… á alþekktu skilti nú á dögunum, hefur besserwissið ákveðið að endurbirta gamla færslu sem fjallaði einmitt um þetta ákveðna skilti. Gerið svo vel:
Þessi frétt var í netmogganum áðan:
Páfi hyggst heimsækja Auschwitz-búðirnar
Upprunalega skiltið yfir hliði Auschwitz-fangabúðanna í suðurhluta Póllands verður hengt upp að nýju á meðan á fyrirhugaðri heimsókn Benedikts XVI páfa í búðirnar stendur en skiltið, sem á stendur „Arbeit macht frei” hefur verið tekið niður til viðgerðar.
Páfi, sem er þýskur, hefur beðið sérstaklega um að fá að heimsækja Auschwitz í heimsókn sinni til Póllands þann 25. til 28. maí næstkomandi.
Að minnsta kosti 1,1, milljón manna lét lífið í Auschwitz-Birkenau búðunum á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar, flestir þeirra í gasklefunum. Þeir sem ekki voru leiddir beint í gasklefana skráðu sig hins vegar til þrælkunarvinnu undir skiltinu sem um ræðir.Sjá menn þetta ekki alveg fyrir sér:
“Er það hér, undir þessu skilti, sem maður skráir sig í þrælkunarvinnuna? Já ég ætla þá að skrá mig, þrælkunarvinnu fyrir einn takk fyrir, það var allt fullt í gasklefunum…”
Lesa yfir strákar, kommon.







Entries (RSS)