Það er hefð fyrir því að síðasta getraun mússíkmeistarans birtist á jóladag ár hvert. Nú hefur mússíkmeistaranum augljóslega seinkað svolítið, því að umsjónarmaður getraunarinnar var settur í gapastokk í tyrknesku fangelsi í þrjá mánuði (eða önnur líkleg skýring sem þið trúið betur).

Meistaranum verður því í þetta sinn framlengt yfir á nýárið, en engu að síður mun birtast getraun á jóladag, svo að keppendur geta farið að undirbúa sig andlega.

Annað smáatriði: Ég stóð í ujppfærslu á öllu kerfinu í síðustu viku, og allt draslið hvarf og fokkaðist royally upp, eins og gerist alltaf þegar ég uppfæri besserwissið. Fastir liðir eins og venjulega. Uppfokkið var með mildara móti í ár, en hafði hins vegar þá leiðu aukaverkun að stigatölurnar sem komnar voru í hús hurfu með manni og mús. Man einhver hvernig stigin stóðu?

4 Responses to “Ný mússíkmeistaragetraun á jóladag.”
  1. Hildur R. says:

    ég gæti sagt að ég væri efst…eins og ég á auðvitað að vera en ég held að ég hafi verið í 3. sæti (ef ég miða við þessa einu getraun sem hefur verið)
    1-2 sætið var jafnt en það voru einhverjir sem ég þekki ekki.

  2. Keizarinn says:

    ÉG var í fyrsta sætinu ef ég man rétt. Einhver minna þekktur var líka í 1.sæti.

  3. Mágur þinn góðiur says:

    Hvar er músíkmeistarinn? Ég er búinn að undirbúa mig í allann dag og svo gerist ekkert.

  4. E-man says:

    Ég var víst með 4 stig…

  5.  
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>