1. Tríóið er Stock, Aitken and Waterman og það er úr mörgu að velja. Flestir nefndu þó Respectable með Mel and Kim og Never Gonna Give You Up með Rick Astley. Þetta var svona subtle Rickroll.

2. Lagið í tóndæminu er vissulega Talk með Coldplay. Um það var hins vegar ekki spurt, heldur úr hvaða lagi laglínan er fengin að láni. Það lag er Computer Love með Kraftwerk. Talk halar inn núll stig hér enda hefði það verið allt of létt.

3. Girl You Know It’s True með Milli Vanilli. Var að hugsa um að spyrja “hverjir syngja” …

4. Slave To The Grind með Skid Row. Tónleikarnir voru í Laugardalshöllinni árið 1992, og voru stórkostlegir.

5. Andrew Ridgeley syngur. Lagið er Red Dress af þeirri mergjuðu sólóplötu ‘Son of Albert’.

4 Responses to “Úrslit 1. umferðar”
  1. Hildur R. says:

    Geri mér grein fyrir því að orð Jóhannesar eru lög í þessari keppni og bla bla bla en ég vil þó mótmæla orðalaginu í spurningu 2. Tæknilega séð er besserwissinn að fá þessa laglínu lánaða frá Coldplay fyrir keppnina.

    Vil bara koma þessu að þar sem Jóhannes ert að fræða komandi kynslóð og þessi spurning yrði dæmd ógild og ómerk á samræmdu prófi. Finnst sárt að lenda í 2. sæti vegna tilfallandi málfars þess sem býr til spurningarnar.

    Og já ég er með flensu og leiðist og hef ekkert að gera heima hjá mér á föstudagskvöldi!

  2. Jóhannes Þ. says:

    Iss, flensupirr og málfarsfasismi.

  3. Guðmann Bragi says:

    Ég tók ekki þátt í keppninni, en ég fann þetta á the interwebs

    http://www.starwars.com/hyperspace/member/photoreceptor/double_bg.jpg

    Fæ ég aukastig ???

  4. Jóhannes Þ. says:

    Guðmann fær þúúúúúúúsund stig!

  5.  
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>