besserwiss.com

Ingibjörg vingull.
Það er ansi merkilegt að fylgjast með orðaskaki ráðherra og þingmanna um ESB og mögulegar kosningar síðustu vikur.  Alveg sérstaklega hefur verið áhugavert að fylgjast með samfylkingarfólki feykjast hingað og þangað í skoðunum eftir því hvert vindar blása í stjórnmálum og almenningsáliti.

Langskemmtilegasta dæmið um þetta er Ingibjörg Sólrún, kletturinn í formannstólnum. Í gær fannst Ingibjörgu Sólrúnu upplögð hugmynd hjá Geir Haarde að efna til kosninga um aðildarviðræður við ESB einhverntíma í mars eða svo.  Það væri nefnilega alveg gráupplagt fannst henni (í gær) að efna til Alþingiskosninga í leiðinni!

Í dag finnst Ingibjörgu Sórúnu hins vegar að þetta sé vond hugmynd, ekkert sniðugt sé að hafa Alþingiskosningar samhliða svona aðildarviðræðnaþjóðaratkvæðagreiðslu. Fylgist með næsta þætti: Hvað mun Ingibjörgu Sólrúnu finnast á morgun?

Er það nema von að traust almennings á stjórnmálamönnum sé við alkul þegar jafnvel pólitískar skoðanir formanns næst stærsta stjórnmálaflokks landsins virðast vera myndaðar af algerlega random geðþótta, nú eða bara eftir því hverju fyrirsagnir dagblaðanna slá upp frá degi til dags?

Tíminn að renna út.
Á miðvikudaginn rennur út frestur stjórnvalda til að höfða mál a´hendur breska ríkinu til að skera úr um lögmæti beitingar hryðjuverkalaganna gegn Íslenskum hagsmunum.  Það er algerlega nauðsynlegt að þetta verði gert, þó ekki væri til annars en að draga allar upplýsingar um málið upp á yfirborðið.  Í þeim skilningi skiptir í raun ekki máli hvort málið vinnst eða tapast, það er hálfur sigur unninn bara með PR mómentinu sem felst í málshöfðuninni sjálfri og sterkari stöðu Íslands út á við í kjölfarið.

Islenska ríkið hefur þrjá daga til að þingfesta stefnu fyrir breskum dómstólum.  Því miður virðist enginn í stjórnkerfinu tilbúinn að gangast við nokkurri vitneskju (hvað þá ábyrgð) um málið (sjá nánast örvæntingarfulla leit fréttamanna í gær að einhverjum, bara einhverjum innan kerfisins sem vissi eitthvað, já bara eitthvað, um málið.  Hann fannst loks, á sólarströnd í fríi, og vissi eiginlega ekkert um neitt) og sú staðreynd, ásamt tilsvörum forsætisráðherra undanfarna daga um Icesave samningana, gefa frá sér verulega illan þef af því að það eigi að fórna þessu feitasta hagsmunamáli síðari tíma til að losna við refsivexti af láninu sem Bretar eru búnir að neyða okkur í gegnum IMF til að taka hvort eð er.

Þetta lítur allt saman út fyrir að vera eitt heljarinnar klúður innan stjórnkerfisins, og ef það gengur eftir að ekkert mál verður höfðað, eins og allt lítur út fyrir núna, eru íslensk stjórnvöld enn meiri amlóðar en mig nokkurntíma grunaði, og grunaði mig þó töluverðan amlóðaskap þar á bæ.  Ef þetta klúðrast fer maður í alvöru að velta því fyrir sér að kaupa nokkur vel útilátin egg og skreppa á Austurvöll á laugardaginn, svei mér þá.

Gamlir siðir gleymast seint.
Kosningin um vinsælasta sögulega Rússann fór heldur suður á bóginn á dögunum.  Enginn annar en Jósef Stalín var kosinn þriðji vinsælasti rússi sögunnar. Annaðhvort er eitthvað verulega rotið í Rússaveldi, nú eða þá hreinsanir Stalíns gengu svona miklu betur heldur en nokkurn óraði fyrir… honum tókst að útrýma öllum sem var illa við hann…

Úrslit jólagetraunar
Guðmann Bragi hirðir flest stig í þetta sinn, heil 11 stykki.  Athygli vekur að mafía þrígiftra hafði ekki rænu á að skila inn svörum, eflaust upptekin í jólaboðum. Internetleysi er ekki tekið gilt sem afsökun.

Svör eru sem hér segir:

1) Bob Dylan

2) Per Gessle og Marie Fredriksson voru dúettinn Roxette

3) Do They Know it’s Christmas með Band Aid.

4) Britney Spears

5) Please please me

6) Hello, I love You með Doors

7) …the Pips

Pat Smear

9) Bohemian Rhapsody, Queen.

10) Nel blu dipinto di blu (Volare).

11) Barbarella.

Jóladagsgetraun Mússíkmeistarans
1. Robert Zimmerman er betur þekktur sem…? (1)

2. Per Gessle var helmingurinn af hvaða dúett? (1)

3. Úr hvaða lagi eru þessar línur: (1)

“Here’s to you

Raise a glass for everyone

Here’s to them

Underneath that burning sun”?

4. Hver gaf út plötuna Blackout árið 2007? (1)

5. Hvað hét fyrsta platan sem Bítlarnir gáfu út, árið 1963? (1)

6. Úr hvaða lagi er þetta textabrot, og hverjir fluttu:  (2)

“She’s walking down the street

Blind to every eye she meets

Do you think you’ll be the guy

To make the queen of the angels sigh?”

7. Gladys Knight and….? (1)

8. Nirvana var fjögurra manna hljómsveit síðasta árið sem hún starfaði. Hvað hét fjórði maðurinn? (1)

9. Myndbandið við hvaða lag er almennt talið vera fyrsta tónlistarmyndbandið? (1)

10. Hvaða Eurovisionlag sló við sjálfum Frank Sinatra í keppninni um lag ársins á fyrstu Grammyverðlaunahátíðinni árið 1959? (1)

11. Úr hvaða kvikmynd er hljómsveitarnafnið Duran Duran tekið? (1)

Gleðileg jól!
Besserwissið óskar lesendum og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári, og þakkar samfylgdina á árinu sem er að líða.

Jólagetraun
Rétt er að taka það fram að tónlistargetraun mússíkmeistarans þessa vikuna verður á jóladag eins og hefðbundið er. Þó er ekki um síðustu getraunina að ræða, heldur mun framlengt út janúarmánuð.

Uppskriftabók besserwissins
Á dögunum tók ég þátt í jólasnafsakeppni. Ég og samverkakona mín göldruðum upp görótta drykki til keppninnar, þó ekki frá grunni, þannig að engin lög voru brotin, allt áfengi kom úr eigu ríkisins. Skemmst er frá því að segja að við hlutum þar sigur fyrir frumlegustu framsetninguna/flöskuna, og er þar ekki síst að þakka ágætum hagleiksmanni sem af einstakri snilli smíðaði fyrir okkur standinn undir keppnisvöruna.  Drykkirnir urðu reyndar tveir, og voru þeir góðir hvort sem er í sitt hvoru lagi ellegar blandaðir saman. Ekki hlaut innihaldið þó náð fyrir augum dómnefndar.

Þar sem besserwissið er upplýst einveldi og setur uppfræðslu þegnanna í fyrirrúm, eru uppskriftirnar birtar hér, áhugasömum til afnota.

Hann

-	Uppskrift að Atorku og Eldmóði  -

1.	Takið yður í hönd eina hnöttótta appelsínu, sérvalda úr görðum Salómons konungs. Raspið börkinn kröftuglega af  á meðan þið kyrjið karlmannlega vísu. Skerið tafarlaust í báta.

2.	Leggið gullaldinið varlega í botn flösku og dreifið yfir 10 nöglum af ætt neguls.

3.	Mælið fjórðung teskeiðar kanels og leggið rólega yfir ásamt áttungi teskeiðar engifers.

4.	Hér skuluð þér við staldra og almáttugan Drottinn um blessun verkefnis þessa biðja. Mun bænhitinn hér miklu ráða um bragð og angan.

5.	Þvínæst skuluð þér setja á víxl börk af hálfri appelsínu og desilíter púðursykurs í litlum ástúðlegum skömmtum.  Engan æsing hér, annars mun lögurinn hlaupa í kekki og það viljið þér ekki.

6.	Tvær stangir vanillu, klofnar til hálfs með karlmannlegri sveðju.

7.	Þegar hér er komið skal hella í minnst hálfs metra boga eitthundraðáttatíuog sjö millilítrum af DaVinci Gourmet Chocolat Flavour kaffisýrópi.   Í Guðs bænum hellið í einum rykk svo ekki spillist dropi af hinum dýru veigum Drottni til minnkunnar.

8.	Þá skuluð þér kalla til með karlmannlegum róm, fjörtíu stykki Kólumbískar Kaffibaunir og keyra þær í mjöðinn ómalaðar.

9.	Syngið:  Þeeeeegaaaaar… öllu þessu er lokið, kemur aðeins matskeið sýróps, gerðar Hershey‘s súkkulaðis, setjist ofaní með skeeeeeeiiiið…..

10.	Að endingu skulu ofan í rata 750 millilítrar spíra elds og íss.

11.	Þér skuluð þá tappa setja á flöskuna, taka hana í hönd og hrista eins duglega og yður mun unnt.  Séuð þér við lok uppskriftarinnar óvær um að hrista flöskuna sökum ölvunar eftir spírasmökkun á meðan á ílagningu stóð, má hrista daginn eftir.

Hún

-	Uppskrift að Fegurð og Fágun  -

1.	Tínið í aldingarði yðar 600 grömm fagurrauðra hindberja.  Leggið berin ljúflega í fat á gólfi, farið úr sokkum og skóm, og merjið og maukið berin með fótum yðar á forna vísu.

2.	Leggið maukið í flösku, lagskipt með þremur desilítrum sykurs. Raulið fyrir munni yðar ljúfan mansöng á meðan.

3.	Hér skal svo yfir hellast einn og hálfur desilíter DaVinci Irish Cream Flavour kaffisýróp í lostafengnum parabóluboga (hálfum), svo gutli í.

4.	Þegar hér er komið skal skrifa ástarljóð upp á grísku, með vitnun í Keats og Yeates  (O, hurry, where by water, among the trees,

The delicate-stepping stag and his lady sigh,

When they have looked upon their images

Would none had ever loved but you and I!)

5.	Leggið nú í löginn hnífsodd, og eigi meir, af fínt möluðum Chilipipar, eilítið brenndum.

6.	Tvær stangir vanillu, lagðar í tvennt með fínlegum silfurhníf.

7.	Leggið yfir að lokum 750 millilítra af mildum spíra elds og íss.

8.	Leggið tappan í flöskuna, vefjið hana reifum og vaggið sem kornabarni við hlýjan vanga með móðurlegum hreyfingum þar til ró færist yfir mjöðinn.

Tækniraunir
Ég eyddi blogginu mínu.  Ekki í fyrsta sinn.  Og svo þegar ég var búinn að eyða ómældum tíma í að laga það, eyddi ég því aftur á nákvæmlega sama hátt.  Svona er ég gáfaður.  En örvæntið eigi.  Það eina sem hvarf voru kategóríurnar á póstunum.  Það verður einhver bið á því að ég nenni að fara inn í hvern einasta póst frá upphafi og setja á þá kategóríu…

Hlæja eða gráta?
Vefmiðlarnir mbl og visir flytja okkur pubulnum reglulega fréttir af ævintýrum Ásdísar Ránar í útlöndum. Það er athyglivert að í næstum hvert sinn sem það gerist er fréttin gripin beint upp úr auglýsingabloggi Ásdísar, http://asdisran.blog.is/blog/asdisran/ .  Eina lýsingarorðið sem hægt er að nota með góðu móti um það blogg er “makalaust”.  Ásdísi hefur með því tekist að ræna titlinum “sjálfhverfasta næstumþvífræga persóna Íslands” af Fjölni Þorgeirssyni, sem fræðimenn töldu ógerlegt.