Fór á KR-FH í kvöld, þar sem jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit í stórfjörugum og skemmtilegum leik. Þar sem í staðinn fyrir FH mark hefði átt að vera KR aukaspyrna meter utan við vítateig átta mínútum fyrir leikslok. En hvað um það. Þetta blogg er ekki til að bitcha yfir þeim úrslitum.

Allir vita að allir hata KR. Að hafa gaman af því er partur af því að vera KRingur, því allir vita að það er vegna þess að allir öfunda okkur. Hins vegar hata KRingar nú orðið ekki mörg lið. Fram og Valur, gömlu keppinautarnir eru ekki á sama stalli og í eina tíð, þegar þau voru einu liðin sem skiput máli. Nú orðið eru menn svona létt pirraðir til fúlir á Völsurum, en ástríðan nær ekki sérlega langt út fyrir völlinn eftir leik. Frammarar eru í seinni tíð aðallega góður brandari í vesturbænum. KR-Valur/Fram er svona nágrannarígur, stundum hatrammur, en jafnvel góðlátlegur á köflum.

Skaginn er erfðafjandi KRinga, allavega fyrir minni kynslóð. Skagamenn og KRingar hatast af hjartans eldmóði og það eru varla til skemmtilegri eða ástríðufyllri fótboltaleikir í efstu deild á Íslandi en Skaginn-KR. Stúkan á meistaravöllunum er aldrei fyllri en þegar Krían er spiluð. Það er feitasta derby stemmingin í Frostaskjólinu.

En málið er að þrátt fyrir ríg og hatur þá er alltaf ákveðin virðing að baki þessu. Fram og Valur eru gamalgrónir risar í fótboltanum og Skaginn er veldi sem þrátt fyrir allt það tímalausa hatur sem KRingar bera í hjarta sér til, heimtar virðingu, einfaldlega af því þeir hafa unnið til hennar með rosalegum leikjum og ótrúlegum liðum.

fh hinsvegar. KRingar hata fh eins og maður hatar óþolandi boðflennu sem er að skemma partíið. KRingar hata fh eins og atvinnulaus einstæð þriggja barna móðir á öryrkjabótum hatar sjálfstæðisflokkinn. Það er engin virðing. Bara svart, kalt, blóðugt hatur.

Það eina sem er gott við að búa í Hafnarfirði eftir leik eins og í kvöld er að eiga heima í Haukahverfinu.

Og já, eitt enn. Ef einhver grínisti setur 7-0 í kommentakerfið mitt þá verður hann bannaður að eilífu.

7 Responses to “Stóra Bitra Fótboltabloggið”
  1. Keizarinn says:

    Alveg ótrúlegt hvað KR eru óheppnir í þessum viðureignum við smámennin. Það versta er svo að sjá Tryggva Guðmundsson alltaf geiflandi sig eins og Downsara á vellinum. Málið er einfalt. Þú ert ekkert stórveldi fyrr en þú hefur sögu, hefð og fótboltavöll sem lítur ekki út eins og kartöflugarður. Þannig er það.

  2. Anna Lilja says:

    …. og þá skiptir engu þótt stórveldið tapi og tapi og tapi ……… af því að liðið er ekki stórveldi nema að hafa völlin, and so on……

  3. Anna Lilja says:

    eða öllu heldur liðið er stórveldi því það hefur völl sem er að ykkar lagi, sögu og hefð…….

  4. Anna Lilja says:

    en þótt að tapi og tapi á skiptir það engu því það er stórveldi sko!….. belh!

  5. Jóhannes Þ. says:

    …gætirðu útskýrt þetta í fimm kommentum í viðbót?

  6. Keizarinn says:

    Já, svona eru KR hatararnir………

  7.  
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>