiðsla íslenska ríkisins er því um 570 ma.kr. með vöxtum

50% endurheimtur
upp í IceSave: Við skuldum 539 ma.kr. í lok 7 árs með áfallnum vöxtum. Greiðum síðan það í 8 ár, heildargreiðsla íslenska ríkisins er því um 665 ma.kr. með vöxtum

Glæsilegt, ekki satt?

4 Responses to “Einfaldur útreikningur á Icesave skuldum skv. “glæsilega samningnum””
  1. Já var búinn að sjá þessa samkeppni en ekki skjalið. Var að pæla svolítið í þessu en ég held að þetta sé bara uppskrift að einni óheyrilega leiðinlegri kennslubók um efni sem 9. og 10. bekkingar hafa mínusveldisáhuga á og er roooosalega erfitt að gera áhugavert fyrir þennan aldur. Því held ég að Það yfði álíka leiðinlegt að skrifa þetta eins og að kenna það.
    Ég hef á tilfinningunni að ASÍ hafi fengið þessa brilljant hugmynd um kennslubók um sjálft sig, og ekki spurt nokkurn einasta mann í unglingakennslu í samfélagsfræði hvort not séu fyrir slíkt í þessum árgöngum eða hvort það muni yfir höfuð nýtast eitthvað. Gæti sagt þeim strax að ef þetta verður svipað áhugavert fyrir 9. bekkinga og stjórnmálasagan í “Úr sveit í borg” þá er eins gott að slá verkefnið af strax og nota peninginn í annað.

  2. Hildur R. says:

    hahaha….sammála með að þetta sé kannski ekki mjög áhugavert en ég hélt kannski að þú værir einmitt maðurinn sem myndir geta gert þetta skemmtilegt :)

  3. Það má kannski vera…. það væri allavega alvöru challenge.

  4.  
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>