So Han’s walking down the halls of Bespin with his old friend Lando. Leia’s there, and lookin’ good. Han thinks he’s off to dinner – maybe some wine, a little flirting, and then back to the ol’ guest quarters with Her Hotness. But the door opens, and there’s Darth Vader. Han doesn’t look incredulously at Lando; he doesn’t duck or run away. What does Han do? He starts shooting at the motherfucker. He starts shooting. Be like Han.
|
Hér er áhugaverð pæling varðandi tengsl uppgjörs bankanna við tímapressuna á að ljúka Icesave málinu fyrir októberlok: Og hér er áhugaverði punkturinn: Getur verið að tímapressan í Icesave málinu sé einmitt m.a. vegna þess að ein stærsta hótun Breta og Hollendinga í málinu, að fella neyðarlögin fyrir dómstólum, verður innantóm orð eftir 31. október, þegar kröfuhafarnir hafa de facto samþykkt neyðarlögin?
Oct
08
2009
Mörgum spurningum um hryðjuverkalögin ósvarað ennPosted by Jóhannes Þ. in UncategorizedÍ dag er eitt ár liðið frá því að bresk yfirvöld beittu ákvæum hryðjuverkalaga á íslenska ríkið, Seðlabanka Íslands og Landsbankann. InDefence sendi frá sér yfirlýsingu af þessu tilefni sem lesa má í heild sinni hér. Í gær birti vefútgáfa breska blaðsins Telegraph áhugaverða grein þar sem hluti atburðarásarinnar er rekinn og spurningum velt upp um það sem ekki hefur verið útskýrt. Þar segir meðal annars:
Þegar Alþingi samþykkti ríkisábyrgð á Icesave lánasamningunum voru settir skýrir fyrirvarar við ríkisábyrgðina. Þessir fyrirvarar voru árangur þrotlausrar samvinnu fólks í öllum flokkum. Út af fyrir sig óvenjuleg upprisa Íslenskra þingmanna úr pólitísku skotgröfunum og mjög jákvæð þróun þingstarfa. Þessir fyrirvarar gerðu vonda Iceseve samninga ögn bærilegri frir íslenska skattborgara, jöfnuðu tafli- örlítið miðað við þann herfilega samningstexta sem samninganefnd Íslands skrifaði undir þann 5. júní, og ríkisstjórnin samþykkti fyrir sitt leyti óséðan. Mikilvægt er að halda því til haga að samningstextinn sjálfur hefur ekkert breyst við lög um ríkisábyrgð. Enn eru þar inni óvenju víðtækar gjaldfellingarheimildir svo dæmi sé nefnt, sem geta valdið Íslandi miklum vanda ef illa gengur að afla gjaldeyris til afborgana á næstu árum, jafnvel á öðrum lánum ríkisins, ótengdum Icesave. Samningurinn er því ekkert betri eftir lagasetninguna, aðeins örlítið minna hörmulegur. Eitt mikilvægasta atriðið í lögunum kemur fram í fyrstu grein þeirra. Þar segir:
Þetta ákvæði gefur til kynna skýran vilja Alþingis: Að ríkisábyrgð skuli því aðeins veitt ef þessum fyrirvörum er fullnægt. Þetta gæti ekki verið skýrara. Alþingi tók langan tíma í að vinna faglega og þverpólitískt að þessum fyrirvörum og þetta er niðurstaðan. Ríkisstjórn Íslands kaus hins vegar að virða ekki þessa niðurstöðu Alþingis. Strax í byrjun september fékk ríkisstjórnin vitneskju um að Bretar og Hollendingar gerðu athugasemdir við fyrirvara Alþingis, höfnuðu þeim í raun. Svar íslenskra stjórnvalda þá þegar hefði átt að vera einfalt: Gott og vel, þá er engin ríkisábyrgð. Slíkt svar, slík einurð og skýr afstaða með afgreiðslu Alþingis og með augljósum hagsmunum Íslands í málinu hefði ekki einungis haft fullan stuðning Alþingis, heldur einnig stuðning meirihluta Íslensku þjóðarinnar, sem hefur sýnt það í skoðanakönnunum hversu mikla andúð hún hefur á kúgunartilburðum Breta og Hollendinga til að láta Íslenskan almenning bera þessa skuld að fullu. Það er ekkert leyndarmál lengur að Bretar og Hollendingar nota Alþjóða Gjaldeyrissjóðinn til að knýja Íslendinga til að samþykkja Icesave og þannig í raun til að kúga fé út úr íslensku þjóðinni. Steingrímur J. Sigfússon staðfesti þetta við fulltrúa InDefence í símtali strax 7. júní og nú fyrir skömmu lýsti Össur Skarphéðinsson yfir vanþóknun á þessu athæfi á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Gordon Brown hefur heldur ekki farið í felur með þetta athæfi, en hann lýsti því yfir á breska þinginu á meðan á samningum stóð að Bretar væru að “vinna að því í samvinnu við AGS að sjá til þess að Íslendingar greiddu skuldir sínar” vegna Icesave. Það ætti því ekki að dyljast neinum að AGS er notað sem kúgunartæki og ekkert annað. Ef Ísland greiðir ekki Icesave þá skuli engin endurskoðun á efnahagsáætluninni fara fram og þar með engin lán berast til Íslands og svo framvegis. Íslensk stjórnvöld hefðu átt að hrópa þessa skömm Breta og Hollendinga af húsþökum í öllum stærstu fjölmiðlum heims allt frá upphafi og þannig gera alþjóðasamfélaginu þetta ljóst. Það hefði ekki komið vel út fyrir AGS og hefði styrkt okkar samningsstöðu. Það var ekki gert. Ísland hefði átt að standa upp frá samningsborðinu og gera Bretum og Hollendingum það ljóst að það yrði ekki einn einasti fundur um málið fyrr en þessari hegðun lyki. Það var ekki gert. Í staðinn var þagað og kúgunin látin viðgangast. Og þess vegna viðgengst kúgunin enn í dag. Í stað þess að standa með fyrirvörum Alþingis kaus ríkisstjórnin í byrjun september að ljúga að þjóðinni í hartnær tvær vikur að engin svör hefðu borist. Á meðan var hafist handa við að semja um breytingar á fyrirvörum Alþingis, enn á ný undir kúguninni um frestun endurskoðunar AGS. Jóhanna Sigurðardóttir orðaði það svo á opnum fundi Samfylkingarinnar þann 30. september sl. að það væri verið að reyna að ná niðurstöðu um nokkur atriði fyrirvaranna sem báðir aðilar gætu sætt sig við, og ef það næðist myndu Íslendingar “biðja” Breta og Hollendinga aflétta þrýstingi sínum á AGS svo endurskoðunin gæti farið fram strax og samningum lyki. Þetta er ekkert annað en óskiljanleg þrælslund. Það er engin tilviljun að Neville Chamberlain hefur orðið að athlægi í sögunni fyrir að láta eftir landakröfum Adolf Hitlers í München 1938, í þeim tilgangi að biðja hann um að hætta að gera meiri landakröfur í Evrópu. Allir vita hvert gildi skjals Chamberlains um “frið á vorum tímum” var. Friðþæging íslensku ríkisstjórnarinnar á kröfum Breta og Hollendinga um afslætti á fyrirvörum Alþingis er af nákvæmlega sama meiði og friðþæging Chamberlains. Ríkisstjórnin er að uppfylla kröfur kúgarans til að biðja hann um að hætta að kúga sig. Í slíkri stöðu gerist alltaf það sama: Kúgarinn nær markmiðum sínum, kúgunin virkar. Ég skora á ríkisstjórn Íslands að láta slíkt ekki yfir þjóð sína ganga. Ég skora á ríkisstjórn Íslands að segja við Breta og Hollendinga: Hingað og ekki lengra, nú er nóg komið! Ríkisstjórnin er ekki í slæmri samningsstöðu. Þann 23. október nk. verður innlánatrggingasjóður gjaldþrota ef ekki hefur samist um ríkisábyrgð. Það er ekki Bretum og Hollendingum í hag og þeir munu aldrei velja þá leið sjálfviljugir. Því er nú rétti tíminn fyrir Íslendinga að snúa taflinu við. Skilaboð ríkisstjórnar Íslands, Alþingis og íslensku þjóðarinnar til Breta og Hollendinga ættu því að vera einföld og skýr: Fyrst AGS endurskoðun strax. Svo getum við rætt saman um Icesave. Ekki fyrr. Íslenska þjóðin lætur ekki kúga sig lengur! Besserwissið hefur ákveðið að bæta tónlistarsmekk landsmanna með því að kynna PJ Harvey fyrir þeim sem ekki hafa enn uppgötvað hana af sjálfum sér. PJ Harvey er eini tínlistarmaðurinn sem kemst með tærnar þar sem goðið Nick Cave hefur hælana. Því er vel við hæfi að þau deili með sér bölsýniskrúnunni í rokkinu, hann oft nefndur The King of Sorrow, en hún Queen of Sadness. Hvorugt þeirra nær þó þeim hæðum sem Morrissey nær í því að vorkenna sjálfum sér, enda þau bæði oftar að fjalla um annarra böl og vonleysi. Hins vegar er nánast pottþétt hægt að lofa því að fílirðu Nick Cave, þá muntu fíla PJ Harvey einnig. Kannski veistu ekki af því, en þú fílar hana samt. Þannig að það er eins gott að byrja að hlusta á hana. PJ Harvey hefur gefið út mýgrút af plötum. Sú fyrsta sem náði eyrum tónlistarheimsins fyrir alvöru var meistarastykkið To Bring You My Love sem er sömuleiðis einna hlustendavænst fyrir Harveybyrjendur. Tvö lög toppa þá plötu, titillagið og Come on Billy. Gerið svo vel:
Fyrir þá sem viðja dýfa tánum dýpra í sorgardrottninguna má benda á mína persónulegu uppáhaldsplötu með henni, hina mergjuðu Is This Desire? Horfið hlustið njótið. Góðar stundir
Einnig er hægt að versla eitt og eitt lag á vefnum. Verði er stillt í hóf og sem áður fer allur ágóði beint til Íslands-Palestínu. Góða hlustun.
Aug
31
2009
Vafasöm síðmótun: paunkkk sem virkar í kreppunniPosted by Jóhannes Þ. in frettir, paunkkk, vafasöm síðmótunDatt í Vafasöm síðmótun hlustun áðan. Það er tónlist sem á vel við í þessu skítastjórnmála- og kreppuástandi sem ríkir. Læt fylgja hér eitt mergjað tóndæmi sem summar upp íslensku kreppuna á ellefu mínútum, þrátt fyrir að vera samið (og tekið upp á meðan) árið 2007. VS er sannarlega paunk á undan sinni samtíð. Lagið er að sjálfsögðu hið mergjaða “Allsherjar samsæri!“. Textinn er ekki fyrir viðkvæm eyru. Góðar stundir.
Aug
28
2009
Fjandans lydduskapur, heimska og aðrar birtingarmyndir fávitaskaps íslenskra stjórnmála- og embættismanna.Posted by Jóhannes Þ. in frettir, og svo...Ég er alveg ógeðslega pirraður núna. Ekki nóg með að ég sé búinn að vera fáránlega veikur síðan í fyrradag, hóstandi, snörlandi og guðmávitahvað þá eru stelpurnar úr leik á EM. Og eins og það sé ekki nóg til að pirra hvern íþróttasinnaðan íslending þá stendur í þokkabót til að Alþingi samþykki helvítis Icesave kjaftæðið á eftir. Bara nokkrar ræður og svo er þetta búið spil. Ísland situr uppi með rúmlega 300 milljarða í vexti og vaxtavexti af þessu klúðri og krakkarnir mínir sitja uppi með að þurfa að borga af þessu þar til þau verða þrítug ef að líkum lætur. Ég bókstaflega hata þetta mál frá upphafi til enda og ég hefði aldrei í lífinu trúað því áður en ég byrjaði í þessari baráttu, hvað íslenskir stjórnmálamenn og embættismenn eru margir hverjir miklir heimskingjar, fávitar og lyddur þegar kemur að því að verja grundvallarhagsmuni barnanna minna. Já ég sagði heimskingjar, fávitar og lyddur og ég skal standa við það hvar sem er og hvenær sem er vegna þess að ég get hæglega nefnt ótrúleg og dagsönn dæmi um þetta allt saman sem ég hef orðið persónulega vitni að á þessum mánuðum. Heimskingjar vegna þess a) að sumir þeirra voru í alvöru að gera sér grein fyrir því bara í síðustu viku að þetta snerist um galla í innistæðutryggingakerfi ESB, b) sumir þeirra sem skrifuðu undir samninginn héldu í alvöru að við fengjum allar eignir Landsbankans afhentar til að selja og að það yrði feikinóg til að greiða alla skuldina, c) enginn af þessu fólki virtist gera sér grein fyrir því að það skipti máli að lánið er í erlendum gjaldeyri en ekki krónum. Heimskupunktarnir spanna hálft stafrófið í viðbót að minnsta kosti. Fávitar, vegna þess að fólkið sem skrifaði undir er búið að ljúga, blekkja og fífla þjóðina aftur og aftur til að líta betur út í þessu máli. Aftur og aftur og aftur er ég búinn að standa Indriða Þorláksson, Steingrím Sigfússon, Jóhönnu Sigurðardóttur, Svavar Gestsson og fleira fólk að því að annað hvort þekkja ekki einföld mikilvæg atriði í samningstextanum sem þau skrifuðu upp á. Þ.e. annað hvort vissu þau ekki hvert innihaldið var nú eða þau hreinlega lugu að okkur um innihaldið. Hvort eruð þau fávitar eða lygarar? Miðað við hegðun þessa fólks og yfirlýsingar þeirra frá því í byrjun júní þá er þetta fullkomlega eðlileg spurning. Myndbandið með Steingrími og Jóhönnu sem farið hefur í ljósum logum um netið að undanförnu er bara toppurinn á ísjakanum hvað þetta snertir. Að ógleymdu því að voga sér að skreppa í golf og matarboð og skreppa svo rallhálfur í pontuna niðri á Alþingi um kvöldið til að tjá sig og gera sig að fífli í augum þjóðarinnar, þegar mikilvægasta mál Íslenska lýðveldisins er til umræðu. Sigmundur Ernir þú ættir að hundskammast þín. Ef ég mætti fullur í vinnuna yrði ég rekinn og ég geri sömu kröfur til þín. Þú situr á þingi í umboði almennings, ég er almenningur og þú ert rekinn. Hundskastu út af þinginu mínu ef þú berð ekki meiri virðingu fyrir því en þetta. Lyddur vegna þess að stjórnmálamennirnir sem bera ábyrgð á því að undirrita samningstextann virðast uppteknari af því að kasta ábyrgðinni yfir á aðra stjórnmálamenn “af því þeir byrjuðu alla einkavæðinguna og þeir skrifuðu undir memorandumið frá í október og blablabla”. Þetta eru eins og skólakrakkar sem reyna að firra sig ábyrgð á eigin hálfvitaskap með því að segja “já en hann bryjaði”. Svoleiðis afsakanir virka ekki í kennslustofunni hjá mér og þær virka sko fjandinn hafi það ekki þegar maður er fjármálaráðherra og forsætisráðherra! Takið ábyrgð á eigin gerðum. Fyrr mun ég enga virðingu bera fyrir ykkur. Það er búið að vera á skalanum sorglegt til hryllilegt að horfa upp á æðstu embættismenn þjóðarinnar hvað eftir annað haga sér eins og talsmenn Breta og Hollendinga, Reyna að blekkja og ljúga að öllu og öllum um allt sem Icesave viðkemur, reyna að draga allar tennur úr þeim fyrirvörum sem Alþingi þó reyndi að ná inn í frumvarpið um ríkisábyrgðina, leggja allt kapp á að hraða málinu eins og hægt er á meðan það er ljóst að hver mínúta er okkur nauðsynleg nú þegar alþjóðasamfélagið er loksins farið að hlusta á okkar sjónarmið. Ég hef sjaldan verið meira sammála nokkru sem þingmaður hefur sagt í pontu , eins og því þegar Sigmundur Davíð sagði í dag að ríkisstjórnin hefði brugðist frumskyldu sinni í þessu máli, að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar. Þessi ríkisstjórn, sem sett var saman með svo góðum fyrirheitum hefur í miínum huga markað sér eilífan sess sem ríkisstjórn landráðamanna. Megi hún lifa sem skemmst. Hvað tekur við hef ég ekki hugmynd um, en mér er til efs að nokkur ríkisstjórn geti verið verri eigin þegnum en þessi. Þetta eru bara nokkur dæmi um heimskuna, fávitaháttinn og lydduskapinn sem ég hef orðið vitni að, persónulega og í gegn um fjölmiðla. Hvernig væri að Alþingismenn og ráðherrar sérstaklega gerðu sér grein fyrir því að á bak við þessa fyrirvara sem öll umræða snýst nú um stendur hryllilegur samningstexti, undirritaður af fulltrúum Íslands, sem breytist lítið sem ekkert þótt Alþingi setji þessa fyrirvara við ríkisábyrgðina. Það eru ennþá 11 gjaldfellingarheimildir í samningnum. Það er ennþá fullveldisafsal í samningnum sem er miklu, miklu vítækara en EMTN lánarammi ríkisins gerir ráð fyrir. Það er ennþá ákvæði í samningnum sem segir að Bretar og Hollendingar skuli fá sama rétt ef íslendingar semja við aðra um betri kjör þeim til handa, ákvæði sem hreinlega kemur í veg fyrir að íslendingar geti varið neyðarlögin með samningum við þá sem höfða mál vegna þeirra. Og svona mætti lengi telja. Það er vissulega settur fyrirvari á ríkisábyrgðina um að greiðslur skuli aðeins nema ákveðnum prósentum af hagvexti, en það er enginn fyrirvari um að sé skuldin ekki að fullu greidd árið 2024 þá falli hún niður. Það á bara að setjast í teboð og “ræða málið”, eins og það muni skila einhverju. Það þýðir bara að það verður lengt í hengingarólinni og við verðum að borga afganginn seinna, til dæmis í 15 ár í viðbót! Við skulum líka hafa það á hreinu að þessi lagalegi fyrirvari um að íslendingar áskilji sér rétt til að fá skorið úr lagaóvissu um innistæðutryggingar er máttlaus. Hann segir:
Þetta orðalag “fyrir þar til bærum úrlausnaraðila” þýðir að nást verður samkomulag við Breta og Hollendinga um úrlausnaraðilann. Það er enginn slíkur aðili sem Ísland getur vísað þessu máli til einhliða. Evrópudómstóllinn hefur ekki lögsögu og ekki EFTA dómstóllinn heldur. Alþjóðadómstóllinn í Haag gæti tekið þetta mál fyrir, en til þess verða báðir aðilar að samþykkja það. Gerðardómur er síðasti möguleikinn, en það verða báðir aðilar að samþykkja. Það er því dagljóst að miðað við hvað Bretar og hollendingar hafa hingað til neitað algerlega að fara þessa leið þá er ekki mikill möguleiki á því að þeir hafi skyndilega áhuga á því þegar þeir eru búnir að fá samningana skothelda. Auk þess þá hef ég ekki nokkra einustu trú á því að íslensk stjórnvöld ætli sér að fara af hörku í það að knýja fram þennan dómsúrskurð. Axarsköft, vanhæfni og fávitaháttur stjórnvalda í þessu máli hingað til gefa ekki tilefni til trúverðugleika varðandi framhaldið. Þeir sem á annað borð hafa haft geð í sér til að lesa allan þennan hundleiðinlega rant eru líklega búnir að gera sér grein fyrir því að ég er kominn með æluna upp í kok og gott betur yfir þessu máli öllu saman. Ef ég fengi að ráð yrði öllum sem bera snefil af ábyrgð á þessu helvíti settir á Hraunið fyrir lífstíð. Það eina sem heldur mér gangandi í þessu núna er tilhugsunin um Steingrím og Jóhönnu að búa til bílnúmer til eilífðarnóns. En það dugar skammt, því að það versta er að þetta pakk kann ekki einu sinni að skammast sín. Svei þeim. Það sem mér finnst samt ótrúlegast sjálfum er að þrátt fyrir þetta allt þá veit ég að þegar Alþingi verður búið að samþykkja þennan ósóma þá verð ég fyrstur í röðina til að kynna niðurstöðuna fyrir erlendum fjölmiðlum, kynna málstað og sjónarmið Íslands út á við, sjá til þess að umheimurinn viti hvað felst í fyrirvörunum og að þeir krefjist aktífrar viðurkenningar Breta og Hollendinga. Það er bara ekkert annað í boði. Ef við eigum einhverntíma að komast út úr þessu sjitti þá verðum við að standa bak í bak og reyna að klára þetta mál þannig að við séum ekki fótum troðin meira en orðið er. Og það er því miður mín reynsla að ef áhugasamir borgarar þessa lans standa ekki vaktina þá gera stjórnvöld ekki neitt. Ég þori að fullyrða að það er ekki til nein áætlun um það hvernig skal kynna þessa niðurstöðu erlendis. Ég er handviss um að stjórnvöld halda að það sé nóg að kynna þetta bak við tjöldin fyrir bretum og Hollendingum og fá uppáskrift á fyrirvarana frá þeim og málið sé dautt. Ég er algerlega klár á því að enginn íslenskur ráðherra mun taka rúntinn á Evrópuríkin til að ræða þetta mál, kynna niðurstöðu Alþingis og tala máli þjóðar sinar við starfsbræður sína þar. Ekkert af þessu hefur gerst hingað til og ekkert af þessu er líklegt til að gerast núna, því miður. Íslensk stjórnvöld virðast halda að kynningarmál seu einhvers konar óraunhæfur vísindaskáldskapur. En það er bara ekki þannig. Ég er búinn að reyna það á eigin skinni undanfarna mánuði, og sérstaklega undanfarnar þrjár vikur, að það er ekki stórmál að búa til fyrirsagnir í erlendum fjölmiðlum. Það krefst mikillar vinnu, en það er fullt af fólki þarna úti tilbúið að hlusta og tala máli Íslands, ef það bara fær upplýsingar og tækifæri til þess! Þannig að andskotinn hafi það, það verður einhver að láta þetta fólk hafa upplýsingar. Það er bara sorglegt að það skuli vera eitthvað random fólk úti í bæ sem þarf að sjá um þessa vinnu af því að þeir sem ættu að gera það sinna því ekki. Þannig að ég sé ekki fram á að geta hætt þessu fljótlega. Það er bara því miður ekki í boði. ———— Ekki skánaði nú skapið við að horfa og hlusta á jarðarför íslenska velferðarkerfisins í atkvæðagreiðslu um Icesave í morgun. Sumt af því sem þar kom fram sýnir að jafnvel enn þegar verið er að greiða atkvæði skilja sumir þingmenn ekki grundvallaratriði í málinu. Sorglegt. Og í atkvæðagreiðslunni sjálfri situr fjöldinn allur af þingmönnum hjá! Ég segi og stend við það: Ef fólk sem kosið er á Alþingi til að fara með ákvarðanavald fyrir Íslensku þjóðina getur ekki uppfyllt þá lágmarkskröfu að taka afstöðu með eða á móti stærsta máli sem Alþingi hefur fjallað um frá Lýðveldisstofnun, þá á það fólk að finna sér aðra vinnu eins og skot! Djöfulsins aumingjar. Að segja já og standa þannig með þeiri vinnu sem þeir hafa lagt í fyrirvarana hefði verið virðingarverð afstaða þótt ég hefði ekki verið sammála henni. Það er ekkert virðingarvert við að sitja úti í horni með spurningarmerki á fésinu því maður annað hvort þorir ekki að taka afstöðu eða vegna þess að flokkurinn þarf að geta búið til pólitískan spuna um að ríkisstjórnin beri ein ábyrgð á öllu klúðrinu. Ég veit ekki hvort er verra, en báðir möguleikarnir eru í það minnsta algerlega viðbjóðslegir! Þá er runninn upp síðasti dagur sumarleyfis. Að vísu hefur þetta nú bara verið hálft sumarfrí eiginlega, því ég er bæði búinn að vera að skrifa bækling, vinna í og setja upp nýja heimasíðu fyrir skólann og á fullu í InDefence vinnu, sérstaklega núna seinni hlutann. En sumarfrí engu að síður og á morgun byrjar svo rútínan á ný. Byrjaði morguninn á skokki í miðbænum, magaæfingum í hljómskálagarðinum og styrktaræfingum og Madonnu-armbeygjum á Landakotstúninu. Kaffi í kringlunni með spúsu minni eftir hádegið, keypti mér skyrtu og svo bíó með familíunni á eftir, hin ógurlega hamstramynd G-Force. Í 3D að sjálfsögðu. Hvað ætli verði langt þar til fólk man ekki eftir því að bíó hafi einhvern tíma verið í 2D? Það verður bara eins og ekkert sjónvarp á fimmtudögum, í besta falli einhver slöpp afalygi. Allt í allt ágætur síðasti dagur. Gallinn er að vikan verður líklega ansi þétt, því að út af allri þessari vinnu í sumar er ég ekki búinn að undirbúa neitt af kennslunni sem ég ætlaði að vera voða duglegur að gera í sumar. Það verður eitthvað fjör úr því. En já, eftir viku fyllist skólinn svo af rúmlega 700 krökkum. Tekið er við veðmálum um það hvenær við kynnumst Svínaflensu-Jóhannes. Ég gef þessu tvo mánuði tops.
Aug
14
2009
Ræða á samstöðufundi Íslendinga á AusturvelliPosted by Jóhannes Þ. in samstöðufundur íslendingaVið Íslendingar erum sérfræðingar í að rífast innbyrðis. Það er hæfileiki sem við höfum hlúð að og ræktað af alúð á þeim þúsund árum sem liðin eru síðan forfeður okkar hreiðruðu um sig á þessu veðurbarða skeri. Sjaldan í sögu Íslands hefur reynt jafn mikið á þessa þjóðaríþrótt eins og undanfarna 10 mánuði, enda ærið tilefni gefist. Á hverjum degi virðumst við færast fjær því að vera heil þjóð, en nær því að vera aðeins samsafn einstaklinga sem fyrir tilviljun búum á sama klettinum. Og það sem okkur verður að skiljast í dag er að Íslendingar eiga sér framtíð. Einmitt þess vegna verðum við að standa saman, í dag og alla daga. Við munum auðvitað halda áfram að rífast hressilega innbyrðis, enda er það ekkert annað en heilbrigð leið til að skiptast á skoðunum og rökræða það sem máli skiptir hverju sinni. Svo lengi sem við komum okkur saman um að vinna að velferð og framtíð Íslands og Íslendinga. Því þegar framtíð Íslands er ógnað, þegar afkomu barnanna okkar er haldið í gíslingu, þá hljótum við að stíga upp úr skotgröfunum og taka höndum saman um að verja okkar sameiginlegu hagsmuni. Á undanförnum vikum hef ég ítrekað heyrt fólk segja: En hvað get ég gert? Ég er bara sjómaður, ég er bara bakari, hárgreiðslukona eða rafvirki. Ég er atvinnulaus. Hvað á ég að gera? Þetta hugsaði ég eins og líklega allir Íslendingar þegar ósköpin dundu yfir í október. Ég er bara grunnskólakennari í Breiðholtinu, hvað get ég gert? Þar til ég áttaði mig á því að ef allir bíða og vonast eftir því að einhver standi upp og berjist fyrir þeirra málstað mun enginn gera það. Sú ábyrgð er jafn mikið á mínum herðum og annarra. Þetta er ekki barátta vopna eða valda. Þetta er barátta orða, barátta réttlætis og sanngirni og í þeirri baráttu er enginn of smár. Þegar kemur að framtíð landsins, framtíð okkar sem þjóðar, er valdið í höndum einstaklingsins, í höndum okkar allra. Við erum þjóðin. Og þess vegna stend ég hér, til að hvetja alla Íslendinga til að standa upp og láta heyra í sér. Látum heyrast að við krefjumst sanngirni, látum heyrast að við tölum einum rómi þegar kemur að því að verja hagsmuni barnanna okkar, látum allan heiminn sjá að þegar á reynir standa Íslendingar uppréttir og standa þétt saman. Sameinuð stöndum vér, sundruð munum vér falla. Frú Vigdísi Finnbogadóttur var þessi sameiningarmáttur hugleikinn og hún minnti ítrekað á að hverjum Íslendingi, stjórnmálamönnum sem og okkur öllum, bæri rík skylda til að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar og leggja okkar af mörkum. Árið 1992 sagði Vigdís í innsetningarávarpi sínu: “Ein dýrmætasta gjöf sem hægt er að hljóta er traust þjóðar. … Í dag er runninn upp tími samstöðu. Við sem stöndum hér höfum tekið þá ákvörðun að vinna sameinuð að hagsmunum Íslands út á við og nú er það okkar ábyrgð að hvetja aðra til að ganga með okkur þann veg. Á næstu dögum verður Icesave málið afgreitt frá Alþingi. Það er ljóst að sá samningur sem liggur á borðinu núna er ónýtur og má ekki samþykkja í núverandi mynd. Því er nauðsynlegt að Alþingi hreinlega hafni honum eða setji við hann svo sterka og ótvíræða fyrirvara að í kjölfarið eigi Bretar og Hollendingar þann eina kost að setjast aftur að samningaborðinu með okkur. Til að Alþingi geti afgreitt málið á þann hátt verðum við Íslendingar að sýna alþjóðasamfélaginu á skýran hátt að við stöndum þétt og dyggilega við bakið á þjóðþinginu okkar í þeirri afgreiðslu. Í þeirri baráttu sem framundan er megum við ekki vera sjálfstæðismenn, vinstri grænir, framsóknarfólk, samfylkingarmenn, úr borgarahreyfingunni né nokkrum öðrum pólitískum samtökum. Í þeirri baráttu verðum við öll að vera fyrst og fremst Íslendingar. Og kröfur Íslendinga eru ekki óréttmætar. Við erum ekki dekurbörn, sem eru óalandi og óferjandi í í samfélagi þjóðanna. Við erum ekki að reyna að skjótast undan skyldum okkar eða afneita ábyrgð. Við förum einfaldlega fram á sanngjarna lausn, sem við getum staðið við en leiðir okkur ekki til efnahagslegrar glötunar. Sá samningur sem nú liggur á borðinu er einhliða og ósanngjarn og felur ekki á neinn hátt í sér örugga framtíð fyrir okkur sem sjálfstæða þjóð. Við höfum sterkan málstað sem hefur því miður ekki borist nógu víða eða verið haldið nægilega vel fram. Þrátt fyrir þetta hefur málstaður Íslendinga vaxandi stuðning meðal áhrifafólks erlendis. Sem dæmi má nefna tvo leiðara í breska dagblaðinu Financial Times, þar sem kvartað er yfir ósanngirni Icesave samninganna og reifaðar áhyggjur af efnahagslegri framtíð Íslendinga ef gengið verður að þeim óbreyttum. Hér kveður við hliðhollari tón í virtum breskum fjölmiðli en heyrst hefur frá sumum íslenskum leiðarahöfundum. Og því verðum við að horfa saman inn í framtíðina. Frumvarpið um ríkisábyrgð vegna Icesave samingana verður ekki samþykkt í óbreyttri mynd. Alþingi mun hafna því eða setja stranga og ótvíræða fyrirvara við ríkisábyrgð og um það þarf samstöðu þings og þjóðar. Því við erum öll á sama báti. Núna er tækifæri fyrir okkur Íslendinga að sýna Bretum, Hollendingum og öðrum þjóðum heims að hér býr fólk sem er viljugt til að standa við réttmætar skuldbindingar sínar, en sættir sig ekki við ósanngjarna og sligandi afarkosti. Góðir gestir. Frú Vigdís Finnbogadóttir skipar mikilvægan sess í íslenskri þjóðarsál. Það sem fáum hefur tekist, virtist henni áreynslulaust, að vera raunverulegt sameiningartákn Íslensku þjóðarinnar. Það fer vel á því að hennar hvatning verði okkar leiðsögn að lokum: “Ekkert fæst fyrir ekkert. Engu verður áorkað með úrtölum og doða og eftirsjá eftir glingri. Ekkert ætti að vera Íslendingum jafn fjarri og láta sér fallast hendur.
Aug
11
2009
Samstöðufundur Íslendinga á Austurvelli!Posted by Jóhannes Þ. in samstöðufundur íslendingaNú er að duga eða drepast. Á fimmtudaginn byrjar kynningarherferð Íslendinga á sjónarmiðum sínum fyrir alvöru erlendis. Greinar munu birtast, fréttir verða skrifaðar, myndir munu birtast og það skiptir ÖLLU máli að á bak við þetta framtak standi á Austurvelli stór hópur Íslendinga sem koma þar saman til að krefjast sanngjarnrar lausnar á Icesave málinu. Egill Ólafsson verður fundarstjóri á fimmtudaginn og þarna verður landsþekkt fólk sem segir sína skoðun og þjóðþekktir tónlistarmenn taka lagið. Þetta er fundur fyrir alla fjölskylduna því að ÞAÐ ERU ÍSLENSKAR FJÖLSKYLDUR SEM MUNU BORGA BRÚSANN AF ICESAVE. Mætum því öll með börnin, afa og ömmu, frænda og frænku og sýnum alþjóðasamfélaginu að Íslendingar eru engar lyddur sem láta valta yfir sig. Við erum ekki búin að þrauka á þessu veðurbarða skeri í rúm þúsund ár til að láta kippa fótunum undan okkur núna. Á Austurvelli verður allt krökkt af erlendum fjölmiðlum sem verða komnir þangað til að sjá og mynda það hvort Íslendingar standa saman í raun og veru eða hvort þetta er allt í nefinu á okkur. Það eina sem getur sannfært þá um málstað okkar er að Austurvöllur verði stappaður af fólki sem hefur eina rödd: Við viljum sanngirni fyrir Ísland, sanngirni fyrir börnin okkar. Tíminn er núna. Það er í ALVÖRU kominn tími til að hver maður geri skyldu sína. Mættu á Austurvöll. Það MUN skila árangri. InDefence er búið að setja upp síður á Twitter (http://twitter.com/InDefence) og Facebook (http://www.facebook.com/pages/InDefence/261791000056). Endilega kíkið á þær og tengið ykkur til að fá allar upplýsingar beint í æð. Pútín er maðurinn. Hann er kaldari en Bajkalvatn. Þessi óskiljanlegi Líkamsræktar-Jóhannes er að gera út af við mig. Hann vaknar sjálfviljugur klukkan 5 á morgnana til að fara í jóga, fer í World Class í Laugum nánast á hverjum degi og spýtir sífellt í mig einhverju djöfulsins endorfíni til að ljúga því að mér að mér þyki þetta líferni gott og heilbrigt. Í gær fór ég að sofa fyrir miðnætti. Í sumarfríinu. Mér förlast. Sú var tíð að það var bara hægt að drösla mér hálfsofandi fram úr rúminu klukkan fimm á morgnana, bölvandi og ragnandi, ef ég þurfti nauðsynlega að fara í flugvél til útlanda, og þá bara ef Icelandair harðneitaði að fresta fluginu til hádegis þrátt fyrir ítrekuð símtöl. Uppskeran úr þessum ósóma eru fyrst og fremst harðsperrur sem myndu láta Hulk fara að skæla. Á mánudaginn fór ég til dæmis í tíma sem kallast því yfirborðsfallega nafni ‘Shape’. Hann gengur út á fettur og brettur og alls kyns æfingar með handlóðum og stangarlóðum, pöllum og fleiri verkfærum djöfulsins. Ég er fyrst að geta rétt úr olnbogunum nokkurnveginn sársaukalaust í dag en axlirnar á mér hata mig ennþá. Það er leiðinlegt að vera hataður af eigin líkamshlutum. Svei. En endorfísölumaður dauðans, hinn illi Líkamsræktar-Jóhannes, gefur engin grið. Hann ætlar að drepa mig. Adjö fagra veröld. Hér hvílir Jóhannes. Hann var myrtur með harðsperrum. |







Entries (RSS)