Því miður viriðst það vera lenska hjá þeim sem andmæla rökum InDefence að reyna að klína því á hópinn að við mælum með því að Íslendingar borgi ekki ICESAVE skuldbingingarnar, líti í hina áttina og voni það besta. Þetta er ekki málstaður InDefence. Hópurinn lítur svo á að sá samningur sem nú liggur á borðinu sé ótækur, aðallega vegna þess að Íslendingar hafi ekki neinar efnahagslegar forsendur til að greiða skuldina samkvæmt honum. Áhersla InDefence er að Alþingi hafni ríkisábyrgð á þessum samningi og í kjölfar þess verði reynt að ná hagstæðari samningum við Breta og Hollendinga um það hvernig við greiðum skuldbindingar okkar, ekki hvort við greiðum.
Auk þess þætti mér indælt ef þeir sem vilja rökræða afstöðu InDefence hættu að finna hjá sér þörf fyrir að spyrða hópinn við Framsóknarflokkinn sérstaklega. Ég geri mér hins vegar fulla grein fyrir því að það er ekki að fara að gerast.







Entries (RSS)