Öðru hverju les ég í gegn um gamlar besserwissfærslur til að rifja upp hvað ég hef látið út úr mér hér í gegn um tíðina. Í þessari færslu hér rakst ég á loforð um að útskýra ákveðna kenningu sem ég fæ meiri og meiri trú á eftir því sem ég eldist og vitkast. Þetta er kenningin um að fólk sé alltaf bara fólk, sama hvar það er og hver það er.

Þetta er í raun engin kenning, heldur bara óttalegt common sense þegar öllu er á botninn hvolft. Samt sem áður þá búum við í heimi þar sem þetta common sense er svakalega oft sett til hliðar af ýmsum ástæðum, hvort sem það er vegna fáfræði, fordóma, stjórnmálastefna, mismuns á hugmyndaheimum, mismunandi menningarheima eða annars sem getur orðið til þess að við skiptum fólki í einhvers konar tvo flokka: okkur og hina.

Þegar við hér á Íslandi sjáum fréttir af mótmælum í Íran til dæmis þá er margt sem getur látið okkur ósjálfrátt nota þetta flokkakerfi. Fólk í Íran er öðruvísi á litinn en við, þau eru annarar trúar en við, þau tala skrýtið tungumál sem á ekkert skylt við okkar, þau búa í Asíulandi sem er rosalega langt í burtu, þau búa ekki við lýðræðislega stjórn heldur klerkastjórn og svo framvegis. Allt þetta og örugglega fleira skilgreinir Írani sem “öðruvísi fólk” í heilanum á okkur. Þetta er bara eitt dæmi.

Pælingin um að fólk sé bara fólk gengur í raun út á að við skoðum hvað við eigum sameiginlegt með öðrum. Til þess þurfum við kannski bara að stíga aðeins út úr fréttafílíngnum og inn í daglegt líf fólks. Þetta fólk á fjölskyldur og er alveg jafn annt um þær og okkur um okkar fjölskyldur. Þau eiga hús, bíl og skuldir alveg eins og við. Þau fara í vinnuna á daginn og borða kvöldmat saman á kvöldin. Þau mótmæla óréttlæti þegar þeim finnst á sér brotið, upplifa sorg og gleði yfir sams konar hlutum og við og svo framvegis.

Það sama má segja um allt fólk í heiminum. Ef það væri hægt að grípa þig upp lesandi góður, og planta þér niður random á einhverjum stað á hnettinum, myndirðu komast að því að fólkið þar væri í grunninn að glíma við sömu vandamálin, upplifa sömu sigrana og allir aðrir. Fólk er alltaf bara fólk.

Þetta dæmi sem ég nefndi í póstinum um Obama er ágætt. Þarna er heimsþekktur maður að halda ræðu og allar sjónvarpsmyndavélar heims beinast að honum. Heimsbyggðin stendur á öndinni. En fyrir litlu stelpunni sem stendur fyrir aftan hann að taka myndir með litlu ódýru digital myndavélinni sinni er hann bara pabbi. Fólk er alltaf fyrst og fremst bara fólk.

Í ágúst 2008var mér boðið ásamt fleirum til Þýskalands á 30 þúsund manna trúarhátíð/ráðstefnu Ahmadiyya múslima, Jalsa Salana. Það var ótrúlega mergjuð upplifun á margan hátt. Að vera í miðju þýskalandi allt í einu kominn inn í eins konar míní-Pakistan. En það sem sló mig mest var einmitt þetta. Þegar maður fór að venjast þessu umhverfi þá stóð þetta eitt upp úr. Þótt að nær allir töluðu Urdu sín á milli, væru öðruvísi á litinn, væru sífellt að útskýra fyrir mér framandi trúarbrögð sín, stoppuðu að því er virtist randomly á miðri götu til að biðja og svo framvegis, þá var þetta bara fólk eins og þú og ég. Þarna voru vinir að faðmast, krakkar að stinga af foreldra sína, sölumenn að reyna að koma varningi sínum í verð, spekingar sem vildu skiptast á skoðunum um mismunandi menningu og trú og svo framvegis.

Nú skal ekki skilja þetta svo að ég hafi átt von á einhverju öðru en venjulegu fólki, en ég held að það sem skiptir máli sé hvernig maður horfir á hlutina, að hverju maður er að leita. Ef maður býst við að finna mismun þá er hann til staðar. En ef maður lítur aðeins dýpra, þá erum við öll í grunninn alveg eins. Fólk er alltaf bara fólk. Það er það sem við eigum sameiginlegt sem skiptir máli, ekki hitt. Þeim mun sjaldmar sem við skiptum okkur í flokkana okkur og hina þeim mun betri verða samskiptin, þeim mun minni verða fordómarnir og fáfræðin, þeim mun minni verður kannski menningarmunurinn og hugmyndaheimarnir nálgast.

6 Responses to “Fólk er bara fólk.”
  1. Hildur R. says:

    …in the end we are all fruit :)

  2. Jóhannes Þ. says:

    akkúrat!

  3. Diljá says:

    Ég er eiginlega alveg og eiginlega alltaf 100% sammála þessu, sérstaklega eftir heimsreisuna, þá er ég eiginlega nokkuð viss. En stundum, eins og í gær, datt ég niður í það að lesa um eitthvað sérstaklega niðurdrepandi eins og My Lai fjöldamorðin í Víetnam og þá fer ég að hugsa að það fólk sem hefur algjörlega misst allt það mannlega sem það einhverntímann hafði og er orðið eitthvað allt annað. Sorrí fyrir að drepa alveg jákvæðnina, sem ég kann mjög vel að meta samt, en ég bara get ekki hægt að hugsa um þetta. Er annars meira en sammála, ég er mikill aðdándi fólks. Mér finnst það upp til hópa frekar awesome.

  4. Jóhannes Þ. says:

    En það er nefnilega málið. Hluti af þessu er að hryllingurinn býr líka í okkur öllum. Það þarf ekki annað en að skoða þýskaland nasismans til að komast að því hvað það er stutt í geðveikina hjá venjulegu fólki. Fullkomlega normal fólk getur verið í snarsjúkum aðstæðum en litið á þær sem sitt daglega “norm”. Partur af kenningunni verður að vera að það sé bæði gott og slæmt í öllum. Bara mis djúpt á því og mismunandi aðstæður sem þarf til að kalla það fram. Við getum ekki valið okkur þann hluta sem okkur líkar vel við. Getum ekki sagt: “Ja, ef ÉG hefði verið í My Lai þá…..”. Því við getum ekki vitað það í raun.

  5. Gísli says:

    Og frétt sem eflaust fáir hafa séð? Eða hvað? Ég efast um að þetta hafi borist víða. Fréttir af venjulegu fólki að standa vörð um rétt sinn og meðbræðra sinna:

    http://www.zonaeuropa.com/20090621_1.htm

    Dr. Khan er í reglulegu sambandi við mig. Hann vill fá nýja gesti til Þýskalands 14.-16. ágúst. Breiddu út boðskapinn og hjálpaðu fólki að kynnast fólki. Svo flytur hann fyrirlestur í Alþjóðahúsinu 1. júlí.

    Annars er það helst í fréttum að ég verð kominn ansi nálægt Pakistan í lok næstu viku, sem og reyndar einnig Afganistan, Indlandi, Kasakstan og Tíbet. 11 daga flakk í hvern krók og afkima Xinjiang, sem á landamæri að öllum þessum löndum og ekkilandi. Að því loknu verður það líklegast Mongólía og alls staðar mun maður auðvitað bara hitta menn, sem eru bara menn – og konur og börn og gamalmenni og dusilmenni og fyrirmenni og svo framvegis.

  6. Gísli says:

    Og guð má vita að það er auðvelt að segja: Ég myndi aldrei gera þetta eða hitt.

    Maður lætur alveg ótrúlega stjórnast, í hugsun og hegðun, af þeim aðstæðum og því samfélagið sem maður býr í. Það finnur maður þegar maður slítur sig upp frá rótum og plantar sér á nýjum og framandi stað, þar sem auðvelt er að loka á fjölmiðla, auglýsingar, nöldur og annað áreiti sem dynur jú á flestu fólki í flestum samfélögum. Jafnvel þó að ég í blekkingu minni hafi viljað meina að ég hafi verið nokkuð ónæmur fyrir þessu heima.

    Kannski breytist þetta allt ef ég læri kínversku. Þá mun ég eflaust koma marserandi til baka og standa fyrir upplestri á stórfenglegum ljóðum formannsins, blóta hinu heilaga lamadýri og mæla fyrir nýju lýðveldi fólksins á Íslandi, Alþýðulýðveldið Ísland (PRI)!

  7.  
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>