Í kafla stjórnarsáttmála Samfylkingar og VG um utanríkismál stendur þetta hér:

Ákvörðun um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði í höndum íslensku þjóðarinnar sem mun greiða atkvæði um samning í þjóðaratkvæðagreiðslu að loknum aðildarviðræðum. Utanríkisráðherra mun leggja fram á Alþingi tillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu á vorþingi. Stuðningur stjórnvalda við samninginn þegar hann liggur fyrir er háður ýmsum fyrirvörum um niðurstöðuna út frá hagsmunum Íslendinga í sjávarútvegs-, landbúnaðar-, byggða- og gjaldmiðilsmálum, í umhverfis- og auðlindamálum og um almannaþjónustu. Víðtækt samráð verður á vettvangi Alþingis og við hagsmunaaðila um samningsmarkmið og umræðugrundvöll viðræðnanna. Flokkarnir eru sammála um að virða ólíkar áherslur hvors um sig gagnvart aðild að Evrópusambandinu og rétt þeirra til málflutnings og baráttu úti í samfélaginu í samræmi við afstöðu sína og hafa fyrirvara um samningsniðurstöðuna líkt og var í Noregi á sínum tíma.

Er það bara ég eða gefur þessi klausa, og sérstaklega þetta feitletraða, til kynna að flokkarnir ætli að láta alþingi samþykkja Þingsályktunartillögu um umsókn um ESB aðild, og leyfa sér svo að tala í sitt hvora áttina um aðildarumsóknina? Heldur þetta fólk virkilega að ESB batteríið muni hleypa okkur í aðildarviðræður með klofna ríkisstjórn? Er eitthvað að þessu liði? I call bullshit.

Annað hvort er ríkisstjórnin með eða á móti aðild. Í þessu tilfelli er EKKI hægt að segja að það sé bæði betra, því þannig umsókn er ekki tekin alvarlega og ver því aldrei í aðildarviðræður. Sem er einmitt það sem hentar VG ágætlega er ekki svo? Einhverjir gætu sagt að Samfylkingin sé að stinga kjósendur sína illilega í bakið með þessari eftirgjöf.

3 Responses to “ESB og ríkisstjórnin – I call bullshit!”
  1. Keizarinn says:

    Já, mér er nú bara illt í hjartanu yfir þessum svikum.

  2. Keizarinn says:

    Hvernig er það, á ekkert að fara að blogga? Ein bloggfærsla á dag kemur skapinu í lag…….

  3. Viktor says:

    Hmmm, ég er nú ekki sammála. Ég skil þetta sem svo að þau ætli að láta málið í hendur Alþingis (og greiða þar atkvæði eftir eigin sannfæringu) með þá skuldbindingu að fylgja ákvörðun Alþingis eftir hver sem hún verður. Þannig muni VG taka þátt í aðildaviðræðum með fyrirmæli Alþingis að leiðarljósi.

    Mér finnst fínt að þrískipting ríkisvaldsins sé farin að gera að einhverju leyti vart við sig í íslensku samfélagi á ný og að fólk viðurkenni rétt einstaklinga til að fylgja eigin sannfæringu frekar en að skikka alla þingmenn meirihlutaflokkanna til að kjósa eftir vilja forystu stærsta flokksins.

    Alþingi mun samþykkja eða hafna lögum, eins og er hlutverk þess, og ríkisstjórnin mun fylgja eftir og framkvæma eftir því, eins og er hlutverk hennar.

    Lýðræði í augsýn?

  4.  
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>