Fyrir allnokkru var boðið upp á besserwiss, þegar lesendur voru orðnir þreyttir á skoðanaleysi og litlum afköstum besserwissersins sjálfs. Sú færsla naut þvílíkra vinsælda að stofnaður var sérstakur færsluflokkur: “Vísindavefur besserwissins”.

Vísindavefurinn hefur nú göngu sína á ný og býður lesendum að spyrja besserwisser að hverju sem er í kommentum og fá svör við lífsins gátum. Svör verða að venju skrifuð án ábyrgðar en sneisafull af sannleika, enda liggur það í hlutarins eðli að besserwisser veit betur en aðrir wisserar.

Og já, ég veit að ég skulda ennþá eitt svaðalegt svar síðan síðast.  Það kemur einhverntíma þegar ég hef lausan mánuð.

3 Responses to “Vísindavefur besserwissins”
  1. Keizarinn says:

    Ég er með eina spurningu. Þegar maður fær sér McDonaldshamborgara þá er maður búinn að taka meðvitaða ákvörðun um að borða smávegis óhollt og gefa skít í hollustu. Svo sé ég að þeir hafa mikið kál á hamborgaranum líka, þrátt fyrir mikla sósu. Hversvegna er sett grænmeti á hamborgara ? Er þetta skraut ?

    besserwiss svarar:
    Kál er einungis haft á McDonalds hamborgurum til skrauts. Ronald McDonald var á sínum yngri árum kokkalærlingur á kínverska veitingastaðnum Som Yong Gai (sem þekktur er fyrir rjómarétti), og tók sér til fyrirmyndar spakmælið um að vel skreyttur matur bragðist betur. Hins vegar olli áralangt amerískt uppeldi í dósaeldhúsi móður hans í Wisconsin ríki því að hugtakið “grænmeti” var eitthvað sem hann taldi best túlkað með smátt skornum laukbitum og súrpækluðum agúrkum. Þar sem McDonalds hamborgarar eru serveraðir í brauði úr frauðplasti og eru almennt viðurkenndir sem vafasamasta fæða á vesturlöndum hefur þetta smáatriði ekki komið að sök.

    Varðandi almenna notkun grænmmetis á hamborgara er það allt annar handleggur. Hamborgarastaðir setja grænmeti á borgarann til að blekkja heimskan pubulinn til að halda að hér sé komið mikið hollustufæði. Öllu áhugaverðara viðfangsefni væri að gera á því rannsókn hvers vegna sumt fólk *hóst, hóst* pantar sér alltaf hamborgara með grænmeti, til þess eins að fjarlægja grænmetið þegar borgarinn er kominn á diskinn. Líkast til er um einhvers konar skelfilega geðveilu að ræða.

  2. Steini says:

    Er rangt að borða þá sem vilja vera borðaðir? Og í framhaldi af þessu, ef dýr gætu talað og Robbi svín myndi láta vita af því að hans helsti draumur væri að verða étinn af einhverjum sælkera, væru þá til einhverjar ástæður sem grænmetisætur gætu notað til að vera andsnúin dýraáti (á Robba og öðrum dýrum með sömu skoðanir)?

    besserwiss svarar:
    Hér er augljóslega átt við kannibalisma, eða eigintegundarát. Þetta er auðvitað aðeins siðferðilegt álitaefni. Út frá næringarfræðilegu sjónarmiði er ekkert athugavert við að éta einhvern af eigin tegund sem hefur áhuga á að láta éta sig, til dæmis eftir að hann hefur látist úr elli. Mannakjöt ku til dæmis bragðast svipað og kjúklingur, að sögn þeirra sem til þekkja (…og kjúklingur bragðast þá væntanlega svipað og mannakjöt, sem er áhugaverð staðreynd sem allir ættu að velta fyrir sér næst þegar þeir fá sér kjúkling).

    Vel þekkt dæmi um akkúrat þetta álitaefni er af Þjóðverjanum sem fyrir nokkrum árum auglýsti í blaði eftir manni sem vildi leyfa honum að éta sig. Þeir hittust, fengu sér vínglas, skáru part af öðrum þeirra sem hinn svo át. Sagan er lengri, en látum þetta nægja. Ef staðar væri numið hér má velta því fyrir sér hvar siðferðilegi glæpurinn liggur. Því skal ekki svarað hér, enda besserwissið alræmt fyrir siðferðisbresti af ýmsu tagi og ekki besti dómarinn í þeim hluta mannlífsins.

    Varðandi Robba svín, þá má líta svo á að Robbi sé hér aðeins grísinn Sæhrímnir í dulargerfi, stiginn niður frá Valhöll til að pirra grænmetisætur. Eins og allir vita var grísinn sá étinn á hverju kvöldi af hetjum og guðum í Valhöll og kitlaði aðeins þegar hann var skorinn í bita.

    Vandinn við grænetisæturök um að dýr vilji ekki láta éta sig er sá að enginn hefur sýnt fram á að tómatar og paprikkur hafi á því sérstakan áhuga heldur. Sumar grænmetisætur virðast því ekki borða kjöt vegna þess að dýr eru með stór og brún Bambiaugu sem þeir sjá fyrir sér í svefni.

  3. Gísli says:

    1. Er Besserwiss-ið (Besserwisser-inn) A eða B Gáfumenni?

    og í framhaldi af því:

    2. Hvar er Gils N. Eggerz í dag?

  4.  
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>