Langar þig á múslimaráðstefnu í Þýskalandi í ágúst?
Posted by Jóhannes Þ. in UncategorizedÍ framhaldi af því sem ég var að tala um varðandi ferðina til Þýskalands/Pakistan í fyrra, þá segir Mr. Gisli mér að forsprakki Ahmadiyya á Íslandi, sá sami og bauð okkur út í fyrra, sé að leita að nýju fólki til að fara á Jalsa Salana í Þýskalandi 14.-16. ágúst n.k. (tengillinn er á síðu ráðstefnunnar í fyrra sem við fórum á. Þar má sjá dagskrá, myndir og fleira). Það er full ástæða til að hvetja fólk til að kíkja á fyrirlestur sem verður haldinn í Alþjóðahúsinu þann 1. júlí til að kynna sér málið, og ræða við Dr. Kahn um mögulega þýskalandsferð hafi menn áhuga á því. Ég fullyrði að það er algerlega þess virði að fara og upplifa þetta, hvort sem menn hafa áhuga á að gerast góðir múslimar eða ekki. Ef einhver vill fá nánari útlistun á því sem þarna fer fram er bara um að gera að hafa samband.







Entries (RSS)
ætlar þú ekki að fara?
Ég segi nú bara ” count me out” !!
er Besserwiss-inn ekki að springa af þörf til að blogga þarna í auðninni fyrir austan? Eru ekki einhverjar kindur sem þarf að segja frá eða?!
Guð minn góður. Ég er búinn að vera í fríi, bloggandi á fullu og er endalaust að fara inn á þessa síðu þína. Engin bloggfærsla.
Eins og góður maður sagði einu sinni, ” Er Jóhannes dauður? ” Eða ertu alltaf inni á facebook?