Jóhannes setur sér ekki flókin markmið í lífinu, en eitt þeirra er að vera ekki 150 kíló í brjálaða kreisí fylleríspartíinu sem hann þarf að halda til að lifa það af að verða fertugur [orðið "fertugur" lesist með þungu andvarpi]. Til þess þarf að taka á því, og til að vera alveg hreinskilinn þá hefur undirritaður letihaugur Jóhannes ekki tekið þátt í neins konar líkamsrækt að nokkru marki, ef þá einhverju, svona síðustu 8-9 ár. Og ekki nóg með það, heldur hef ég almennt gert stólpagrín að fólki sem tekur þátt í útihlaupum. Ryendar hef ég alla tíð haft megna óbeit á því fyrirbæri og aldrei séð í því tilgang. Það er enginn bolti til að hlaupa á eftir.

Það kemur því mörgum væntanlega stjarnfræðilega á óvart að ég skuli vera sjálfviljugur farinn að stunda útihlaup og líkamsrækt, og ætli mér að halda því í allt sumar og vonandi lengur. Takk, takk, þið megið hlæja núna. … hérn … sko … það er … Ókei, allir bún … Ókei, allir búnir NÚNA?

Og ekki nóg með það. Ég er ekkert að kaupa mér kort í ræktina og fara svo þrisvar, taka tvær bekkpressur í hvert skipti og hætta svo. Neinei. Ég er búinn að gefa Sögu Garðarsdóttur opið skotleyfi á að taka mig í gegn. Nú súpa þeir hveljur sem þekkja Sögu Garðarsdóttur. Þeir sem ekki þekkja hana geta ímyndað sér þetta hér: Ef Saga tæki að sér að þjálfa Gillzenegger, færi Gillz að gráta og kalla á mömmu sína í hverjum einasta tíma. Ef Saga hefði verið þýsk og upp á sitt besta í kring um 1935, hefðu nasistarnir unnið.

Áðan byrjuðum við á léttum skokkhring. Ég hef ekki skokkað síðan ég hljóp Tjarnarhringinn bölvandi og ragnandi aðra hverja viku á Menntaskólaárunum. Það eru 15 ár síðan. Þol er eitthvað sem annað fólk hefur. Létti skokkhringurinn var því martröð hins feita og umfram allt lata manns. Létti skokkhringurinn var upphitun fyrir brekkuæfingarnar. Þið viljið ekki vita hvernig brekkuæfingarnar eru. Látum nægja að segja að ef Saga býður ykkur einhvern tíma í brekkuæfingar með sér, hafið þá vit á að segja nei takk. Ég er ekki viss um að ég sé með læri, og ég týndi kálfunum á þriðja brekkuæfingasettinu. Hef ekki fundið þá aftur. Efast um að þeir finnist fyrr en í haust.

Og til að kóróna þetta allt saman er líkaminn á endorfíntrippi að reyna að ljúga því að mér að honum líði rosalega vel. Helvítis masókisti. Þér mun hefnast fyrir þetta. Við eigum hlaupadeit við harðstjórann á mánudagsmorguninn.

11 Responses to “Masókistinn Jóhannes”
  1. Hildur R says:

    Er sjálf ekki mikið fyrir hlaupin en mun auðvitað mæta með vatnsbrúsann fyrir hvern sem vill taka þessa iðju upp.

    Er þó ekki fylgjandi of erfiðum æfingum í byrjun…þetta er skrifað með fyrirvara um að Jóhannes getur verið frekar ýktur penni og því gætu brekkuæfingarnar hafa tekið 10 mín en ekki 2 klst eins og lýsingin hljómar eiginlega…en ég bendi á þessa síðu samt http://www.c25k.com/

  2. Jóhannes Þ. says:

    Ó trúðu mér, það er heldur dregið úr í lýsingunum í þetta sinn.

  3. Una UK says:

    Hlökkum til að fá þjáningaröppdeit í dag!

  4. Keizarinn says:

    Ef þú vilt þá get ég búið til lyftingaprógramm í leiðinni. Svona prógramm þar sem maður fær sinabólgur í axlirnar bara við það að lesa prógrammið.
    Nei, styð þig heilshugar og mundu að brekkusprettir eru besta leiðin til að byggja upp læra og kálfavöðva auk þess sem þetta er svona svindlhraðleið upp að bættu þoli.
    Og ef þú rústar löppunum þínum, þá kemurðu bara til mín. Keizarinn býr bara til nýjar!!!

  5. Jóhannes Þ. says:

    Það er ekki ónýtt að hafa bæklunarlækninn á hliðarlínunni. Bæklunarlæknar kunna nebbnilega ekki bara að bækla fólk, heldur líka að tjasla saman sjálfskaparvítisbæklingum. Ég veit ekki hvort ég legg í þol-og-læra/rass-prógramm Sögu Garðarsdóttur OG lyftingaprógramm Keizarans (sem ég þykist vita að myndi gera Felix Magath grænan af öfund) á sama tíma. Hins vegar alveg spurning um að taka þeirri áskorun í vetur…?

  6. Hildur R says:

    mér finnst áhugavert að gerður hefur verið nýr flokkur í gagnakerfinu sem ber heitið “líkamsræktar-jóhannes”!

  7. Jóhannes Þ. says:

    Já. Það var eiginlega nauðsyn. Gamli Jóhannes kannast ekki baun við þennan nýja hlaupaóða og hreyfingarfíkna Jóhannes. Líkamsræktar-jóhannes er nýtt afbrigði sem við hinir (heimski jóhannes, jóhannes fýlupúki, jóhannes montrass, júróvisjón-jóhannes og fleiri kunnuglegir jóhannesar) vissum barasta ekki af.

  8. Gunnar Z says:

    Frábært framtak, til hamingju. Óborganleg lýsing á raununum, keep up the good work!

  9. Djöfull líst mér vel á þetta… Ef einhver getur brætt af manni lýsið þá er það Saga Garðarsdóttir, en passaðu þig samt að breytast ekki í kreatínbryðjandi orþorexíusjúkling, því að við viljum ekki sjá persónuleikann gufa upp með líkamsfitunni. Auk þess sem sixpack datt úr tísku á tíunda áratugnum.
    En ég hlakka til að heyra fleiri sögur af líkamsræktar-Jóhannesi og þrælahaldara-Sögu, þau eru gott dúó!

  10. Hildur R. says:

    er eiginlega sammála að six pack er dálítið 2007….og þú vilt nú ekki vera 2007 Jóhannes!

  11. E-man says:

    Gott framtak hjá þér!

  12.  
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>