Það er fátt sem gleður augað í fótbolta jafn mikið og vel útfærð tveggjafóta skriðtækling með takkana á undan. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að varnarmenn sem ekki fá gul og rauð spjöld reglulega séu lyddur. Þess vegna er ég ferlega ánægður með þetta video hér. Skil ekki hvað ameríkanar eru að væla yfir þessum brotum. Ef dómarinn sá þau ekki þá eru þau bara vel útfærð varnarmennska. Strikerarnir fá panic kast þegar þær heyra másið í henni á strauinu fyrir aftan sig…

3 Responses to “Hörð í boltanum!”
  1. Diljá says:

    hún er svakaleg, er búin að horfa á þetta vídjó nokkrum sinnum í dag, hápunkturinn er klárlega þegar hún rífur hana niður á hárinu

  2. Klárlega. Svona fléttur eru náttúrulega bara til þess að toga fólk niður á sko.

  3. Keizarinn says:

    Það sem ég dáðist aðallega að hjá henni var “brotatæknin” hjá henni. Hún er svo dásamlega fjölhæf. Brot án bolta, brot með bolta, 50/50 tæklingar sem í raun eru ekki 50/50 í hennar augum þar sem boltinn er algert aukaatriði. Það eina sem maður saknar er hið klassíska “drepa í sígarettunni” í hornum með því að bora tökkunum á hælnum ofan á ristinni og drepa í.
    Klárlega kvenkyns Materazzi.

  4.  
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>