Þá er komið að því að keyra í gang mússíkmeistarann 2009. Að venju verður keppnin illa skipulögð, sigurvegari ekki skýr að lokum, dómarinn asni, og svindl og prettir munu að líkindum viðgangast sem aldrei fyrr. En eins og maður segir í fótboltanum, þetta er allt bara hluti af leiknum.

Það verða engar flóknar reglur. Svarið spurningunum og rétt svör gefa stig. Sá sem hefur flest stig vinnur. Það verða engir hlutfallaútreikningar eða flókinn bisness með stigagjöf. Ef menn ekki fylgjast með og missa af, nú þá fá þeir bara engin stig í það skipti. Svekk.

Sú nýjung verður þó tekin upp að þegar ný umferð er póstuð á besserwissið þá verður gefin út tilkynning á hryllingssíðunni Facebook spurningaþyrstum aðdáendum Mússíkmeistarans til aðvörunar. Svör skulu póstuð á besserwissið.

Fyrsta umferð birtist núna fyrir helgi, þegar ég hef tíma til að búa til nógu svæsnar spurningar. Þetta verður ekki fyrir amlóða í ár.

One Response to “Mússíkmeistarinn 2009 – countdown”
  1. Bogart says:

    Of course there is no formula for success except perhaps an unconditional acceptance of life and what it brings.

  2.  
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>